Íþróttafélagið Höfrungur

Þingeyri

 

kynnir

Bikarkeppni KSÍ 2007

 

Íþróttafélagið Höfrungur

gegn

Ungmennafélagi Grundarfjarðar

 

Grundarfjarðarvelli, Grundarfirði


 

Föstudaginn 11. maí

Klukkan 18:00

 

 

 

 

 

Meistaraflokkur Höfrungs í knattspyrnu.

Allt frá því að Íþróttamiðstöðin á Þingeyri var tekin í notkun 1996 hafa knattspyrnuáhugamenn og –konur á öllum aldri komið reglulega og óreglulega saman  til að leika knattspyrnu í Íþróttamiðstöðinni.

Stærsti og helsti knattspyrnuviðburður á Þingeyri hingað til hefur verið hið árlega Jólamót Höfrungs í innanhúsknattspyrnu.

Síðustu tvö til þrjú ár hefur hópurinn sem hittist á fimmtudögum í fótbolta kennt sig við meistaraflokk Höfrungs í knattspyrnu: Upphaflega sem ákveðinn húmor meðal hópsins en hefur nú vafið uppá sig og nú ber hópurinn svo sannarlega nafn með réttu.

 

Með tilkomu grasvallar í fullri stærð á Þingeyri í kjölfar 100 ára afmælis Höfrungs árið 2004 opnuðust nýjir möguleikar, þ.á.m. möguleiki á að leika alvöru kappleik á nýjum grasvelli á Þingeyri.

Forráðamenn mfl. Höfrungs sáu fljótlega að möguleikinn lá í þátttöku í Bikarkeppni KSÍ. Hugmyndin hefur því kraumað meðal knattspyrnuáhugamanna á Þingeyri í nokkur misseri. Nú er kominn viðburður sem án efa er toppurinn á knattspyrnuíþróttinni á Þingeyri og til stendur að gera þátttöku Höfrungs í „Bikarævintýrinu” að árlegum viðburði.

 

 

Bikarævintýri Höfrungs - hugmynd verður að veruleika.

Í vetur var kominn tími til að hætta að hugsa (J) og framkvæma! Í janúar var Höfrungur skráður til leiks í Bikarkeppni KSÍ og nú skyldi reyna á hugmyndina. Að því ógleymdu að aldrei fyrr í 103 ára sögu félagsins hafði Höfrungur verið skráður til leiks í Bikarkeppni KSÍ.

Skv. fyrirkomulagi KSÍ er fyrsta umferðin í bikarkeppninni svæðisbundin, þ.e. lið á sama svæði mætast og keppa um áframhaldandi þátttökurétt. Að því gefnu var næsta víst að Höfrungur myndi mæta sameiginlegu liði BÍ/Bolungarvík – spurningin var bara sú; Yrði leikið á Ísafirði eða á Þingeyri?

BÍ/Bolungarvík sendi hins vegar ekki lið til keppni og því fór Höfrungur í „pottinn” með öllu Suður- og Vesturlandi. Niðurstaðan úr fyrsta drætti var leikur gegn Umf. Grundarfirði á Grundarfirði 11. maí. n.k. Þann dag má segja að hugmyndin verði að veruleika.

Þungamiðja hugmyndarinnar var að fá alvöru kappleik á Þingeyri og um leið spila vígsluleik á „nýjum” grasvelli á Þingeyri. Hugmyndin verður því fullkomnuð með sigri á Grundarfirði því þá liggur fyrir að næsti leikur Höfrungs verður heima í héraði – á Þingeyri gegn Snæfelli.

Til gamans má geta að leikur Höfrungs og Grundarfjarðar er fyrsti leikur í Íslandsmótum KSÍ 2007.

 

Ungmennafélag Grundarfjarðar

Andstæðingar Höfrungs keppa undir merkjum Ungmennafélags Grundarfjarðar. Liðið er þó að öllu leyti skipað leikmönnum utandeildarliðsins Vatnsberans í Reykjavík. Forsvarsmenn Vatnsberans hafa tengsl til Grundarfjarðar og því fengu þeir nafn Umf. Grundarfjarðar „lánað” til að geta skráð sig í bikarkeppnina. Hægt er að sjá meira um andstæðinga Höfrungs á vefsíðunni;

http://www.blog.central.is/vatnsberar

 

Hvað er VISA-bikarkeppni KSÍ.

Bikarkeppni KSÍ er úrsláttarkeppni þar sem öll íþróttafélög og ungmennafélög geta skráð meistaraflokk (karla- og/eða kvennalið) til keppni í knattspyrnu. Þau lið sem eru skráð til leiks eru sett í pott og svo eru tvö og tvö lið dregin saman – það lið sem sigrar leikinn heldur áfram í keppninni – tapliðið er úr leik. Þannig er keppt og dregið í nokkrar umferðir þangað til sextán lið eru eftir. Þá bætast við sextán efstu liðin úr deildarkeppninni á Íslandsmótinu frá árinu áður, liðin í í úrvalsdeild og sex efstu liðin í 1. deild. Fara þá fram 32-liða úrslit, því næst 16-liða úrslit o.s.frv. uns tvö lið standa eftir sem leika til úrslita á Laugardalsvelli í lok september ár hvert.   

 

Íþróttafélagið Höfrungur

Leikmannahópur mfl.

Fæðingarár & fyrri félög.

1.     Bergur Torfason

·        1986

2.     Dominik Bochra

·        1977

3.     Ellert Örn Erlingsson

·        1975 - BÍ88, Njarðvík, Víkingur R.

4.     Guðmundur Jónsson

·       1989 - Bí88

5.     Hannes Hrafn Haraldsson

·       1968 - BÍ88, UMF. Bolungarvík

6.     Helgi Már Erlingsson  

·        1979 - Víkingur R.

7.     Helgi Snær Ragnarsson       

·        1985       

8.     Hjalti Proppé Antonsson       

·        1974 - Ernir Ísafirði

9.     Jón Hálfdán Pétursson         

·        1977 - BÍ88, Úlfarnir

10. Jón Þorsteinn Sigurðsson     

·        1979       

11. Karl Kristbjarnarson             

·        1982 - BÍ88, Hvöt

12. Ólafur Auðunn Steinþórsson

·        1991       

13. Rúnar Geir Guðmundsson    

·        1976 - UMF. Bolungarvík

14. Pétur Eggert Torfason         

·        1988 - BÍ88

15. Pétur Jónsson           

·        1972 - UMF. Bolungarvík

16. Snorri Karl Birgisson  

·        1990       

17. Stefán Óskar Orlandi

·        1984 – Hamar, Selfoss

18. Steinn Ólafsson                   

·        1967 - HVÍ

19. Torfi Jóhannsson                 

·        1977 - BÍ88

20. Vilmundur Sveinsson  

·        1986 - Ýmir, Víkingur R.

21. Þór Líni Sævarsson

·        1988   

 

Ungmennafélag

Grundarfjarðar

Leikmannahópur mfl.

1.     Aðalsteinn Jósepsson

2.     Jón Frímann Eiríksson

3.     Tómas Freyr Kristjánsson

4.     Valur Tómasson

5.     Haukur Tómasson

6.     Kristinn Óli Hallsson

7.     Auðunn Gunnar Eiríksson

8.     Hafliði Guðlaugsson

9.     Bjartmar Pálmason

10. Atli Kristinsson

11. Baldur Már Vilhjálmsson

12. Haraldur Hallsteinsson

13. Karvel Pálmason

14. Daníel Freyr Gunnarsson

15. Davíð Hansson Wium

16. Olgeir Pétursson

17. Stefán Friðleifsson

18. Steingrímur G. Árnason

                                                                                

 Eftirfarandi styðja „Bikarævintýri Höfrungs 2007”

 

Bensínstöðin Ísafirði

Efnalaugin Albert

Eimskip

F & S hópbílar

Glitnir

H-prent

H.V. umboðsverslun ehf.

Hafnarbúðin

Hamraborg

Hamona Þingeyri

Hárkompaní

Húsasmiðjan

Ísafjarðarbær

Íþróttamiðstöðin Þingeyri

Jói útherji

Landflutningar - Samskip

Málningarbúðin Ísafirði

Netheimar

Sparisjóður Vestfjarða

Samkaup

Penninn

Pósturinn

Síminn

Við Fjörðinn – gistiheimili

VÍS

Vísir hf.

 

Útgefandi: Mfl. Höfrungs

Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Ellert Örn Erlingsson

Dreift í 1600 eintökum á Þingeyri og á Ísafirði.

1. árg. 1.tölublað – 9. maí 2007