B-listi Framsóknarflokks og D-listi Sjálfstæðisflokks í Ísafjarðarbæ gera með sér svofelldan

 

MÁLEFNASAMNING:

 

Listarnir mynda meirihluta í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar frá og með 9. júní 2002 til loka kjörtímabilsins árið 2006.

 

Forseti bæjarstjórnar verður af D-lista allt kjörtímabilið. Fyrsti varaforseti verður af D-lista 1. og 3. ár kjörtímabilsins en af B-lista 2. og 4. ár kjörtímabilsins.

 

Formaður bæjarráðs verður af B-lista allt kjörtímabilið en varaformaður verður af D-lista allt kjörtímabilið.

 

Halldór Halldórsson oddviti D-lista verður endurráðinn bæjarstjóri frá og með 9. júní 2002.

 

Meirihluti Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks leggur áfram áherslu á ábyrga fjármálastjórn og lækkun rekstrarkostnaðar.

 

Samkomulag er um að vinna að málum m.a. á grundvelli eftirfarandi:

 

·         Forgangsverkefni bæjarstjórnar verður að leita leiða til að styrkja atvinnulífið í samvinnu við fyrirtæki og stofnanir.  Liður í því er að tryggja Ísafjarðarbæ sem öflugan byggðakjarna í samræmi við nýsamþykkta byggðaáætlun.  Lögð verður rík áhersla á að framfylgja sérstakri byggðaáætlun fyrir Vestfirði.

 

·         Unnið verður að stofnun eignarhaldsfélags, frumkvöðlaseturs og tekin upp talning opinberra starfa.

 

·         Vegna endurskipulagningar orkumála í landinu mun meirihlutinn beita sér fyrir því að sú reynsla og þekking sem er til staðar verði nýtt til að tryggja starfsemi öflugs orkufyrirtækis í fjórðungnum.

 

·         Atvinnumálanefnd verður efld með auknu samstarfi við atvinnulífið, fjárveitingu til verkefnavinnu og fulltrúum verður fjölgað úr þremur í fimm.

 

·         Leitast verður við að styrkja landbúnað innan Ísafjarðarbæjar í samstarfi við bændur.

 

·         Byggt skal á sérstöðu hvers skóla samkvæmt nýrri skólastefnu Ísafjarðarbæjar, sem tekur til allra skólastiga í sveitarfélaginu.

 

·         Unnið verður áfram að varanlegri lausn á húsnæðismálum Grunnskólans á Ísafirði.

 

·         Áfram verður unnið í góðu samstarfi við ríkisvaldið um uppbyggingu framhalds- og háskólanáms í Ísafjarðarbæ.

 

·         Skipulag íþrótta- og æskulýðsmála verður tekið til endurskoðunar í samstarfi við HSV með það að markmiði að efla innra starf íþróttafélaganna. Forgangsverkefni í uppbyggingu íþróttamannvirkja verða ákveðin í samráði við HSV og framkvæmdaáætlun unnin.

·         Skipulagsbreyting í íþrótta- og æskulýðsmálum verður með því að setja á stofn sérstaka nefnd fyrir málaflokkinn.

 

·         Heimaþjónusta aldraðra og öryrkja verður efld og fasteignagjöld á eigið húsnæði aldraðra og öryrkja verða lækkuð enn frekar.

 

·         Stefnt verður að því að Ísafjarðarbær verði í fararbroddi í þróun félagsþjónustu fyrir fólk af erlendum uppruna í samstarfi við Fjölmenningarsetrið.

 

·         Unnið verður að samningi við ríkisvaldið um menningarhús. Einnig verður unnið að gerð samnings við ríkisvaldið  um samstarf í menningarstarfsemi.

 

·         Byggðasafn Vestfjarða fái sérstaka stjórn í samstarfi sveitarfélaganna á norðanverðum Vestfjörðum. Unnið verður að lausn á húsnæðismálum Byggðasafnsins.

 

·         Unnið verður að gerð aðalskipulags fyrir Ísafjarðarbæ í heild og leitað verður eftir samstarfi við ríkisvaldið vegna sérstöðu sveitarfélagsins.  Aðalskipulagið verður unnið í samræmi við markmið Staðardagskrár 21.

 

·         Átak verður gert í að bæta götur, gangstéttir, göngustíga og opin svæði innan þéttbýlissvæða Ísafjarðarbæjar.

 

·         Unnið verður að undanþágum frá tilskipun Evrópubandalagsins á grundvelli rannsókna á vegum Náttúrustofu Vestfjarða og Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða vegna frárennslismála. Gerð verði áætlun í frárennslismálum og unnið að úrbótum.

 

·         Unnið verður að nauðsynlegum snjóflóðavörnum í samræmi við reglugerð. Miðstöð snjóflóðarannsókna á vegum Veðurstofu Íslands verði í Ísafjarðarbæ.

 

·         Lokið verður við sameiningu hafnar- og umhverfissviðs. Stefnt verður að meiri umsvifum Hafna Ísafjarðarbæjar með aukinni markaðssetningu.

 

·         Íbúalýðræði verður fest í sessi með formlegum fundum með íbúum. Hvatt verður til stofnunar íbúasamtaka þar sem þau eru ekki til staðar.

 

·         Tölvutæknin verður nýtt í enn ríkari mæli með vandaðri upplýsingagjöf á heimasíðu Ísafjarðarbæjar.

 

 

Skrúður í Dýrafirði, 29. maí 2002

 

 

                             Fyrir hönd

B-lista Framsóknarflokks       D-lista Sjálfstæðisflokks

_________________              _________________

Guðni Jóhannesson                   Halldór Halldórsson