|
Starfshópur um byggingu íþróttahúss á Suðureyri...
Starfshópur um byggingu
íþróttahúss á Suðureyri og framtíðanotkun félagsheimilisins á Suðureyri
Ingi Þór Ágústsson
Óðinn Gestsson
Sigurður Ólafsson
Stefán Brynjólfsson
Vernharður Jósefsson
Björn Helgason, íþrótta-og æskulýðsfulltúri situr fundi starfshópsins
Fundargerðir:
5. fundur 4. mars 2003
4. fundur 26. febrúar 2003
3. fundur 12. febrúar 2003
2. fundur 28. janúar 2003
1. fundur 14. janúar 2003
ERINDISBRÉF
STARFSHÓPS
Starfshópur um byggingu
íþróttahúss og framtíðarnotkun félagsheimilisins á Suðureyri.
Stjórnskipuleg staða
Starfshópurinn heyrir
beint undir bæjarráð. Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi og bæjarritari vinna með
starfshópnum.
Starfshópurinn skal
sjálfur kjósa sér formann, og ritara á fyrsta fundi sínum. Íþrótta- og
æskulýðsfulltrúi boðar hópinn til fyrsta fundar.
Tillögur starfshópsins
verða nýttar í vinnu viðkomandi nefnda og bæjarstjórnar. Það verður
bæjarstjórnar að ákveða endanlega hvernig tillögurnar verða nýttar.
Í starfshópnum eiga
sæti 5 fulltrúar. Einn frá tæknideild, einn frá fræðslunefnd, einn frá íþrótta-
og æskulýðsnefnd, einn tilnefndur af íþróttafélaginu Stefni á Suðureyri og einn
sem fulltrúi íbúa á Suðureyri, tilnefndur af bæjarstjóra.
Hlutverk
Hlutverk starfshópsins
er:
- Að koma með tillögur um hentugt
húsnæði til íþróttaiðkunar- og kennslu á Suðureyri.
- Að gera samanburð á byggingarkostnaði
með því að leita upplýsinga hjá sveitarfélögum sem hafa byggt sambærileg hús og
með því að fá upplýsingar frá fyrirtækum / verktökum sem selja og byggja slík
hús.
- Að koma með tillögur um hlutverk
hússins. Í því felst tillaga um hvort húsið skuli vera fjölnotahús og hvort það
eigi að nýtast sem félagsheimili auk þess að vera íþróttahús.
- Að koma með tillögur um
framtíðarhlutverk núverandi félagsheimilis á Suðureyri að teknu tilliti til
tillagna um hlutverk íþróttahúss. Einnig verði tillögur um rekstrarform og
rekstraraðila sé það skoðun starfshópsins að núverandi félagsheimili skuli rekið
áfram sem félagsheimili og íþróttahús.
- Að leita eftir samstarfsaðilum við
byggingu húsnæðisins, s.s. íþróttafélag, fyrirtæki á Suðureyri o.fl. sem sjá
sér hag í að leggja til fjármagn við byggingu á slíku húsi.
Starfshættir
Um starfshætti nefnda er
sérstaklega getið í III. og V. kafla samþykktar um stjórn og fundarsköp
Ísafjarðarbæjar og skal þeim fylgt eftir því sem við á. Þar eru sérstök
ákvæði um verkefnabundnar nefndir (starfshópa)
Starfshópurinn skal
halda gerðabók. Kjörinn ritari færir fundargerð. Í fundargerð skal getið hvar
og hvenær fundur er haldinn, töluröð fundar og hverjir sitji hann. Skrá skal einstök
mál sem tekin eru fyrir, dagsetningu þeirra, aðila máls og meginefni og hvernig mál
er afgreitt. Sé mál ekki afgreitt samhljóða skal greina í fundargerð hvernig
atkvæði hafa skipst. Í lok fundar skal fundargerð lesin upp og undirrituð af
fundarmönnum. Einnig skal formaður nefndar og einn nefndarmanna setja upphafsstafi
sína undir hverja blaðsíðu fundargerða, sem blaðsíðusettar skulu í áframhaldandi
töluröð.
Heimilt er að skrá
fundargerðir í tölvu. Sé það gert skal bóka í gerðabók íþrótta- og
æskulýðsnefndar númer fundar, hvar og hvenær fundurinn er haldinn og að
fundargerð sé færð í tölvu. Þá skal færa í gerðabók fundarslit og greina blaðsíðutal
fundargerða. Nefndarmenn skulu rita nöfn sín við slit fundar í gerðabók. Fundarmenn
fá afrit af fundargerð nefndarinnar í lok fundar.
Formaður sér um boðun
funda í samræmi við ákvörðun starfshópsins um fundartíma.
Starfstími.
Starfshópurinn skal
ljúka störfum sem fyrst og skila tillögum eigi síðar en 15. mars 2003.
Samþykkt á 131.
fundi bæjarstjórnar
Ísafjarðarbæjar 21. nóvember 2002
Halldór Halldórsson
- bæjarstjóri -
|