|
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar
Fundargerðir bæjarráðs
| Guðni Geir Jóhannesson, formaður |
B |
Mánagötu 5 Ísafirði |
456 4136 |
Netfang |
| Birna Lárusdóttir |
D |
Urðarvegi 34 Ísafirði |
456 4456 |
Netfang |
| Lárus G. Valdimarsson |
S |
Aðalstræti 27 Ísafirði |
456 4542 |
|
|
|
| varamenn: |
|
|
|
|
| Ragnheiður Hákonardóttir |
D |
Urðarvegi 33 Ísafirði |
456 4130 |
Netfang |
| Svanlaug Guðnadóttir |
B |
Kjarrholti 2 Ísafirði |
456 4084 |
Netfang |
| Bryndís G. Friðgeirsdóttir |
S |
Hlíðarvegi 37 Ísafirði |
456 4186 |
Netfang |
|
|
|
|
|
| áheyrnarfulltrúi: |
|
|
|
|
| Magnús Reynir Guðmundsson |
F |
Skipagötu 2 Ísafirði |
456 3783 |
Netfang |
Ákvæði bæjarmálasamþykktar um bæjarráð:
Bæjarstjórn kýs þrjá bæjarfulltrúa og þrjá til vara í bæjarráð skv. 38.
gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Bæjarráð er kosið árlega. Kjósa skal í
bæjarráð á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og síðan árlega
í júní ár hvert. Ákvæði 49. gr. samþykktar þessarar gilda um þá flokka eða
framboðsaðila sem fulltrúa eiga í bæjarstjórn en ekki fá kjörinn bæjarráðsmann.
Auk verkefna sem tilgreind eru í erindisbréfi bæjarráðs fer bæjarráð með verkefni
kjaranefndar, starfskjaranefndar og húsnæðisnefndar samkvæmt lögum um húsnæðismál
nr. 44/1998. (Samþykkt um stjórn Ísafjarðarbæjar
og fundarsköp bæjarstjórnar 5. mars 2001, 62. grein, stafliður a, töluliður
1.)
Útdráttur úr erindisbréfi bæjarráðs:
Bæjarráð heyrir beint undir bæjarstjórn.
Bæjarráð starfar á fjármmála- og stjórnsýslusviði, fer með framkvæmdstjórn
bæjarfélagsins ásamt bæjarstjóra. Bæjarráð hefur fjárhagslega yfirumsjón
með rekstri allra stofnana á vegum bjarins.
Hlutverk bæjarráðs er: að fara með daglega fjármála- og framkvæmdastjórn
sveitarfélagsins, ásamt bæjarstjóra ; að hafa umsjón með stjórnsýslu bæjarins
; að gera tillögur til bæjarstjórnar um afgreiðslu þeirra mála sem það fær
til meðferðar. Bæjarráð fer þó með fullnaðarafgreislu í þeim málum sem ekki
varða verulega fjárhag bæjarins og ekki er ágreiningur um afgreiðslu á innan
bæjarráðs og við bæjarstjóra hinsvegar ; að vinna ásamt bæjarstjóra að
nauðsynlegum undirbúningi stefnumótunar og markmiðssetningar bæjarstjórnar í
samræmi við þá framtíðarsýn, sem hún hefur á hverjum tíma ; að hafa
eftirlit með því að samþykkt markmið bæjarstjórnar með starfi fagnefnda nái fram
að ganga ; að starfa með bæjarstjóra ; að gera tillögur um úrbætur í allri
starfsemi á vegum bæjarins ; að vinna drög að fjáragsáætlun hvers ársog þriggja
ára áætlun, fyrir bæjarsjóð og fyrirtæki bæjarsjóðs og stofnanir ; að hafa
eftirlit með því að viðkomandi fagnefnd eða stjórn stofnunar skili tillögum til
fjárhagsáætlanagerðar vegna stofnana sem undir hana heyra ; að hafa eftirlit með
því að einstakir rekstrarliðir í fjárhagsáætlun bæjarsjóðs og fyrirtækja og
stofnana hans séu í samræmi við samþykkta fjárhagsáætlun á hverjum tíma ; að
ákveða skiptingu og ráðstöfun fjár sem áætlað er til einstakra málaflokka skv.
fjárhagsáætlun s.s. gatnagerðar, nýbygginga og vegna óvissra útgjalda.
Bæjarráð sér um að ársreikningar bæjarsjóðs og fyrirtækja séu samdir í
samræmi við gildandi lög, reglur og reikningsskilavenjur sveitarfélaga á hverjum
tíma. Bæjarráð sér um gerð kjarasamninga og starfsmannamál, þar með talið allar
starfsmannaráðningar, sem öðrum hefur ekki verið falið að sinna skv. lögum eða
sérstakri ákvörðun bæjarstjórnar. (Erindisbréf
nefnda, bæjarráð. 22. júlí 1996)
|