Villa kom upp í tengingu við gagnagrunn! Ísafjarðarbær
Ísafjörður
Bæjarstjórn
Bæjarstjóri
Nefndir
Stjórnsýslusvið
Fjármálasvið
Skóla- og fjölskylduskrifstofa
Umhverfissvið
Hafnarmálasvið
Netföng
Skjöl
Greinar
Eyðublöð
Almenningssamgöngur
Laus störf
Gjaldskrár
Myndir og kort
Vefir
Um Ísafjarðarbæ
Forsíða

Ísafjarðarbær
Stjórnsýsluhúsinu
Pósthólf 56
400 Ísafjörður
kt. 540596-2639
Sími: 450 8000
Fax: 450 8008
Banki: 156-26-60

Starfshópur um byggingu íþróttahúss á Suðureyri...

Undirbúningshópur vegna byggingar framtíðarhúsnæðis fyrir Grunnskólann á Ísafirði

Skarphéðinn Jónsson skólastjóri
Sigurður Mar Óskarsson, bæjartæknifræðingur
Kristján Kristjánsson, formaður umhverfisnefndar
Svanlaug Guðnadóttir, formaður fræðslunefndar

Fundargerðir:

2. fundur 27. janúar  2003
1. fundur 13. janúar  2003


ERINDISBRÉF STARFSHÓPS

Undirbúningshópur vegna byggingar framtíðarhúsnæðis fyrir Grunnskólann á Ísafirði.

Stjórnskipuleg staða

Starfshópurinn heyrir beint undir bæjarráð og skal vera í nánu samstarfi við fræðslunefnd.

Starfshópurinn skal sjálfur kjósa sér formann og ritara á fyrsta fundi sínum. Bæjarritari kalli hópinn saman til fyrsta fundar.

Tillögur starfshópsins verða nýttar í vinnu viðkomandi nefnda og bæjarstjórnar. Bæjarstjórn tekur endanlega ákvörðun um hvernig tillögurnar skulu nýttar.

Í starfshópnum eiga sæti 4 fulltrúar. Einn frá Grunnskólanum á Ísafirði, einn frá tæknideild, einn frá umhverfisnefnd og einn frá fræðslunefnd.

Hlutverk

Hlutverk starfshópsins er:

  • Að fara yfir tillögur úr arkitektasamkeppni og kostnaðargreina þær.
  • Að koma með tillögur ef viðbótarkostir koma til greina, þ.e. aðrir kostir en skilgreindir eru í tillögum arkitekta en gætu reynst hagkvæmir að mati starfshópsins.
  • Að forgangsraða áföngum varðandi byggingu húsnæðis fyrir skólann.
  • Að skipta verkinu niður á það marga áfanga að kostnaður dreifist á árafjöldann 8-12 ár í heild en hægt sé að sameina áfanga ef verkið þarf að vinnast á styttri tíma.

Starfshættir

Um starfshætti nefnda er sérstaklega getið í III. og V. kafla samþykktar um stjórn og fundarsköp Ísafjarðarbæjar og skal þeim fylgt eftir því sem við á. Þar eru sérstök ákvæði um verkefnabundnar nefndir (starfshópa)

Starfshópurinn skal halda gerðabók. Kjörinn ritari færir fundargerð. Í fundargerð skal getið hvar og hvenær fundur er haldinn, töluröð fundar og hverjir sitji hann. Skrá skal einstök mál sem tekin eru fyrir, dagsetningu þeirra, aðila máls og meginefni og hvernig mál er afgreitt. Sé mál ekki afgreitt samhljóða skal greina í fundargerð hvernig atkvæði hafa skipst. Í lok fundar skal fundargerð lesin upp og undirrituð af fundarmönnum. Einnig skal formaður nefndar og einn nefndarmanna setja upphafsstafi sína undir hverja blaðsíðu fundargerða, sem blaðsíðusettar skulu í áframhaldandi töluröð.

Heimilt er að skrá fundargerðir í tölvu. Sé það gert skal bóka í gerðabók íþrótta- og æskulýðsnefndar númer fundar, hvar og hvenær fundurinn er haldinn og að fundargerð sé færð í tölvu. Þá skal færa í gerðabók fundarslit og greina blaðsíðutal fundargerða. Nefndarmenn skulu rita nöfn sín við slit fundar í gerðabók. Fundarmenn fá afrit af fundargerð nefndarinnar í lok fundar.

Formaður sér um boðun funda í samræmi við ákvörðun starfshópsins um fundartíma.

Starfstími.

Starfshópurinn skal ljúka störfum sem fyrst og eigi síðar en um miðjan mars 2003.

Samþykkt á 131. fundi bæjarstjórnar
Ísafjarðarbæjar 21. nóvember 2002
Halldór Halldórsson
- bæjarstjóri -


Ritstjóri - Umsjón Snerpa ehf.