Villa kom upp í tengingu við gagnagrunn! Ísafjarðarbær
Þingeyri
Bæjarstjórn
Bæjarstjóri
Nefndir
Stjórnsýslusvið
Fjármálasvið
Skóla- og fjölskylduskrifstofa
Umhverfissvið
Hafnarmálasvið
Netföng
Skjöl
Greinar
Eyðublöð
Almenningssamgöngur
Laus störf
Gjaldskrár
Myndir og kort
Vefir
Um Ísafjarðarbæ
Forsíða

Ísafjarðarbær
Stjórnsýsluhúsinu
Pósthólf 56
400 Ísafjörður
kt. 540596-2639
Sími: 450 8000
Fax: 450 8008
Banki: 156-26-60

Félagsmálanefnd Ísafjarðarbæjar
Fundargerðir


Hörður Högnason, varaf. D Árholti 13 Ísafirði
Jón Svanberg Hjartarson D Hafnarstræti 14 Flateyri
Gréta Gunnarsdóttir B Hlíðarvegi 45 Ísafirði
Kristjana Sigurðardóttir, formaður B Engjavegi 31 Ísafirði
Védís J. Geirsdóttir S Smiðjugötu 8 Ísafirði
Varamenn:
Sigrún Gerða Gísladóttir D Sólbakka Flateyri
Helga Sigurgeirsdóttir D Smiðjugötu 7 Ísafirði
Ingibjörg Vignisdóttir B Fjaðargötu 60, Þingeyri
Guðrún J. Guðjónsdóttir B Kirkjubóli Valþjófsdal
Sigríður Bragadóttir S Fjarðarstræti 59 Ísafirði

Inga María Guðmundsdóttir yfirmaður skóla- og fjölskylduskrifstofu   skolafjolsk@isafjordur.is

Skýrsla vegna starfa félagsmálanefndar 1998-2002
Jafnréttisáætlun 1997-2002


ERINDISBRÉF NEFNDA

Félagsmálanefnd

Stjórnskipuleg staða

Félagsmálanefnd heyrir beint undir bæjarstjórn. Starfsmenn Skóla- og fjölskylduskrifstofu starfa með nefndinni. Fulltrúi félagsmálanefndar skal vera fulltrúi bæjarins í þjónustuhópi aldraðra og formaður hans. Þjónustuhópur aldraðra sinnir jafnframt hlutverki öldrunarnefndar í heilsugæsluumdæminu.

Tilnefningar félagsmálanefndar eru háðar samþykki bæjarsjtórnar.

Nefndin starfar á félagsþjónustusviði, sem er undir stjórn forstöðumanns Skóla- og fjölskylduskrifstofu. Eftirfarandi stofnanir og deildir heyra undir umsjón nefndarinnar: íbúðir aldraðra, dvalarheimili, dagdeild aldraðra, heimilishjálp, félagsstarf aldraðra, málefni fatlaðra, daggæsla í heimahúsum, húsaleigubætur, almenn félagsleg þjónusta. Nefndin sinnir einnig lögbundnu hlutverki jafnréttisnefndar.

Skipan nefndarinnar

Í félagsmálanefnd eiga sæti 5 fulltrúar, sem bæjarstjórn kýs til fjögurra ára að afloknum sveitarstjórnarkosningum skv. ákvæðum sveitarstjórnarlaga, laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, jafnréttislaga, reglugerð um daggæslu barna í heimahúsum, laga um málefni fatlaðra og málefni aldraðra og samþykktar um stjórn og fundarsköp Ísafjarðarbæjar. Á sama hátt eru kjörnir fimm fulltrúar til vara. Auk kjörinna nefndarfulltrúa bæjarstjórnar í félagsmálanefnd eiga félagsmálastjóri og bæjarstjóri rétt á að sitja fundi nefndarinnar, með málfrelsi og tillögurétt.

Bæjarstjórn kýs nefndinni formann og varaformann, en nefndin kýs sér ritara á fyrsta fundi sínum.

Hlutverk

Hlutverk nefndarinnar er
- að vera bæjarstjórn til ráðgjafar hvað varðar félagsleg málefni, svo sem fjárhagsaðstoð, félagslega heimaþjónustu, jafnréttismál, málefni aldraðra og áfengis - og vímuefnavarnir í bænum;
- að gera tillögu til bæjarstjórnar um markmið í félagsþjónustu sveitarfélagsins;
- að vinna tillögur að reglum um nánari útfærslu á einstökum þáttum félagsþjónustunnar;
- að hafa eftirlit með því að samþykkt markmið bæjarstjórnar í þessum málaflokkum nái fram að ganga;
- að starfa með félagsþjónustusviði að þeim málum sem undir nefndina heyra;
- að gera tillögu um úrbætur á þeirri starfsemi sem undir nefndina heyrir;
- að upplýsa bæjarbúa um félagsleg réttindi þeirra og skyldur;
- að vera ráðgefandi til bæjarstjórnar í faglegum málefnum dvalarheimila og annarra deilda sem undir nefndina heyra.

Félagsmálanefnd gerir tillögur til bæjarstjórnar um fjárhagsáætlun vegna þeirra stofnana, sem tilheyra verksviði nefndarinnar og í félagsmálum almennt. Nefndin skal hafa eftirlit með því að stofnanir og deildir starfi innan ramma laga og samþykktrar fjárhagsáætlunar á hverjum tíma.

Meginhlutverk félagsmálanefndar er stefnumótun, en í minna mæli afgreiðsla einstakra mála. Nefndin setur forstöðumönnum þeirra stofnana sem undir nefndina heyra starfsreglur um afgreiðslu samsvarandi mála.

Starfshættir

Um starfshætti nefnda er sérstaklega getið í III. og IV. kafla samþykktar um stjórn og fundarsköp Ísafjarðarbæjar og skal þeim fylgt eftir því sem við á.

Félagsmálanefnd kemur saman fyrir luktum dyrum á fastákveðnum fundartíma að minnsta kosti tvisvar í mánuði. Skal nefndin gera samþykkt um fundartíma að höfðu samráði við bæjarritara.

Nefndin skal halda gerðarbók. Kjörinn eða ráðinn ritari færir fundargerð í gerðarbókina. Í gerðarbók skal skrá hvar og hvenær fundur er haldinn, hverjir sitji hann og hvenær honum lýkur. Skrá skal einstök mál, sem tekin eru fyrir á fundinum, hvenær þau komu til, nöfn hlutaðeigandi, meginefni og afgreiðslu nefndarinnar. Viðkvæm mál skal færa til bókar í sérstaka fundargerðarbók, svokallaða trúnaðarbók, og eru afgreiðslur hennar ekki sendar bæjarstjórn til staðfestingar. Í lok fundar skal ritari lesa fundargerðina upp og allir viðstaddir undirrita hana. Ritari kemur fundargerðum til bæjarritara sem hefur umsjón með ritvinnslu hennar og leggur hana fram með dagskrá næsta bæjarstjórnarfundar.

Formaður og/eða starfsmaður sér um boðun funda. Fundarboðun skal vera skrifleg og tilgreina fundarstað, tíma og dagskrá. Fundarboð skal sent fulltrúum og öðrum sem seturétt hafa á fundum eigi síðar en einum sólarhring fyrir fund.

Formaður stýrir fundum nefndarinnar skv. ákvæðum III. og IV. kafla samþykktar um stjórn og fundarsköp bæjarins.

Fundur telst ályktunarhæfur ef meirihluti nefndarinnar er mættur á fund. Í atkvæðagreiðslu ræður afl atkvæða. Mál telst fallið í atkvæðagreiðslu ef atkvæði falla að jöfnu með og á móti.

Eftirfylgni

Formaður og aðrir fulltrúar skulu snúa sér til bæjarstjóra með eftirfylgni staðfestra samþykkta nefndarinnar.

Réttindi og skyldur fulltrúa

Um réttindi og skyldur fulltrúa gilda ákvæði sveitarstjórnarlaga og samþykktar um stjórn og fundarsköp Ísafjarðarbæjar, eftir atvikum.

Fulltrúa er skylt að sækja fundi nema lögmæt forföll hamli. Skal hann boða staðgengil sinn og láta formann nefndarinnar vita um forföll með góðum fyrirvara.

Hver fulltrúi á rétt á að koma máli á dagskrá fundar, enda skilar hann efni þess til formanns og/eða starfsmanns a.m.k. tveimur sólarhringum fyrir fund.

Fundarmenn skulu hafa hag bæjarins að leiðarljósi við störf sín en eru ekki bundnir af öðru en sannfæringu sinni, lögum og samþykktum um stjórn og fundarsköp Ísafjarðarbæjar í atkvæðagreiðslu um málefni á vegum nefndarinnar.

Fundarmenn eru bundnir þagnarskyldu vegna mála, sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu fyrir nefndina og ætla má að leynt skuli fara skv. eðli máls eða lögum, hvort heldur sem þau varða einka- eða almannahagsmuni.

Fulltrúi skal víkja af fundi við umræður og afgreiðslu mála sem varða hann sjálfan, skyldmenni hans eða nánustu venslamenn svo mjög að ætla má að það móti viljaafstöðu hans að einhverju leyti. Honum er þó heimilt að gera stuttlega grein fyrir afstöðu sinni áður en hann víkur af fundi.

Starfsmannamál

Nefndin skal fjalla um umsóknir vegna ráðningar forstöðumanns Skóla- og fjölskylduskrifstofu og gera rökstudda tillögu til bæjarstjórnar. Ákvörðun um ráðningu tekur bæjarstjórn. Félagsmálanefnd gerir tillögur til bæjarstjórnar um ráðningu yfirmanna stofnana.

Lög og reglugerðir

Í störfum sínum skal nefndin taka mið af þeim lögum og reglugerðum, sem undir starfssvið hennar heyrir og fylgja samþykkt um stjórn og fundarsköp Ísafjarðarbæjar eins og þau eru hverju sinni og kynna sér ákvæði sveitarstjórnarlaga.

Þannig samþykkt í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar 22. maí 2003.

Halldór Halldórsson, bæjarstjóri.