Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar,

Hafnarstræti 1,

400 Ísafirði.

 

Ísafirði, 3. júní 2002

Með vísan til 2. mgr. 95. gr. laga nr. 5/1998 sendir yfirkjörstjórn Ísafjarðarbæjar nýkjörinni bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar eftirfarandi greinargerð vegna sveitarstjórnar-kosninganna er fram fóru 25. maí s.l.

Á kjörskrá í Ísafjarðarbæ voru 2801, þar af 7 borgarar annarra ríkja á Norðurlöndum og 49 borgarar annarra ríkja. Á kjörskrá voru 1414 karlar og 1387 konur. Alls kusu 2354 eða 84,04%. Atkvæði greidd á kjörstað voru 2106 en atkvæði greidd utan kjörfundar voru 248. Af körlum á kjörskrá greiddu 1161 atkvæði eða 82,1% en alls greiddu 1193 konur atkvæði eða 86% kvenna á kjörskrá. Af þeim 56 erlendum ríkisborgunum er voru á kjörskrá kusu 32 eða 57,1%.

Atkvæði féllu þannig:

A listi – Listi Nýs afls. 104 atkvæði eða 4,4% greiddra atkvæða.

B listi – Listi Framsóknarflokks. 401 atkvæði eða 17,0% greiddra atkvæða.

D listi – Listi Sjálfstæðisflokks. 810 atkvæði eða 34.4% greiddra atkvæða.

F listi – Listi Frjálslyndra og óháðra. 307 atkvæði eða 13,1% greiddra atkvæða.

S listi – Listi Samfylkingar. 526 atkvæði eða 22,4% greiddra atkvæða.

U listi – Listi Vinstri hreyfingarinnar-græns framboðs. 149 atkvæði eða 6,3% greiddra atkvæða.

Auðir seðlar voru 52 eða 2,2% greiddra atkvæða og ógildir seðlar 5 eða 0,2%.

Kosið var í sjö kjördeildum í Ísafjarðarbæ, þrjár kjördeildir voru í Grunnskólanum á Ísafirði, ein í Hnífsdal, ein á Suðureyri, ein á Flateyri og ein á Þingeyri. Undirbúningur og framkvæmd kosninganna gekk í alla staði mjög vel og er ástæða til að færa öllum þeim fjölda fólks er að því starfi komu bestu þakkir. Talning atkvæða fór fram í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði og var lokið um kl. 00.30.

Hjálagt fylgja ljósrit að skýrslum undir– og yfirkjörstjórnar Ísafjarðarbæjar til Hagstofu Íslands, dags. 3. júní 2002, en skýrslurnar hafa þegar verið sendar til Hagstofu Íslands.

Í samræmi við ákvæði 95. gr. laga nr. 5/1998 hefur yfirkjörstjórn gefið út kjörbréf til aðal- og varamanna í nýkjörinni bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar.

Virðingarfyllst,

Yfirkjörstjórn Ísafjarðarbæjar

______________________ _______________________ ________________________
Björn Jóhannesson                 Fylkir Ágústsson                    Smári Haraldsson


Kjörnir aðalmenn í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar voru:
Halldór Halldórsson D-lista kt. 250764-4059
Lárus G. Valdimarsson S-lista kt. 280959-3249
Birna Lárusdóttir D-lista kt. 140366-5529
Guðni G. Jóhannesson B-lista kt. 070747-2519
Magnús Reynir Guðmundsson F-lista kt. 220144-2249
Ragnheiður Hákonardóttir D-lista kt. 180354-3369
Bryndís G. Friðgeirsdóttir S-lista kt. 041157-5509
Ingi Þór Ágústsson D-lista kt. 030372-2989
Svanlaug Guðnadóttir B-lista kt. 300362-2069