| 1. | Í stjórn Þróunar- og starfsmenntunarsjóðs sitja bæjarstjóri og sviðsstjórar. Þeim til ráðuneytis eru forstöðumenn stofnana sveitarfélagsins. Umsjón með sjóðnum og samþykktum hans hefur bæjarritari. Fjárveitingar til sjóðsins eru ákveðnar á ári hverju af bæjarstjórn að fenginni tillögu stjórnar sjóðsins. |
| 2. | Allir starfsmenn Ísafjarðarbæjar eiga rétt á að sækja um styrk úr sjóðnum. Einnig eiga forstöðumenn stofnana rétt á að sækja um styrki til skipulagningar fræðslu innan þeirra deilda. |
| 3. | Markmið sjóðsins er að koma til móts við starfsmenn vegna kostnaðar tengdu námi og fræðslu sem er við það miðað að þeir geti tileinkað sér framfarir og tæknibreytingar á sínu sérsviði. Einnig að veita starfsmönnum fjárhagslegan styrk til að öðlast þekkingu sem gerir þeim mögulegt að taka að sér vandasamari störf og gera þá hæfari einstaklinga. |
| 4. | Veita má styrki til náms eða námskeiða innanlands eða utan, í formlegu skólakerfi, starfstengds náms á vegum fagfélaga, þjálfunar í starfi, vettvangsheimsókna, ráðstefna og annars sem hefur beina skírskotun til núverandi eða mögulegs framtíðastarfs umsækjanda. Að öllu jöfnu skulu þeir njóta forgangs til styrkjar sem ekki hafa hlotið styrk á síðustu tveimur árum. |
| 5. | Auglýsa skal úthlutun og úthlutunarreglur á heimasíðu Ísafjarðarbæjar. Sjóðsstjórn er heimilt að úthluta styrkjum eftir því sem þær berast sjóðnum. Sjóðsstjórn skal svara öllum styrkumsóknum skriflega. |
| 6. | Þeir sem óska eftir styrk úr sjóðnum skulu senda stjórn hans umsókn þar sem fram kemur lýsing á því námi eða námskeiði sem styrkurinn skal notaður til. Tilgreina skal fjárhæð styrks, hvenær ætlunin sé að nota hann, hvernig styrkurinn verður notaður og aðrar nauðsynlegar upplýsingar. Einnig skal umsækjandi taka fram hvort hann nýtur styrks eða afsláttar frá öðrum aðilum til sama náms og hversu mikils. Stjórn sjóðsins er heimilt að óska eftir frekari upplýsingum frá umsækjanda og/eða námskeiðshaldara. Á grundvelli umsóknar tekur sjóðsstjórnin ákvörðun um hvort og hversu háan styrk viðkomandi skuli fá. Stjóðsstjórn er heimilt að veita styrk vegna dvalar- og ferðakostnaðar. Umsókn skal berast á þar til gerðu eyðublaði. |
| 7. | Sjóðsstjórn er heimilt að veita styrki til fræðslu sem opin er öllum starfsmönnum Ísafjarðarbæjar eða einstökum starfsmannahópum. |
| 8. | Styrkur má aldrei nema hærri fjárhæð en eftir stendur þegar tekið hefur verið tillit til annarra styrkja eða afslátta sem umsækjandi nýtur til sama náms, námskeiðs eða verkefnis. Verði styrkþegi uppvís að því að upplýsa ekki um aðra styrki eða afslætti getur sjóðsstjórn endurkrafið hann um mismuninn. Styrkþeganum er skylt að framvísa staðfestingu á námslokum þegar þátttöku eða verkefni lýkur. Ljúki styrkþegi ekki námi sínu, námskeiði eða verkefni skal hann endurgreiða styrkinn. |
| 9. | Styrkur er annaðhvort greiddur við framvísun reikninga eða gegn staðfestingu á námsframvindu. |
| 10. | Stjórn sjóðsins er heimilt að krefjast þess, að starfsmaðurinn skuldbindi sig til að starfa hjá Ísafjarðarbæ í ákveðinn tíma eftir að námi lýkur, ef um hærri styrk er að ræða. Skuldbindingin felur í sér að starfsmanninum er skylt að endurgreiða útlagðan kostnað Ísafjarðarbæjar kjósi hann að hætta störfum. Endurgreiddur kostnaður skal vera í hlutfalli við þann tíma sem eftir er af samningi. |
| 11. | Hægt er að veita styrk til fræðslu ýmist á launum eða launalaust. Ákvörðun þess eðlis er samkomulagsatriði hverju sinni og haft er til hliðsjónar ákvæði kjarasamninga, tímasetningu, tímafjölda, vinnuframlag og reynslu starfsmannsins, hvernig námið nýtist í starfi o.fl. Stjórn sjóðsins er heimilt að mynda nánari reglur um slíka ákvarðanatöku. |
12. | Fræðsla og menntun sem starfsmenn Ísafjarðarbæjar taka þátt í með aðstoð sjóðsins er skráð og metin samkvæmt gildandi kjarasamingum hverju sinni. |
13. | Sjóðsstjórn skal halda nákvæma skrá yfir samþykktir sínar; þ.e. úthlutanir, styrkþega, styrkfjárhæð, fræðslu, námskeið, heimsóknir, verkefni eða annað sem máli skiptir. Sjóðsstjórnin gefur árlega út skýrslu um styrkveitingar ársins. Verði afgangur af fjármagni sjóðsins í lok almanaksárs skal það sem af gengur bætast við úthlutunarfé næsta árs. |