|
Atvinnumálanefnd Ísafjarðarbæjar
Fundargerðir Netfang
atvinnumálanefndar: atv@isafjordur.is
Rafrænt
samfélag (verkefnislýsing)
| Elías Guðmundsson, formaður |
D |
Aðalgötu 16, Suðureyri |
456 6299 |
|
| Gísli H. Halldórsson |
D |
Tangagötu 6, Ísafirði |
456 3856 |
|
| Kristján G. Jóhannsson, varaf. |
B |
Hafnarstræti 7 Ísafirði |
456 3512 |
Netfang |
| Magnús Reynir Guðmundsson |
F |
Skipagötu 2, Ísafirði |
456 3783 |
|
| Björn Davíðsson |
S |
Mánagötu 6, Ísafirði |
456 4792 |
Netfang |
| Varamenn: |
|
|
|
|
| Áslaug J. Jensdóttir |
D |
Austurvegi 7, Ísafirði |
456 3868 |
|
| Friðbjörn Óskarsson |
D |
Bakkavegi 37, Hnífsdal |
456 3727 |
|
| Bjarki Bjarnason |
B |
Seljalandsvegi 4, Ísafirði |
456 3921 |
|
| Magnús S. Jónsson |
F |
Túngötu 17, Suðureyri |
456 6119 |
|
| Guðrún A. Finnbogadóttir |
S |
Hjallavegi 26a, Ísafirði |
456 3905 |
|
Rúnar Óli Karlsson atvinnu- og staðardagskrárfulltrúi runaroli@isafjordur.is
Erindisbréf nefnda
Atvinnumálanefnd
Stjórnskipuleg staða
Nefndin heyrir beint undir bæjarstjórn. Atvinnu- og
staðardagskrárfulltrúi starfar með nefndinni.
Nefndin starfar á stjórnsýslusviði, sem er undir stjórn
bæjarritara.
Skipan nefndarinnar
Bæjarstjórn kýs þrjá fulltrúa og jafnmarga til vara í
atvinnumálanefnd. Nefndin er kosin á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar
bæjarstjórnar og er kjörtímabil hennar hið sama og bæjarstjórnar skv. ákvæðum
sveitarstjórnarlaga og samþykktar um stjórn og fundarsköp Ísafjarðarbæjar.
Auk kjörinna fulltrúa eiga bæjarstjóri, bæjarritari og atvinnu-
og staðardagskrárfulltrúi rétt á að sitja fundi nefndarinnar með málfrelsi og
tillögurétti. Þá er heimilt að kalla til á fundi nefndarinnar sérhvern þann er
tengist málum sem fjallað er um hverju sinni. Starfsmönnum stofnana bæjarins er skylt
að sitja fundi atvinnumálanefndar sé þess óskað.
Bæjarstjórn kýs nefndinni formann og varaformann, en nefndin kýs
sér ritara á fyrsta fundi sínum.
Hlutverk
Hlutverk nefndarinnar er:
· að vera bæjarstjórn til ráðgjafar og veita umsögn í atvinnu- og
ferðamálum;
· að vera tengiliður bæjarstjórnar og atvinnulífs;
· að vinna í samræmi við stefnumótun Ísafjarðarbæjar í atvinnumálum;
· að stuðla að því að aðstæður til reksturs fyrirtækja í
Ísafjarðarbæ séu eins og best gerist á landinu;
· að hafa yfirsýn yfir atvinnulíf í Ísafjarðarbæ, fylgjast með þróun,
stöðu og horfum í atvinnumálum bæjarins;
· að fylgjast með framkvæmd laga og reglugerða er snerta starfssvið
nefndarinnar;
· að gera tillögur til bæjarstjórnar um útgjaldaliði á sviði atvinnu-
og ferðamála;
· að afla tiltækra upplýsinga, m.a. í samstarfi við aðrar nefndir, um
þau atriði sem mestu máli skipta varðandi atvinnuaðstæður og byggðaþróun;
· að eiga náið samstarf við Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða;
· að eiga samstarf við Ferðamálasamtök Vestfjarða eftir því sem við
á, sem og önnur hagsmunasamtök í atvinnu- og ferðamálum á svæðinu;
· að standa fyrir almennum fundum og annarri kynningu um atvinnu- og
ferðamál;
· að fylgjast með atvinnuhorfum og vinna ásamt bæjarstjórn gegn almennu
atvinnuleysi;
· að hvetja fyrirtæki og einstaklinga í atvinnurekstri, t.d. með veitingu
viðurkenninga;
· að fjalla um önnur þau mál sem bæjarstjórn felur henni.
Meginhlutverk atvinnumálanefndar er stefnumótun, en í minna
mæli afgreiðsla einstakra mála. Nefndin setur starfsmönnum sem með nefndinni starfa,
starfssreglur um afgreiðslu mála.
Starfshættir
Um starfshætti nefnda er sérstaklega getið í III. og V. kafla
samþykktar um stjórn og fundarsköp Ísafjarðarbæjar og skal þeim fylgt eftir
því sem við á.
Atvinnumálanefnd kemur saman fyrir luktum dyrum á fastákveðnum
fundartíma að minnsta kosti einu sinni í mánuði. Skal nefndin gera samþykkt um
þennan fundartíma á sínum fyrsta fundi að höfðu samráði við bæjarstjóra.
Nefndin skal halda gerðabók. Kjörinn eða ráðinn ritari
færir fundargerð. Í fundargerð skal getið hvar og hvenær fundur er haldinn,
töluröð fundar og hverjir sitji hann. Skrá skal einstök mál sem tekin eru
fyrir, dagsetningu þeirra, aðila máls og meginefni og hvernig mál er afgreitt. Sé
mál ekki afgreitt samhljóða skal greina í fundargerð hvernig atkvæði hafa skipst.
Í lok fundar skal fundargerð lesin upp og undirrituð af fundarmönnum. Einnig
skal formaður nefndar og einn nefndarmanna setja upphafsstafi sína undir hverja
blaðsíðu fundargerða, sem blaðsíðusettar skulu í áframhaldandi töluröð.
Heimilt er að skrá fundargerðir í tölvu. Sé það gert
skal bóka í gerðabók atvinnumálanefndar númer fundar, hvar og hvenær
fundurinn er haldinn og að fundargerð sé færð í tölvu. Þá skal færa í
gerðabók fundarslit og greina blaðsíðutal fundargerða. Nefndarmenn skulu rita
nöfn sín við slit fundar í gerðabók. Fundarmenn fá afrit af fundargerð
nefndarinnar í lok fundar.
Formaður og/eða atvinnu- og staðardagskrárfulltrúi sér um boðun
funda í samráði við bæjarritara. Fundarboðun skal vera skrifleg og tilgreina
fundarstað, tíma og dagskrá. Fundarboð skal sent fulltrúum og öðrum sem
seturétt hafa á fundum eigi síðar en einum sólarhring fyrir fund.
Formaður stýrir fundum nefndarinnar skv. ákvæðum III. og V. kafla
samþykkta um stjórn og fundarsköp Ísafjarðarbæjar.
Fundur telst ályktunarhæfur ef meirihluti nefndarinnar er mættur
á fundi. Í atkvæðagreiðslu ræður afl atkvæða. Mál telst fallið í
atkvæðagreiðslu ef atkvæði falla að jöfnu.
Eftirfylgni
Atvinnumálanefnd og atvinnu- og staðardagskrárfulltrúi hafa með höndum framkvæmd
þeirrar stefnu sem mótuð hefur verið á hverjum tíma varðandi verkefni nefndarinnar.
Formaður og aðrir fulltrúar í atvinnumálanefnd skulu snúa sér til bæjarstjóra
til að fylgja eftir þeim ákvörðunum og samþykktum nefndarinnar.
Réttindi og skyldur fulltrúa
Um réttindi og skyldur fulltrúa í atvinnumálanefnd gilda ákvæði
sveitarstjórnarlaga og samþykktar um stjórn og fundarsköp Ísafjarðarbæjar, eftir
atvikum.
Fulltrúa er skylt að sækja fundi nema lögmæt forföll
hamli. Skal hann boða staðgengil sinn og láta formann nefndarinnar vita um forföll
með góðum fyrirvara.
Hver fulltrúi á rétt á að koma máli á dagskrá fundar,
enda skilar hann efni þess til formanns a.m.k. tveimur sólarhringum fyrir fund.
Fundarmenn skulu hafa hag bæjarins að leiðarljósi við
störf sín í nefndinni en eru ekki bundnir af öðru en sannfæringu sinni, lögum og
samþykktum um stjórn og fundarsköp Ísafjarðarbæjar í atkvæðagreiðslu um málefni
á vegum nefndarinnar.
Fundarmenn eru bundnir þagnarskyldu vegna mála, sem þeir fá
vitneskju um í starfi sínu fyrir nefndina og ætla má að leynt eigi að fara skv.
eðli máls, lögum eða samþykkt 2/3 fulltrúa, hvort sem þau varða einka- eða
almannahagsmuni.
Fulltrúi skal víkja af fundi við umræður og afgreiðslu mála
sem varða hann sjálfan, skyldmenni hans eða nánustu venslamenn svo mjög að ætla
má að það móti viljaafstöðu hans að einhverju leyti. Honum er þó heimilt að
gera stuttlega grein fyrir afstöðu sinni áður en hann víkur af fundi.
Starfsmannamál
Starfsmannamál eru ekki á verksviði atvinnumálanefndar.
Lög og reglugerðir
Í störfum sínum skal atvinnumálanefnd taka mið af þeim lögum og reglugerðum sem
snerta starfssvið hennar, sérstaklega þó lögum um atvinnuleysistryggingar nr.
12/1997, lögum um vinnumarkaðsaðgerðir nr. 13/1997 og lögum um skipulag ferðamála
nr. 117/1994 m.s.b., svo og öðrum þeim lögum er tengjast málaflokki
atvinnumálanefndar.
Þá skal nefndin fylgja samþykkt um stjórn og fundarsköp Ísafjarðarbæjar
eins og hún er hverju sinni og kynna sér ákvæði sveitarstjórnarlaga.
22/08/2000/HH
|