SAMÞYKKT
um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.
I. KAFLI
Um skipan bæjarstjórnar og verkefni hennar.
1. gr.
Skipan bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar er skipuð 9 bæjarfulltrúum kjörnum samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998, sbr. 8. og 12. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.
2. gr.
Starfstímabil.
Starfstímabil bæjarstjórnar hefst 15 dögum eftir kjördag í sveitarstjórnarkosningum og gildir til jafnlengdar að fjórum árum liðnum.
3. gr.
Valdsvið.
Bæjarstjórn fer með stjórn Ísafjarðarbæjar samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga og annarra laga. Jafnframt fer bæjarstjórn með yfirstjórn stofnana og fyrirtækja á vegum bæjarfélagsins að svo miklu leyti sem bæjarstjórn hefur ekki falið öðrum slíka yfirstjórn.
4. gr.
Verkefni bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn skal gæta hagsmuna bæjarfélagsins og vera í fyrirsvari fyrir það og vinna að sameiginlegum velferðarmálum íbúa þess.
5. gr.
Verkefni bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn annast þau verkefni sem henni eru falin í lögum, reglugerðum og samþykktum. Þá getur bæjarstjórn ákveðið að bæjarfélagið taki að sér verkefni sem varðar íbúa þess sérstaklega enda sé það ekki falið öðrum til úrlausnar að lögum.
6. gr.
Meðal verkefna bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar eru:
1. Að kjósa forseta og varaforseta bæjarstjórnar, bæjarráð og aðrar nefndir, ráð og stjórnir skv. IV. kafla sveitarstjórnarlaga, sbr. og V. kafla samþykktar þessarar, og skoðunarmenn til að yfirfara ársreikninga bæjarfélagsins og ráða löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem vinna skal að endurskoðun hjá bæjarfélaginu.
2. Að setja samþykktir og gjaldskrár eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur.
3. Að stjórna fjármálum bæjarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja skv. VI. kafla sveitarstjórnarlaga, sbr. og II. kafla samþykktar þessarar.
4. Að ákveða stjórnkerfi bæjarfélagsins og ráða bæjarstjóra og aðra helstu starfsmenn bæjarfélagsins skv. V. kafla sveitarstjórnarlaga, sbr. og VI. kafla þessarar samþykktar.
II. KAFLI
Um fjármálastjórn bæjarfélagsins.
7. gr.
Afgreiðsla fjárhagsáætlunar.
Bæjarstjórn skal afgreiða fjárhagsáætlun bæjarsjóðs, bæjarfyrirtækja og stofnana fyrir lok janúarmánaðar ár hvert að undangengnum tveimur umræðum í bæjarstjórn, sbr. 25. gr. samþykktar þessarar.
Ef ekki tekst að afgreiða fjárhagsáætlun skv. 1. mgr. skal bæjarstjórn sækja skriflega um frest til félagsmálaráðuneytisins og tilgreina ástæður fyrir umsókninni.
Form fjárhagsáætlunar skal vera í samræmi við form ársreikninga bæjarfélagsins. Í fjárhagsáætlun skal koma fram rekstrar- og framkvæmdaáætlun, áætlun um efnahag í upphafi og lok árs, auk áætlaðra fjármagnshreyfinga.
Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar tekur bæjarstjórn ákvarðanir um nýtingu tekjustofna bæjarsjóðs og tekjuöflun, um öflun lánsfjár, ef um það er að ræða og um ráðstöfun fjármagns á fjárhagsárinu bæði til rekstrar og eignabreytinga. Þá skal við gerð fjárhagsáætlunar hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu bæjarsjóðs í byrjun fjárhagsársins.
Bæjarstjórnin skal árlega gæta þess svo sem kostur er að heildarútgjöld bæjarfélagsins, þar með talin rekstrarútgjöld, fari ekki fram úr heildartekjum þess.
8. gr.
Þriggja ára áætlun.
Til viðbótar fjárhagsáætlun skv. 7. gr. skal bæjarstjórn árlega semja þriggja ára áætlun skv. 63. gr. sveitarstjórnarlaga um rekstur, framkvæmdir og fjármál bæjarfélagsins. Áætlunin skal vera rammi um árlegar fjárhagsáætlanir bæjarfélagsins og skal hún unnin og afgreidd af bæjarstjórn innan eins mánaðar frá afgreiðslu árlegrar fjárhagsáætlunar.
9. gr.
Fjárhagsáætlun.
Fjárhagsáætlun skv. 7. gr. skal vera meginregla um tekjuöflun, ráðstöfun fjármuna og fjármálastjórn bæjarfélagsins á fjárhagsárinu og ekki má stofna til útgjalda eða greiða fé úr bæjarsjóði nema heimild sé til þess í fjárhagsáætlun, útgjöldin séu lögbundin, samningsbundin eða samþykkt af bæjarstjórn. Samþykki bæjarstjórn fjárveitingu eða útgjöld utan fjárhagsáætlunar skal hún jafnframt taka ákvörðun um hvernig afla skuli fjár til þeirra útgjalda, svo sem með lækkun annarra útgjalda, auknum tekjum eða lánsfé. Samþykki slíkrar fjárveitingar telst breyting á fjárhagsáætluninni.
10. gr.
Endurskoðun fjárhagsáætlunar.
Bæjarstjórn er heimilt að endurskoða fjárhagsáætlun hafi forsendur fyrir henni breyst. Slíkar breytingar afgreiðir bæjarstjórn við eina umræðu í bæjarstjórn, enda hafi breytingartillögurnar verið sendar bæjarfulltrúum með dagskrá viðkomandi bæjarstjórnarfundar.
11. gr.
Strax að lokinni afgreiðslu bæjarstjórnar skal senda félagsmálaráðuneytinu fjárhagsáætlun skv. 7. gr. og þriggja ára áætlun skv. 8. gr. Sama á við um endurskoðaða áætlun eða breytta skv. 10. gr.
12. gr.
Afgreiðsla ársreikninga.
Ársreikningur bæjarsjóðs og fyrirtækja hans skal fullgerður endurskoðaður og tilbúinn til afgreiðslu í bæjarstjórn fyrir lok aprílmánaðar ár hvert skv. 72. gr. sveitarstjórnarlaga. Bæjarfulltrúar og bæjarstjóri skulu árita ársreikninginn. Eintak af ársreikningum skal senda Hagstofu Íslands og félagsmálaráðuneytinu fyrir 15. júní ár hvert ásamt greinargerð endurskoðanda og skoðunarmanna. Viðurlög skv. 4. mgr. 72. gr. sveitarstjórnarlaga liggja við vanrækslu bæjarstjórnar á afgreiðslu og skilum ársreikninga.
III. KAFLI
Um fundarsköp bæjarstjórnar.
13. gr.
Fundartími bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn heldur reglulega fundi 1. og 3. fimmtudag hvers mánaðar. Bæjarstjórnarfundir skulu að jafnaði hefjast kl. 17:00 og skulu að jafnaði ekki standa lengur en þrjár klukkustundir. Bæjarstjórn er heimilt að fella niður fundi í bæjarstjórn í allt að tvo mánuði að sumarlagi.
Aukafundi skal halda í bæjarstjórn eftir því sem þörf krefur að mati bæjarstjóra og forseta bæjarstjórnar og skylt er að halda aukafund í bæjarstjórn ef a.m.k. þriðjungur bæjarfulltrúa krefst þess.
Bæjarstjóri getur ákveðið í samráði við forseta bæjarstjórnar að fresta eða fella niður fund ef sérstaklega stendur á.
14. gr.
Fyrsti fundur nýkjörinnar bæjarstjórnar.
Sá kjörinn fulltrúi í bæjarstjórninni sem á að baki lengstu setu í sveitarstjórn kveður bæjarstjórnina saman til fyrsta fundar að afloknum bæjarstjórnarkosningum eigi síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum, sbr. 2. gr. samþykktar þessarar, þ.e. eigi síðar en 30 dögum eftir kjördag.
Hafi bæjarfulltrúar átt jafnlengi setu í bæjarstjórn fer aldursforseti þeirra með verkefni samkvæmt þessari grein.
15. gr.
Boðun bæjarstjórnarfunda.
Bæjarstjóri, sbr. þó 14. gr. samþykktar þessarar, boðar bæjarstjórnarfundi og ákveður jafnframt fundarstað hafi bæjarstjórn ekki gert það.
Bæjarbúum skal kunngert með auglýsingu hvar og hvenær bæjarstjórnarfundir eru haldnir.
Miðað skal við að sem flestir íbúar bæjarfélagsins hafi greiðan aðgang að auglýsingu um bæjarstjórnarfundi. Þegar dagskrá bæjarstjórnarfundar hefur verið samin og send bæjarfulltrúum skal hún vera aðgengileg íbúum bæjarfélagsins, svo sem á auglýsingatöflu bæjarfélagsins, skrifstofu bæjarfélagsins á venjulegum afgreiðslutíma eða með öðrum hætti er bæjarstjórn ákveður.
16. gr.
Dagskrá bæjarstjórnarfunda.
Bæjarstjóri semur dagskrá bæjarstjórnarfundar í samráði við forseta bæjarstjórnar og skal dagskráin fylgja fundarboði. Á dagskrá bæjarstjórnarfundar skal taka:
1. Lögákveðnar kosningar, svo sem kosningar forseta bæjarstjórnar, kosningar nefnda, ráða og stjórna á vegum bæjarstjórnar svo og ráðningar bæjarstjóra og annarra fastra starfsmanna bæjarfélagsins.
2. Fundargerðir bæjarráðs, nefnda, ráða og stjórna á vegum bæjarfélagsins, sbr. 49. gr. sveitarstjórnarlaga.
3. Önnur mál sem falla undir verksvið bæjarstjórnar og bæjarstjóri og/eða forseti bæjarstjórnar ákveður að taka á dagskrá eða einhver bæjarfulltrúi óskar að tekin verði á dagskrá. Bæjarfulltrúi sem óskar að fá mál tekið á dagskrá bæjarstjórnarfundar skal tilkynna það bæjarstjóra skriflega með tillögu eða fyrirspurn a.m.k. þremur sólarhringum fyrir fund.
Dagskrá bæjarstjórnarfundar skulu fylgja afrit fundargerða, tillagna og annarra gagna sem bæjarstjóri telur nauðsynleg.
Dagskrá skal jafnframt fylgja afrit fundargerðar síðasta bæjarstjórnarfundar.
17. gr.
Boðsending fundarboða.
Bæjarstjóri skal í síðasta lagi tveimur sólarhringum fyrir bæjarstjórnarfund hafa boðsent bæjarfulltrúum og varamönnum þeirra fundarboð bæjarstjórnarfundar ásamt dagskrá og fylgigögnum.
18. gr.
Boðun aukafunda.
Bæjarstjóri skal boðsenda bæjarfulltrúum fundarboð aukafundar í bæjarstjórn ásamt dagskrá a.m.k. sólarhring fyrir fund. Heimilt er þó að boða aukafund með styttri fyrirvara er aðkallandi mál bíður afgreiðslu, enda sé hann boðaður með dagskrá.
19. gr.
Kosning forseta og varaforseta bæjarstjórnar.
Sá bæjarfulltrúi sem boðar til fyrsta fundar skv. 14. gr. setur fyrsta fund nýkjörinnar bæjarstjórnar og stýrir honum uns forseti bæjarstjórnar hefur verið kjörinn.
Forseti bæjarstjórnar skal kjörinn til eins árs.
Sá er rétt kjörinn forseti sem fengið hefur atkvæði meirihluta bæjarfulltrúa. Verði þeim atkvæðafjölda eigi náð skal kjósa að nýju um þá tvo sem flest atkvæði fengu. Hafi þrír eða fleiri bæjarfulltrúar fengið jafnmörg atkvæði skal varpa hlutkesti um hverja tvo skuli kjósa. Verður þá sá rétt kjörinn forseti bæjarstjórnar sem fleiri atkvæði fær. Verði atkvæði jöfn skal hlutkesti ráða kosningu.
Forseti bæjarstjórnar stjórnar kjöri 1. og 2. varaforseta bæjarstjórnar og skal sömu aðferð beitt við kosningu þeirra, sbr. næstu málsgrein hér að framan. Varaforsetar skulu kjörnir til jafnlangs tíma og forseti.
Sé enginn forseta á fundi gegnir aldursforseti forsetastörfum nema bæjarstjórn ákveði að kjósa sérstakan fundarstjóra.
Ef forseti deyr, verður varanlega forfallaður frá forsetastörfum eða nýtur ekki lengur trausts bæjarstjórnar sem forseti bæjarstjórnar áður en kjörtími hans er á enda skal kjósa forseta í hans stað það sem eftir er kjörtímabilsins.
20. gr.
Kosning skrifara.
Bæjarstjórn kýs tvo skrifara og tvo varaskrifara úr hópi bæjarfulltrúa til eins árs í senn á sama fundi og forsetakosning fer fram. Skrifarar skulu kosnir hlutfallskosningu.
Skrifarar skulu telja saman atkvæði við kosningar og þegar atkvæðagreiðslur fara fram í bæjarstjórn.
21. gr.
Fundarstaður.
Bæjarstjórnarfundur skal haldinn í húsnæði sem fullnægir ákvæðum skipulags- og byggingarlaga og byggingareglugerðar um aðgang fatlaðs fólks.
Bæjarstjórnarfundi skal að jafnaði halda í heyranda hljóði og almenningi heimilaður aðgangur að þeim eftir því sem húsrúm leyfir. Bæjarstjórn getur ákveðið að einstök mál verði rædd fyrir luktum dyrum, svo sem viðkvæm einkamál manna eða viðskiptamál sem æskilegt er vegna hagsmuna bæjarfélagsins að rædd verði fyrir luktum dyrum. Jafnframt getur bæjarstjórn ákveðið að bæjarstjórnarfundur þar sem eingöngu er fjallað um slík mál verði haldinn fyrir luktum dyrum. Tillaga um að mál skuli rædd fyrir luktum dyrum skal afgreidd umræðulaust í bæjarstjórn.
Óheimilt er að skýra frá því sem fram kemur við umræður á lokuðum fundi í bæjarstjórn.
22. gr.
Lögmæti bæjarstjórnarfunda.
Bæjarstjórnarfundur er lögmætur ef meira en helmingur bæjarfulltrúa er á fundi. Bæjarstjórn getur enga bindandi ályktun gert nema fundur sé lögmætur.
23. gr.
Fundarstjórn.
Forseti bæjarstjórnar stýrir fundum hennar. Hann setur fund, kannar lögmæti hans og stjórnar umræðum og afgreiðslu mála, sér um að fundargerðir séu færðar og slítur fundi þegar dagskrá hans er tæmd.
Forseti úrskurðar um skilning á fundarsköpum en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarstjórnar. Forseti sér um að allt fari skipulega og löglega fram á bæjarstjórnarfundum og er bæjarfulltrúum skylt að lúta valdi hans að því er varðar fundarsköp og góða reglu. Raski áheyrandi fundarfriði getur forseti vísað honum úr fundarsal. Leyfi forseta þarf til að taka myndir og hljóðrita umræður á bæjarstjórnarfundi. Forseti skal tilkynna bæjarstjórn um ákvörðun sína.
24. gr.
Afgreiðsla dagskrármála á fundi.
Mál skulu tekin til umræðu og afgreidd í bæjarstjórn í þeirri röð sem þau eru á dagskrá nema forseti eða bæjarstjórn ákveði annað. Heimilt er að taka til meðferðar á bæjarstjórnarfundi mál sem ekki hefur veri á dagskrá ef 2/3 vistaddra bæjarfulltrúa samþykkja slíkt afbrigði.
25. gr.
Afgreiðsla mála, tvær umræður.
Bæjarstjórn afgreiðir mál að jafnaði við eina umræðu. Þó skal hafa tvær umræður með a.m.k. einnar viku millibili um eftirtalin málefni:
1. Fjárhagsáætlun bæjarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja.
2. Ársreikninga bæjarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja.
3. Samþykktir, reglugerðir og gjaldskrár sem hljóta eiga staðfestingu ráðherra.
4. Áætlanir fyrir bæjarfélagið sem gilda eiga til lengri tíma svo sem þriggja ára áætlanir og skipulagsáætlanir.
5. Tilkynningu til eftirlitsnefndar skv. 75. gr. sveitarstjórnarlaga.
26. gr.
Fundarsókn, varamenn.
Bæjarfulltrúa er skylt að sækja alla bæjarstjórnarfundi nema lögmæt forföll hamli, svo sem önnur brýnni skyldustörf eða veikindi.
Sé bæjarfulltrúi forfallaður um stundarsakir skal hann tilkynna eða láta tilkynna forföllin til bæjarstjóra sem boðar þá varamann hans á fund. Varamenn taka sæti í bæjarstjórn í þeirri röð sem þeir eru kosnir þegar aðalmenn þess lista sem þeir eru kosnir af forfallast. Ef framboðslisti er borinn fram af tveimur eða fleiri stjórnmálaflokkum eða samtökum geta aðalmenn listans komið sér saman um mismunandi röð varamanna eftir því hver aðalmanna hefur forfallast.
Bæjarstjóri skal sitja fundi bæjarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt en ekki hefur hann atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn bæjarfulltrúi.
Bæjarstjórn getur heimilað að maður utan bæjarstjórnar kveðji sér hljóðs á bæjarstjórnarfundi.
27. gr.
Fundarsköp: Málfrelsi fundarmanna.
Bæjarfulltrúi hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á bæjarstjórnarfundum. Bæjarfulltrúi sem taka vill til máls skal óska heimildar forseta. Að jafnaði skulu bæjarfulltrúar taka til máls í þeirri röð sem þeir hafa kvatt sér hljóðs. Víkja má frá þeirri reglu ef um er að ræða bæjarstjóra, framsögumann í máli eða bæjarfulltrúa sem óskar að gera stutta athugasemd eða koma leiðréttingu á framfæri. Hafi tveir eða fleiri bæjarfulltrúar kvatt sér hljóðs samtímis ákveður forseti í hvaða röð þeir skuli tala. Bæjarfulltrúi skal flytja mál sitt úr ræðustól nema forseti leyfi annað.
28. gr.
Vanhæfi bæjarfulltrúa.
Bæjarfulltrúa ber að víkja sæti við umræður og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti þar af.
Bæjarfulltrúar eru ekki vanhæfir þegar verið er að velja fulltrúa til trúnaðarstarfa á vegum bæjarstjórnar eða ákveða þóknun fyrir slík störf.
Bæjarfulltrúar sem jafnframt eru starfsmenn bæjarfélagsins og hafa sem slíkir átt þátt í að undirbúa tiltekið mál sem lagt er fyrir bæjarstjórn eru alltaf vanhæfir þegar bæjarstjórnin fjallar um málið. Þetta á þó hvorki við um bæjarstjóra né þegar bæjarstjórn fjallar um og afgreiðir fjárhagsáætlanir og ársreikninga bæjarfélagsins.
Bæjarfulltrúa sem veit hæfi sitt orka tvímælis ber að vekja athygli bæjarstjórnar á því. Bæjarfulltrúa er heimilt við meðferð máls sem hann er vanhæfur að afgreiða að gera stuttlega grein fyrir afstöðu sinni. Bæjarstjórn sker umræðulaust úr um hvort mál er svo vaxið að einhver bæjarfulltrúa sé vanhæfur. Bæjarfulltrúi sem hlut á að máli má taka þátt í atkvæðagreiðslu um hæfi sitt.
Bæjarfulltrúi sem vanhæfur er við úrlausn máls skal yfirgefa fundarsal bæjarstjórnar við meðferð og afgreiðslu þess.
29. gr.
Fundarsköp: Takmarkanir á málfrelsi.
Bæjarfulltrúi skal beina máli sínu til forseta. Þegar til umræðu er fundargerð bæjarráðs, annarrar nefndar, ráðs eða stjórnar skal bæjarfulltrúi taka fram hvaða lið/liði fundargerðarinnar hann óskar að ræða.
Bæjarfulltrúi má tala tvisvar við hverja umræðu máls. Heimilt er þó bæjarfulltrúa að taka oftar til máls til að bera af sér ámæli eða til að gera stutta athugasemd við fundarsköp. Bæjarstjóri, flutningsmaður tillögu eða framsögumaður (talsmaður flutningsmanna) má þó tala oftar en tvisvar við hverja umræðu máls.
Ekki má bæjarfulltrúi lesa upp prentað mál við umræður í bæjarstjórn nema með leyfi forseta.
30. gr.
Fundarsköp: Vítur á bæjarfulltrúa.
Beri bæjarfulltrúi aðra menn brigslum skal forseti víta hann. Forseti getur lagt til við bæjarstjórn að bæjarfulltrúi sem víttur hefur verið tvisvar á sama fundi verði sviptur málfrelsi á þeim fundi. Skal slík tillaga afgreidd umræðulaust. Hlýðnist bæjarfulltrúi ekki úrskurði forseta eða bæjarstjórnar eða ef óregla kemur upp á fundi skal forseti gera fundarhlé, fresta fundi eða slíta fundi ef nauðsyn krefur.
31. gr.
Fundarsköp: Takmarkanir á ræðutíma.
Telji forseti umræður dragast úr hófi fram getur hann lagt fram dagskrártillögu um að ræðutími hvers bæjarfulltrúa verði takmarkaður, umræðum verði lokið á tilteknum tíma eða umræðum um mál verði lokið þá þegar. Hver bæjarfulltrúi getur og borið fram slíkar tillögur. Bæjarstjórn afgreiðir tillögur um takmörkun umræðna umræðulaust. Ekki má þó takmarka umræðu um mál svo að hún standi skemur en tvær klukkustundir ef einhver bæjarfulltrúi kveður sér hljóðs. Umræður um fjárhagsáætlun eru ekki háðar ákvæðum greinar þessarar.
32. gr.
Fundarsköp: Meðferð tillagna.
Bæjarfulltrúi getur borið fram breytingartillögu, viðaukatillögu, frávísunartillögu eða frestunartillögu við hvert það mál sem til umræðu er á fundi. Slíkar tillögur skulu vera skriflegar. Forseti ákveður í hvaða röð og með hvaða hætti slíkar tillögur eru teknar til afgreiðslu.
33. gr.
Fundarsköp: Afgreiðsla mála.
Mál er afgreitt í bæjarstjórn með því að samþykkja það eða fella það, vísa því frá bæjarstjórn eða vísa því til afgreiðslu bæjarráðs, annarrar nefndar, ráðs eða stjórnar eða bæjarstjóra. Máli sem bæjarstjórn ber að lögum að afgreiða verður þó eigi vísað til afgreiðslu annarra. Bæjarstjórn er heimilt að fresta afgreiðslu máls nema um sé að ræða mál sem að lögum ber að afgreiða fyrir tiltekinn tíma.
34. gr.
Fundarsköp: Atkvæðagreiðsla.
Atkvæðagreiðsla á bæjarstjórnarfundi fer að jafnaði fram með handauppréttingu. Forseti biður þá bæjarfulltrúa sem samþykkja mál að gefa merki þar um. Að því búnu leitar forseti mótatkvæða með sama hætti. Loks skýrir forseti frá úrslitum atkvæðagreiðslunnar.
Ef mál er svo vaxið að forseti telur ástæðulaust að atkvæðagreiðsla fari fram um það skýrir hann frá því að hann telji mál samþykkt eða fellt án atkvæðagreiðslu nema athugasemd verði við það gerð.
Forseti getur ákveðið að mál verði afgreitt með nafnakalli. Einnig ber forseta að láta fara fram nafnakall ef a.m.k. þriðjungur bæjarfulltrúa óskar þess. Við nafnakall skal farið eftir tölusettri nafnaskrá bæjarfulltrúa í stafrófsröð og skal það ráðast af útdrætti hvaða bæjarfulltrúi greiðir fyrst atkvæði við nafnakall. Við nafnakall skal forseti greiða atkvæði síðastur. Við nafnakall svarar bæjarfulltrúi, þegar forseti les upp nafn hans, já eða nei eftir því hvort hann er með máli eða móti eða tekur fram að hann greiði ekki atkvæði en slík afstaða telst þó þátttaka í atkvæðagreiðslu.
Kosningar skulu vera skriflegar og leynilegar ef þess er óskað.
35. gr.
Fundarsköp: Úrslit atkvæðagreiðslu.
Við atkvæðagreiðslu ræður einfaldur meirihluti atkvæða úrslitum máls nema öðruvísi sé ákveðið í lögum.
Verði atkvæði jöfn með máli og móti fellur það.
Kosningar sem fram fara í bæjarstjórn skulu vera hlutfallskosningar skv. dHondts reglu, sbr. 85. og 86. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998. Þegar um meirihlutakosningu er að ræða, svo sem við kjör eins fulltrúa úr hópi tveggja eða fleiri, skal kosning fara fram eins og við kosningu forseta bæjarstjórnar, sbr. 3. mgr. 19. gr. þessarar samþykktar.
36. gr.
Fundarritun fundargerð.
Bæjarstjórn getur ráðið sérstakan fundarritara utan bæjarstjórnar til að annast ritun fundargerða í gerðabók bæjarstjórnar. Í fundargerð skal getið hvar og hvenær fundur er haldinn, töluröð fundar og hverjir sitji hann. Skrá skal þau mál sem tekin eru fyrir, dagsetningu þeirra, aðila máls og meginefni og hvernig mál er afgreitt. Sé mál ekki afgreitt samhljóða skal greina í fundargerð hvernig atkvæði hafa skipst. Þegar lagðar eru fram fundargerðir nefnda nægir að skrá í fundargerð bæjarstjórnar um hvaða nefndir er að ræða, dagsetningu fundargerða og fjölda töluliða.
Í lok fundar skal fundargerð undirrituð af fundarmönnum. Einnig skal forseti bæjarstjórnar og a.m.k. einn fundarmanna setja upphafsstafi sína undir hverja blaðsíðu fundargerða sem blaðsíðusettar skulu í áframhaldandi töluröð.
Heimilt er að skrá fundargerðir í tölvu. Sé það gert skal bóka í gerðabók bæjarstjórnar númer fundar, hvar og hvenær fundurinn er haldinn og að fundargerð sé færð í tölvu. Þá skal færa í gerðabók fundarslit og greina blaðsíðutal fundargerða. Bæjarfulltrúar skulu rita nöfn sín við slit fundar í gerðabók. Undirritaðar fundargerðir skulu reglulega bundnar inn í fundargerðabók bæjarstjórnar til varanlegrar varðveislu. Mál sem tekin eru fyrir á lokuðum fundi sbr. 3. mgr. 21. gr. samþykktar þessarar skal skrá sem trúnaðarmál. Bæjarfulltrúi á rétt á að fá bókaða stutta athugasemd um afstöðu sína til máls sem til meðferðar er í bæjarstjórn. Forseti skal hafa eftirlit með því að fundargerðir séu skipulega og rétt færar.
Í lok fundar skal fundargerð lesin upp og skulu allir viðstaddir bæjarfulltrúar undirrita hana nema bæjarstjórn ákveði annað. Bæjarfulltrúi sem gera vill athugasemd við eitthvert atriði í fundargerð getur undirritað fundargerðina með fyrirvara um það atriði. Bæjarstjórn getur ákveðið að umræður á bæjarstjórnarfundum skuli hljóðritaðar eða teknar upp með öðrum hætti. Verði það ákveðið skal bæjarstjórn setja um það nánari reglur.
IV. KAFLI
Um réttindi og skyldur bæjarfulltrúa.
37. gr.
Dagskrá bæjarstjórnarfunda.
Bæjarfulltrúi á rétt á að fá mál skv. 4. og 5. gr. samþykktar þessarar tekið á dagskrá bæjarstjórnarfundar, enda tilkynni hann það bæjarstjóra skriflega a.m.k. þremur sólarhringum fyrir fund.
38. gr.
Fundarseta.
Bæjarfulltrúa er bæði rétt og skylt að sækja fundi bæjarstjórnar nema lögmæt forföll hamli, sbr. 26. gr. samþykktar þessarar. Hver bæjarfulltrúi er skyldur til að taka að sér þau störf sem bæjarstjórn felur honum og varða verkefni bæjarstjórnar, svo sem forsetastörf og störf í bæjarráði eða öðrum nefndum á vegum bæjarstjórnar. Þó getur sá sem verið hefur forseti eitt kjörtímabil eða lengur eða setið í bæjarráði eða annarri nefnd sama tímabil skorast undan kosningu jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið á hendi.
39. gr.
Lausn úr bæjarstjórn.
Nú telur bæjarfulltrúi sig ekki geta gegnt skyldum sínum í bæjarstjórn án óhæfilegs álags og getur bæjarstjórn þá létt af honum störfum eða veitt honum lausn að eigin ósk um tiltekinn tíma eða til loka kjörtímabils, sbr. 34. gr. sveitarstjórnarlaga. Varamaður tekur þá sæti hans skv. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.
40. gr.
Málfrelsi, tillöguréttur, atkvæðisréttur.
Bæjarfulltrúi hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum bæjarstjórnar eftir því sem nánar er ákveðið í samþykkt þessari.
Bæjarfulltrúa er ekki skylt að taka þátt í atkvæðagreiðslu um einstök mál. Þegar um er að ræða mál sem bæjarstjórn er að lögum skylt að afgreiða, svo sem fjárhagsáætlun, ársreikninga eða kjör fulltrúa í lögboðnar nefndir, getur forseti ákveðið að endurtaka atkvæðagreiðslu ef minna en helmingur bæjarfulltrúa tekur þátt í atkvæðagreiðslunni.
41. gr.
Hagsmunir bæjarfélagsins.
Bæjarfulltrúa ber að gegna bæjarfulltrúastörfum sínum af alúð og samviskusemi og gæta hagsmuna bæjarfélagsins en í störfum sínum er bæjarfulltrúi einungis bundinn af lögum og sannfæringu sinni.
42. gr.
Aðgangur að upplýsingum.
Bæjarfulltrúi á aðgang að bókum og skjölum bæjarins og einnig óhindraðan aðgang að stofnunum og fyrirtækjum hans á venjulegum afgreiðslutíma til upplýsingaöflunar vegna starfa sinna.
Með öll slík erindi skulu bæjarfulltrúar snúa sér til bæjarstjóra. Ákvæði þetta takmarkar þó eigi rétt bæjarfulltrúa sem tilgreindur er í 1. mgr. þessarar greinar og 30. gr. sveitarstjórnarlaga.
43. gr.
Þagnarskylda.
Bæjarfulltrúi skal gæta þagnarskyldu um það sem hann fær vitneskju um í starfi sínu og leynt á að fara vegna einka- eða almannahagsmuna samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskyldan helst áfram eftir að bæjarstjórnarmaður lætur af þeim störfum.
44. gr.
Þóknun.
Bæjarfulltrúi skal fá hæfilega þóknun úr bæjarsjóði fyrir störf sín í bæjarstjórn. Þá á hann rétt á greiðslu hæfilegs ferða- og dvalarkostnaðar.
Bæjarstjórn setur reglur um greiðslur skv. 1. mgr.
45. gr.
Orlof og fundartími.
Haga skal fundum bæjarstjórnar þannig að bæjarfulltrúar eigi möguleika á að taka sér orlof árlega, sbr. 13. gr. samþykktar þessarar.
46. gr.
Fjarvera vegna veikinda varamenn.
Bæjarfulltrúi sem vegna veikinda eða af öðrum ástæðum getur ekki sótt bæjarstjórnarfund/-fundi tímabundið skal hlutast til um að varamaður verði boðaður sbr. 1. mgr. 26. gr. þessarar samþykktar.
47. gr.
Varamenn.
Ákvæði þessa kafla um réttindi og skyldur bæjarfulltrúa gilda einnig um varamenn sem sitja bæjarstjórnarfundi.
V. KAFLI
Bæjarráð, aðrar nefndir, ráð og stjórnir.
48. gr.
Kosning í bæjarráð og nefndir.
Bæjarstjórn kýs fulltrúa í bæjarráð, aðrar nefndir, ráð og stjórnir samkvæmt ákvæðum laga, reglugerða og samþykktar þessarar. Kosningar skulu vera skriflegar og leynilegar ef þess er óskað.
Starfsmenn fyrirtækja og stofnana bæjarfélagsins eru ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra fyrirtækja eða stofnana sem þeir starfa hjá.
49. gr.
Kosning í bæjarráð.
Bæjarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum bæjarstjórnarkosningum kjósa þrjá bæjarfulltrúa í bæjarráð til eins árs og jafnmarga til vara. Aðalfulltrúar í bæjarstjórn eru einir kjörgengir sem aðalmenn og varamenn í bæjarráð.
Í þeim tilfellum sem framboðslisti á einn aðalfulltrúa í bæjarstjórn er heimilt að kjósa varamann hans sem varafulltrúa hans í bæjarráði.
Bæjarstjóri á sæti í bæjarráði með málfrelsi og tillögurétt en atkvæðisrétt hefur hann því aðeins að hann sé bæjarfulltrúi og kjörinn í bæjarráð.
Bæjarstjórn getur heimilað flokki eða framboðsaðila sem fulltrúa á í bæjarstjórn en ekki hefur fengið kjörinn bæjarráðsmann að tilnefna fulltrúa til setu í bæjarráði með málfrelsi og tillögurétt. Skylt er bæjarstjórn að gefa fulltrúa flokks/framboðsaðila sem sæti á í bæjarstjórn kost á setu í bæjarráði með málfrelsi og tillögurétt þann tíma sem fundir bæjarstjórnar falla niður vegna sumarleyfa, sbr. 13. gr. samþykktar þessarar og 38. gr. sveitarstjórnarlaga.
50. gr.
Fundartími bæjarráðs.
Bæjarráð skal að jafnaði halda fundi einu sinni í viku á hverjum mánudegi. Bæjarráðsfundir skulu að jafnaði hefjast kl. 17:00. Aukafundi skal halda ef bæjarstjóri, formaður bæjarráðs eða a.m.k. tveir bæjarráðsmenn óska þess.
51. gr.
Undirbúningur og boðun bæjarráðsfunda.
Bæjarstjóri undirbýr bæjarráðsfundi í samráði við formann bæjarráðs. Hann sér um að bæjarráð sé boðað til fundar með skriflegu fundarboði ásamt dagskrá a.m.k. hálfum sólarhring fyrir fund. Geti bæjarráðsmaður ekki sótt fund skal hann að jafnaði boða varamann sinn eða hlutast til um að varamaður verði boðaður.
52. gr.
Kosning formanns og varaformanns bæjarráðs.
Á fyrsta fundi nýkjörins bæjarráðs skal kjósa formann og varaformann bæjarráðs. Formaður bæjarráðs stjórnar fundum þess og sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum þess. Hann úrskurðar í ágreiningsmálum sem upp kunna að koma út af fundarsköpum en bera má úrskurði hans undir bæjarráð. Heimilt er að taka mál til meðferðar í bæjarráði þótt ekki sé það tilgreint í dagskrá. Þó er skylt að fresta afgreiðslu slíks máls ef einhver bæjarráðsmaður óskar þess.
Bæjarráð getur ráðið sér fundarritara utan bæjarráðs. Um ritun fundargerða bæjarráðs gilda sömu reglur og um ritun fundargerðar bæjarstjórnarinnar, sbr. 36. gr. samþykktar þessarar.
53. gr.
Bæjarráð: Fjármálastjórn og fullnaðarafgreiðsla mála.
Bæjarráð fer ásamt bæjarstjóra með framkvæmdastjórn bæjarfélagsins og fjármálastjórn að því leyti sem slík stjórn er ekki öðrum falin. Bæjarráð hefur umsjón með stjórnsýslu bæjarfélagsins, undirbúningi árlegrar fjárhagsáætlunar, semur drög að fjárhagsáætlun bæjarsjóðs og bæjarfyrirtækja að fengnum tillögum hlutaðeigandi stjórna og leggur þau fyrir bæjarstjórn í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga. Þá sér bæjarráð um að ársreikningar bæjarsjóðs séu samdir og þeir ásamt ársreikningum bæjarstofnana lagðir fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu svo sem sveitarstjórnarlög mæla fyrir um.
Bæjarráð gerir tillögur til bæjarstjórnar um afgreiðslu einstakra mála sem það fær til meðferðar. Bæjarráði er þó heimil fullnaðarafgreiðsla mála sem ekki varða verulega fjárhag bæjarsjóðs eða stofnana hans, enda sé ekki ágreiningur milli bæjarráðsmanna eða við bæjarstjóra um slíka afgreiðslu. Bæjarráð ákveður skiptingu og ráðstöfun fjár sem ætlað er til einstakra málaflokka samkvæmt fjárhagsáætlun, svo sem til gatnagerðar, nýbygginga og óvissra útgjalda.
Þá getur bæjarstjórn falið bæjarráði fullnaðarafgreiðslu mála nema lög mæli á annan veg.
54. gr.
Starfsmenn á fundi bæjarráðs.
Skylt er starfsmönnum bæjarfélagsins að sitja fundi bæjarráðs ef þess er óskað.
55. gr.
Boðun fyrsta nefndarfundar.
Bæjarstjóri boðar nefndir, ráð og stjórnir saman til fyrsta fundar eftir að þær hafa verið kjörnar eða ákveður hver annist fundarboðun nema bæjarstjórn hafi kosið formann sérstaklega. Ákveður þá formaðurinn boðun til fyrsta fundar. Á fyrsta fundi skal kjósa formann, varaformann og ritara nefndar nema lög eða samþykkt þessi kveði á um annað.
Bæjarstjóri getur kallað saman tvær eða fleiri nefndir til að ræða mál er varða starfssvið fleiri nefndar en einnar.
56. gr.
Fundarseta.
Nefndarmanni er skylt að sækja fundi nema lögmæt forföll hamli. Þegar aðalmaður í nefnd forfallast um stundarsakir skal varamaður hans taka sæti í nefndinni. Þegar aðalmaður í nefnd flyst burt úr bæjarfélaginu, fellur frá eða forfallast á annan hátt varanlega tekur varamaður hans sæti nema bæjarstjórn ákveði að kjósa aðalmann að nýju.
Hafi tveir eða fleiri flokkar eða framboðsaðilar haft samstarf um nefndarkosningar skal sá sem tilnefndi viðkomandi nefndarmann einnig tilnefna varamann hans sé eigi öðruvísi ákveðið í yfirlýsingu skv. 2. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.
57. gr.
Lokaðir fundir.
Nefndarfundur skal haldinn fyrir luktum dyrum. Nefnd getur kvatt á sinn fund einstaka starfsmenn bæjarfélagsins. Enn fremur getur nefnd boðið aðila að koma á sinn fund til viðræðna um tiltekin mál.
58. gr.
Fundarstjórn.
Formaður nefndar stýrir fundum. Ákvæði III. og IV. kafla samþykktar þessarar gilda um meðferð mála í nefndum, ráðum og stjórnum bæjarfélagsins, eftir því sem við á.
59. gr.
Hlutverk og valdsvið nefnda.
Um hlutverk og valdsvið nefnda, ráða og stjórna á vegum bæjarfélagsins fer eftir því sem ákveðið er í lögum, reglugerðum eða samþykktum bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn getur falið nefnd fullnaðarafgreiðslu einstakra mála eða málaflokka nema slíkt vald sé að lögum sérstaklega falið bæjarstjórn til ákvörðunar.
60. gr.
Fundargerðir.
Nefndir, ráð og stjórnir bæjarfélagsins skulu halda gerðabækur. Kjörinn ritari nefndar skal færa fundargerð í gerðabók. Nefnd getur þó ráðið sér sérstakan fundarritara utan nefndar. Um ritun fundargerða nefnda, ráð og stjórna gilda sömu reglur og um ritun fundargerðar bæjarstjórnarinnar, sbr. 36. gr. samþykktar þessarar.
61. gr.
Afgreiðsla fundargerða nefnda, ráða og stjórna.
Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna bæjarfélagsins skulu að jafnaði teknar á dagskrá bæjarstjórnar og skal það gert svo fljótt sem unnt er að afloknum nefndarfundi. Ef fundargerðir innihalda ekki ályktanir eða tillögur sem þarfnast sérstakrar staðfestingar bæjarstjórnar eru fundargerðirnar lagðar fram til kynningar. Ef ályktanir eða tillögur þarfnast staðfestingar bæjarstjórnarinnar ber að taka þær sérstaklega fyrir.
Ályktun nefndar, ráðs eða stjórnar sem hefur í för með sér útgjöld utan ramma fjárhagsáætlunar skal ætíð lögð fyrir bæjarráð og síðan bæjarstjórn til endanlegrar afgreiðslu.
62. gr.
Nefndir, ráð, stjórnir, tilnefningar og kosningar.
Bæjarstjórn kýs í eftirtaldar nefndir, ráð og stjórnir:
A. Nefndir. Hér er um að ræða fagnefndir sem sinna faglegu starfi þeirra málaflokka sem þeim hafa verið falin af bæjarstjórn með erindisbréfum.
1. Bæjarráð. Bæjarstjórn kýs þrjá bæjarfulltrúa og þrjá til vara í bæjarráð skv. 38. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Bæjarráð er kosið árlega. Kjósa skal í bæjarráð á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og síðan árlega í júní ár hvert. Ákvæði 49. gr. samþykktar þessarar gilda um þá flokka eða framboðsaðila sem fulltrúa eiga í bæjarstjórn en ekki fá kjörinn bæjarráðsmann. Auk verkefna sem tilgreind eru í erindisbréfi bæjarráðs fer bæjarráð með verkefni kjaranefndar, starfskjaranefndar og húsnæðisnefndar samkvæmt lögum um húsnæðismál nr. 44/1998.
2. Fræðslunefnd. Bæjarstjórn kýs fimm fulltrúa og jafnmarga til vara í fræðslunefnd. Bæjarstjórn kýs nefndinni formann og varaformann. Nefndin er kosin á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil hennar hið sama og bæjarstjórnar. Fræðslunefnd fer með málefni leikskóla samkvæmt leikskólalögum nr. 78/1994, grunnskóla samkvæmt grunnskólalögum nr. 66/1995, tónlistarskóla samkvæmt lögum um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla nr. 75/1985 og samstarfssamningum um rekstur hans hverju sinni og framhaldsskóla samkvæmt ákvæðum framhaldsskólalaga nr. 80/1996 og samstarfssamningum sem gilda um rekstur framhaldsskóla hverju sinni. Nefndin fer jafnframt með íþrótta- og æskulýðsmál í bæjarfélaginu, þar með talin íþróttamannvirki, málefni félagsmiðstöðva og vinnuskóla. Auk verkefna sem fræðslunefnd hefur með höndum samkvæmt lögum getur bæjarstjórn falið henni ýmis verkefni með erindisbréfum.
3. Menningarmálanefnd. Bæjarstjórn kýs þrjá fulltrúa og jafnmarga til vara í menningarmálanefnd. Bæjarstjórn kýs nefndinni formann og varaformann. Nefndin er kosin á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil hennar hið sama og bæjarstjórnar. Nefndin fer með málefni bókasafna samkvæmt ákvæðum laga um almenningsbókasöfn nr. 36/1997, einnig annarra safna, svo sem listasafna. Nefndin tilnefnir fulltrúa í stjórn héraðsskjalasafns og Byggðasafns Vestfjarða. Tilnefningar nefndarinnar eru háðar samþykki bæjarstjórnar. Nefndin er bæjarstjórn til ráðuneytis um verndun gamalla húsa og fornra minja samkvæmt þjóðminjalögum. Nefndin fer jafnframt með vinabæjarsamskipti, hátíðahöld og málefni félagsheimila. Auk verkefna sem menningarmálanefnd hefur með höndum samkvæmt lögum getur bæjarstjórn falið henni ýmis verkefni með erindisbréfum.
4. Félagsmálanefnd. Bæjarstjórn kýs fimm fulltrúa og jafnmarga til vara í félagsmálanefnd, sbr. lög um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991. Bæjarstjórn kýs nefndinni formann og varaformann. Félagsmálanefnd er kosin á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil hennar hið sama og bæjarstjórnar. Félagsmálanefnd fer með verkefni barnaverndarnefndar, sbr. lög um vernd barna og ungmenna nr. 58/1992 og jafnréttisnefndar samkvæmt lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 96/2000. Þá hefur félagsmálanefnd umsjón með daggæslu í heimahúsum, með framkvæmd barnaverndarlaga, málefnum fatlaðra og málefnum aldraðra, sbr. lög um málefni aldraðra nr. 125/1999. Félagsmálanefnd annast yfirstjórn Hlífar, íbúða aldraðra á Ísafirði. Auk verkefna sem félagsmálanefnd hefur með höndum samkvæmt lögum getur bæjarstjórn falið henni ýmis verkefni með erindisbréfum. Formaður nefndarinnar er jafnframt í þjónustuhópi aldraðra í heilsugæsluumdæminu.
5. Atvinnumálanefnd. Bæjarstjórn kýs þrjá fulltrúa og jafnmarga til vara í atvinnumálanefnd. Bæjarstjórn kýs nefndinni formann og varaformann. Nefndin er kosin á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil hennar hið sama og bæjarstjórnar. Atvinnumálanefnd starfar að atvinnu- og ferðamálum. Nefndin skal greina leiðir til að efla atvinnulíf í Ísafjarðarbæ og auka samkeppnishæfni þess. Nefndin gerir tillögur til bæjarstjórnar um aðgerðir og úrbætur í atvinnumálum. Atvinnumálanefnd skal stuðla að samstarfi fyrirtækja á svæðinu og nýta tengsl við hagsmunasamtök í atvinnu- og ferðamálum á svæðinu. Nefndin hefur það hlutverk að hvetja fyrirtæki og einstaklinga í atvinnurekstri, t.d. með veitingu viðurkenninga árlega.
6. Umhverfisnefnd. Bæjarstjórn kýs fimm fulltrúa og jafnmarga til vara í umhverfisnefnd. Bæjarstjórn kýs nefndinni formann og varaformann. Umhverfisnefnd er kosin á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil hennar hið sama og bæjarstjórnar. Nefndin fer með byggingar- og skipulagsmál samkvæmt skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997. Umhverfisnefnd sinnir lögbundnum verkefnum gróðurverndarnefndar samkvæmt lögum um landgræðslu nr. 17/1965, náttúruverndarnefndar samkvæmt náttúruverndarlögum nr. 93/1996 og umferðarnefndar samkvæmt umferðarlögum nr. 50/1987. Nefndin skal í störfum sínum huga að ferlimálum fatlaðra samkvæmt lögum þar um. Auk verkefna sem umhverfisnefnd hefur með höndum samkvæmt lögum getur bæjarstjórn falið henni ýmis verkefni með erindisbréfum.
7. Landbúnaðarnefnd. Bæjarstjórn kýs þrjá fulltrúa og þrjá til vara í landbúnaðarnefnd. Bæjarstjórn kýs nefndinni formann og varaformann. Nefndin er kosin á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil hennar hið sama og bæjarstjórnar. Nefndin er bæjarstjórn til ráðuneytis um búfjárhald, dýraeftirlit, refa- og minkaeyðingu, meindýraeyðingu, fjallskil og fjárgirðingar, sbr. ákvæði gildandi laga þar um. Auk verkefna sem landbúnaðarnefnd hefur með höndum samkvæmt lögum getur bæjarstjórn falið henni ýmis verkefni með erindisbréfum.
8. Hafnarstjórn. Bæjarstjórn kýs fimm fulltrúa og jafnmarga til vara í hafnarstjórn samkvæmt lögum um hafnamál nr. 23/1994. Bæjarstjórn kýs hafnarstjórn formann og varaformann. Formaður nefndarinnar skal kjörinn úr röðum bæjarfulltrúa. Stjórnin er kosin á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil hennar hið sama og bæjarstjórnar. Auk verkefna sem hafnarstjórn hefur með höndum samkvæmt lögum getur bæjarstjórn falið henni ýmis verkefni með erindisbréfum.
9. Kjörstjórnir. Bæjarstjórn kýs þrjá fulltrúa og jafnmarga til vara í yfirkjörstjórn, sbr. 15. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000 og 14. gr. laga um sveitarstjórnarkosningar nr. 5/1998. Undirkjörstjórnir jafnmargar og kjördeildir eru: Þrír aðalmenn í hverja og jafnmargir varamenn. Yfirkjörstjórn er kosin á fyrsta fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil hennar hið sama og bæjarstjórnar. Kjörstjórnir fara með þau verkefni sem þeim eru falin samkvæmt ákvæðum fyrrgreindra laga.
B. Stjórnir og samstarfsráð. Hér er um að ræða stjórnir stofnana með sjálfstæðan fjárhag og tilnefningar í samstarfsráð sem hafa endanlegt ákvörðunarvald í málefnum sínum, þ.e.a.s. þurfa ekki staðfestingu bæjarstjórnar til að koma málum í framkvæmd innan ákveðins fjárhagslegs ramma. Kjörtímabil þeirra er samkvæmt samþykktum um stjórn viðkomandi stofnunar.
1. Almannavarnanefnd. Samkvæmt ákvæðum laga og reglugerða um skipan almannavarna nr. 94/1962 kýs bæjarstjórn aðal- og varafulltrúa í almannavarnanefnd á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil þeirra hið sama og bæjarstjórnar.
2. Heilbrigðisnefnd. Sveitarstjórnirnar á svæðinu kjósa sameiginlega fimm aðalmenn og jafnmarga til vara í nefndina skv. 11. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998.
C. Tilnefningar og kosningar. Kosnir fulltrúar á ársþing og ársfundi stofnana sem bærinn á aðild að.
1. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga. Samkvæmt lögum um Samband íslenskra sveitarfélaga kýs bæjarstjórn aðal- og varafulltrúa á landsþing sambandsins. Fulltrúar bæjarfélagsins eru kosnir á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil þeirra hið sama og bæjarstjórnar.
2. Fulltrúaráð Brunabótafélags Íslands. Bæjarstjórn kýs aðal- og varafulltrúa í fulltrúaráð Brunabótafélags Íslands samkvæmt lögum um Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands. Fulltrúar bæjarfélagsins eru kosnir á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil þeirra hið sama og bæjarstjórnar.
3. Fjórðungssamband Vestfirðinga. Bæjarstjórn kýs aðal- og varafulltrúa á aðalfund Fjórðungssambands Vestfirðinga samkvæmt lögum sambandsins.
D. Lögbundin kosning embættismanna. Samkvæmt lögum ber bæjarstjórn að kjósa eftirtalda embættismenn.
1. Skoðunarmenn bæjarsjóðsreikninga. Bæjarstjórn kýs tvo skoðunarmenn og jafnmarga til vara samkvæmt sveitarstjórnarlögum. Skoðunarmenn bæjarsjóðsreikninga eru kosnir á fyrsta fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil þeirra hið sama og bæjarstjórnar.
E. Verkefnabundnar nefndir. Bæjarstjórn getur kosið nefndir (lausanefndir) til að vinna að einstökum afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda fellur niður við lok kjörtímabils bæjarstjórnarinnar og fyrr ef verkefni nefndar er lokið. Bæjarstjórn getur þó afturkallað umboð slíkra nefnda hvenær sem er. Bæjarstjórn útbýr erindisbréf fyrir nefndina þar sem hlutverk og staða nefndarinnar er skilgreint.
F. Kjörtímabil nefnda. Sé kjörtímabil nefndar ekki sérstaklega tekið fram er það hið sama og bæjarstjórnar.
VI. KAFLI
Um framkvæmdastjórn og starfslið bæjarfélagsins.
63. gr.
Ráðning bæjarstjóra.
Bæjarstjórn ræður bæjarstjóra. Gera skal skriflegan ráðningarsamning við bæjarstjóra þar sem m.a. skal kveðið á um ráðningartíma hans, kaup og kjör. Ráðningarsamningur skal staðfestur af bæjarstjórn.
64. gr.
Hlutverk bæjarstjóra.
Bæjarstjóri er framkvæmdastjóri bæjarfélagsins. Hann undirbýr fundi bæjarráðs og bæjarstjórnar, semur dagskrá og boðar til fundar, sbr. 15. gr. samþykktar þessarar. Hann á sæti á fundum bæjarstjórnar/bæjarráðs og hefur þar málfrelsi og tillögurétt en eigi atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn fulltrúi í bæjarstjórn eða bæjarráði. Hann hefur og rétt til setu á fundum nefnda bæjarfélagsins með sömu réttindum.
Bæjarstjóri hefur með höndum málefni bæjarfélagsins og framkvæmd ákvarðana bæjarstjórnar að svo miklu leyti sem bæjarstjórn ákveði ekki annað.
Bæjarstjóri er prókúruhafi bæjarsjóðs. Hann undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna bæjarfélagsins, lántökur og aðrar skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki bæjarstjórnarinnar þarf til. Bæjarstjóra er heimilt með samþykki bæjarstjórnarinnar að veita öðrum starfsmanni bæjarfélagsins prókúru.
Bæjarstjóri er æðsti yfirmaður starfsliðs bæjarfélagsins.
Bæjarritari er staðgengill bæjarstjóra í forföllum hans nema bæjarstjórn ákveði annað.
65. gr.
Ráðning stjórnenda.
Bæjarstjórn ræður fasta starfsmenn í helstu stjórnunarstöður, svo sem yfirmenn stofnana og deilda bæjarfélagsins, og veitir þeim lausn frá störfum.
66. gr.
Ráðning starfsmanna.
Viðkomandi ráð og nefndir ráða aðra fasta starfsmenn en þá sem greinir í 65. gr. að fenginni umsögn forstöðumanns nema á annan veg sé mælt í reglugerð eða reglum sem bæjarstjórn hefur sett.
67. gr.
Fastráðnir starfsmenn.
Fastráðnir starfsmenn bæjarfélagsins skulu ráðnir til óákveðins tíma með gagnkvæmum þriggja mánaða uppsagnarfresti miðað við mánaðamót.
Gera skal skriflegan ráðningarsamning við fastráðna starfsmenn þar sem m.a. skal kveðið á um ráðningartíma og uppsagnarfrest, sbr. 1. mgr., svo og starfssvið þeirra. Um starfskjör, réttindi og skyldur fer eftir ráðningarsamningi og/eða gildandi kjarasamningum.
68. gr.
Lausráðnir starfsmenn.
Um ráðningu lausráðinna starfsmanna fer eftir reglum sem bæjarstjórn setur. Um starfskjör, réttindi og skyldur fer eftir ráðningarsamningi og/eða kjarasamningum viðkomandi stéttarfélaga.
Samþykkt þessi, sem bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hefur sett samkvæmt ákvæðum 10. og 25. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi samþykkt um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 173/1998.
Félagsmálaráðuneytinu, 5. mars 2001,
F.h.r.