Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar

79. fundur

Árið 2000, miðvikudaginn 19. apríl kl. 17:00 hélt bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar fund í fundarsal sínum í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði.

Dagskrá.

I. Fundargerðir bæjarráðs 10/4 og 17/4.
II. Fundargerð félagsmálanefndar 12/4.
III. Fundargerð fræðslunefndar 11/4.
IV. Fundargerð hafnarstjórnar 11/4.
V. Fundargerð húsnæðisnefndar 3/4.
VI. Fundargerð menningarnefndar 13/4.
VII. Fundargerð umhverfisnefndar 12/4.
VIII. Fundargerð starfshóps um framtíðaruppbyggingu skíðasvæðis á Ísafirði 10/4.

I. Bæjarráð.

Til máls tóku: Bryndís G. Friðgeirsdóttir, Ragnheiður Hákonardóttir, Hildur Halldórsdóttir, Sigurður R. Ólafsson, Þorsteinn Jóhannesson, Sæmundur Kr. Þorvaldsson, Lárus G. Valdimarsson og Halldór Halldórsson, bæjarstjóri.

Ragnheiður Hákonardóttir óskaði eftir svohljóðandi bókun við 1. lið 197. fundar bæjarráðs, hafnarstjórn 1. liður. Svar formanns bæjarráðs vegna bókunar bæjarfulltrúa Sigurðar R. Ólafssonar. ,,Undirrituð vísar til skipulagsreglugerðar nr. 400/1998 gefin út af Skipulagsstofnun í júlí 1998. Í 4. kafla reglugerðarinnar um landnotkun er tekið á skilgreiningu svæða skv. eðli þeirra. Í 4.8 eru hafnarsvæði skilgreind og hafnarsvæði í skipulagsáætlunum skilgreind. Bæjarfulltrúum er vísað á meðfylgjandi ljósrit úr 4. kafla sem fylgir svarbréfi þessu.
Miðað við þau gögn sem bárust hafnarstjórn til umsagnar frá umhverfisnefnd gat hafnarstjórn ekki gert annað en vísað til gildandi aðal- og deiliskipulags.
Formaður bæjarráðs vísar til föðurhúsanna þeirri fullyrðingu Sigurðar R. Ólafssonar, sem kemur fram í bókun hans að arkitekt hafi verið neitað um fyrirgreiðslu á hafnarsvæðinu. Í því tilfelli var bæjarstjóra falið að ræða við viðkomandi og þá kom fram að hann væri hættur við fyrirhugaðar framkvæmdir."
Undirritað af Ragnheiði Hákonardóttur, 19. apríl 2000.

Guðni G. Jóhannesson, forseti, lagði fram svohljóðandi bókun við 1. lið 197. fundar bæjarráðs 17. apríl 2000. ,,Meirihluti bæjarstjórnar fagnar frumkvæði Stefáns Dan Óskarssonar um að koma upp líkamsræktarstöð. Óskað er eftir nánari útfærslu á hugmyndinni, með tilliti til mannvirkjagerðar umhverfis og aðkomu, til að leggja fyrir umhverfisnefnd."
Undirritað af Guðna G. Jóhannessyni, Birnu Lárusdóttur, Ragnheiði Hákonardóttur, Hildi Halldórsdóttur og Þorsteini Jóhannessyni.

Bókun bæjarstjórnar við 9. og 10. lið 196. fundargerðar bæjarráðs. ,,Bæjarstjórn þakkar Rósu B. Þorsteinsdóttur, skóla- og menningarfulltrúa og Kjell Hymer, félagsmálastjóra, vel unnin störf fyrir Ísafjarðarbæ og óskar þeim velfarnaðar á nýjum vettvangi."

Fundargerðin 10/4. 196. fundur.
5. liður. Tillaga bæjarráðs samþykkt 9-0.
8. liður. Tillaga bæjarráðs samþykkt 9-0.
9. liður.Uppsögn Rósu B. Þorsteinsdóttur samþykkt 9-0.
10. liður.Uppsögn Kjell Hymer samþykkt 9-0.
12. liður. Tillaga bæjarráðs samþykkt 8-0.
Aðrir liðir lagðir fram til kynningar.

Fundargerðin 17/4. 197. fundur.
6. liður. Tillaga bæjarráðs samþykkt 6-0.
Aðrir liðir lagðir fram til kynningar.

II. Félagsmálanefnd.

Fundargerðin 12/4. 122. fundur.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

III. Fræðslunefnd.

Bæjarstjórn tekur undir þakkir fræðslunefndar til kvennfélagsins Hvatar í Hnífsdal, í 3. lið 104. fundargerðar fræðslunefndar frá 11. apríl 2000.

Fundargerðin 11/4. 104. fundur.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

IV. Hafnarstjórn.

Til máls tóku: Sigurður R. Ólafsson, Birna Lárusdóttir, Þorsteinn Jóhannesson, Ragnheiður Hákonardóttir og Lárus G. Valdimarsson.

Fundargerðin 11/4. 39. fundur.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

V. Húsnæðisnefnd.

Fundargerðin 3/4. 45. fundur.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

VI. Menningarnefnd.

Til máls tóku: Sigurður R. Ólafsson og Halldór Halldórsson, bæjarstjórnar.

Sigurður R. Ólafsson lagði fram svohljóðandi bréf ásamt greingargerð. ,,Samkvæmt heimildum í lögum, eða nánar tiltekið 40. grein Sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, hef ég tekið þá ákvörðun að segja af mér störfum í Verkefnisstjórn safnahúss."
Undirritað af Sigurði R. Ólafssyni og dagsett 19. apríl 2000.

Fundargerðin 13/4. 54. fundur.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

VII. Umhverfisnefnd.

Til máls tók Birna Lárusdóttir og lét bóka eftirfarandi við 5. lið fundargerðar umhverfisnefndar frá 12. apríl 2000. ,,Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar fagnar því að vegurinn yfir Hrafnseyrarheiði skuli ver orðinn fær."

Fundargerðin 12/4. 109. fundur.
3. liður. Tillaga umhverfisnefndar samþykkt 5-0.
Lárus G. Valdimarsson gerði grein fyrir hjásetu sinni.
4. liður. Rekstrarkostnaður vegna klukku á Suðureyri samþykktur 8-0.
5. liður. Tillaga umhverfisnefndar samþykkt 9-0.
Aðrir liðir fundargerðarinnar staðfestir 9-0.

VIII. Starfshópur um framtíðaruppbyggingu skíðasvæðis á Ísafirði.

Til máls tók: Sæmundur Kr. Þorvaldsson,

Fundargerðin 10/4. 6. fundur.
2. liður. Tillaga starfshóps samþykkt 9-0.
Aðrir liðir lagðir fram til kynningar.

Fleira ekki gert, fundarbókun upp lesin og undirrituð. Fundi slitið kl. 19:20

Þorleifur Pálsson, ritari.

Guðni G. Jóhannesson, forseti bæjarstjórnar.

Birna Lárusdóttir. Ragnheiður Hákonardóttir

Hildur Halldórsdóttir. Þorsteinn Jóhannesson.

Bryndís G. Friðgeirsdóttir. Sigurður R. Ólafsson.

Sæmundur Kr. Þorvaldsson. Lárus G. Valdimarsson.

Halldór Halldórsson, bæjarstjóri.