
Halldór Halldórsson bæjarstjóri
Hlutverk bæjarstjóra:
Bæjarstjóri er framkvæmdastjóri bæjarfélagsins og hefur með höndum málefni
bæjarfélagsins og framkvæmd ákvarðana bæjarstjórnar. Bæjarstjóri er æðsti
yfirmaður starfsmanna bæjarfélagsins.
Hann undirbýr fundi bæjarráðs og bæjarstjórnar, semur dagskrá og boðar til fundar.
Hann á sæti á fundum bæjarstjórnar og bæjarráðs og hefur þar málfrelsi og
tillögurétt en ekki atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn fulltrúi í bæjarstjórn
eða bæjarráði. Hann hefur einnig rétt til setu á fundum nefnda bæjarfélagsins með
sömu réttindum.
Heimasíða Halldórs bæjarstjóra: haddi.is
Greinar bæjarstjóra á vef Ísafjarðarbæjar
Aðsetur: Hafnarstræti 1, 400 Ísafirði
Sími : 450 8000
Netfang: bstj@isafjordur.is
Fax 450 8008
Viðtalstími: 10:00 - 12:00
Bæjarritari er staðgengill bæjarstjóra í forföllum hans. |