|
Fræðslunefnd Ísafjarðarbæjar
Fundargerðir
| Nafn: |
|
Heimilisfang: |
Sími: |
|
| Svanlaug Guðnadóttir, formaður |
B |
Kjarrholti 2 Ísafirði |
456 4084 |
Netfang |
|
| Elías Oddsson |
B |
Fagraholti 2 Ísafirði |
456 4256 |
Netfang |
|
| Óðinn Gestsson, varaf. |
D |
Eyargötu 6 Suðureyri |
456 6175 |
|
| Kolbrún Sverrisdóttir |
S |
Fjarðarstræti 35 Ísafirði |
456 4381 |
|
| Jens Kristmannsson |
F |
Engjavegi 31, Ísafirði |
456 3098 |
|
| Varamenn: |
|
|
|
|
| María Valsdóttir |
B |
Brekkugötu 4, Þingeyri |
|
|
| Hildigunnur Guðmundsdóttir |
B |
Auðkúlu Arnarfirði |
456 8259 |
|
| Ingibjörg Guðmundsdóttir |
D |
Hafnarstræti 4 Ísafirði |
|
|
| Björn Davíðsson |
S |
Mánagötu 6 Ísafirði |
456 4792 |
Netfang |
| Kristín Þórisdóttir |
F |
Aðalstræti 13, Ísafirði |
456 4269 |
|
Ingibjörg María Guðmundsdóttir yfirmaður skóla- og
fjölskylduskrifstofu skolafjolsk@isafjordur.is
ERINDISBRÉF NEFNDA
Fræðslunefnd
Stjórnskipuleg staða
Fræðslunefnd heyrir beint undir bæjarstjórn. Forstöðumaður
Skóla- og fjölskylduskrifstofu starfa með nefndinni.
Nefndin starfar á fræðslusviði, sem er undir stjórn Skóla- og
fjölskylduskrifstofu. Eftirfarandi stofnanir og deildir starfa á verksviði
nefndarinnar: Leikskólar, grunnskólar, tónlistarskólar og framhaldsskóli.
Skipan nefndarinnar
Í fræðslunefnd eiga sæti fimm fulltrúar, sem bæjarstjórn kýs
til fjögurra ára, að afloknum sveitarstjórnarkosningum samkvæmt ákvæðum
sveitarstjórnarlaga, laga um leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla og samþykktar um
stjórn og fundarsköp Ísafjarðarbæjar. Á sama hátt eru kjörnir fimm fulltrúar til
vara. Auk kjörinna fulltrúa bæjarstjórnar eiga fulltrúi kennara, skólastjóra og
foreldra barna í grunn- og leikskóla, rétt á að sitja fundi nefndarinnar, með
málfrelsi og tillögurétti. Þá eiga bæjarstjóri og forstöðumaður Skóla- og
fjölskylduskrifstofu rétt á að sitja fundi nefndarinnar með málfrelsi og
tillögurétti.
Bæjarstjórn kýs formann og varaformann fyrir nefndina, en nefndin kýs sér ritara
á fyrsta fundi sínum.
Hlutverk
Hlutverk nefndarinnar er:
- að vera bæjarstjórn til ráðgjafar í fræðslumálum;
- að gera tillögur til bæjarstjórnar um markmið í
fræðslustarfi á vegum sveitarfélagsins;
- að hafa eftirlit með því að samþykkt markmið
bæjarstjórnar í fræðslumálum nái fram að ganga;
- að vera samráðsaðili skólastjóra um ráðningar
starfsmanna;
- að sjá um að öll skólaskyld börn í bæjarfélaginu
njóti lögboðinnar fræðslu;
- að starfa með starfsmönnum og gera tillögur um úrbætur
í fræðslustarfi og aðbúnaði til skólahalds eftir atvikum;
- að sjá um rekstur gæsluvalla.
Fræðslunefnd hefur umsjón með þeim stofnunum sem undir nefndina
heyra og gerir tillögur til bæjarstjórnar um fjárhagsáætlun vegna þessara stofnana
og í fræðslumálum almennt. Nefndin skal hafa eftirlit með því að stofnanir og
deildir starfi innan ramma laga og samþykktrar fjárhagsáætlunar á hverjum tíma.
Meginhlutverk fræðslunefndar er stefnumótun, en í minna mæli
afgreiðsla einstakra mála. Nefndin setur forstöðumönnum og starfsmönnum þeirra
stofnana sem undir nefndina heyra starfsreglur um afgreiðslu samsvarandi mála.
Starfshættir
Um starfshætti nefnda er sérstaklega getið í III. og IV. kafla
samþykktar um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar og skal þeim
fylgt eftir því sem við á.
Fræðslunefnd kemur saman fyrir luktum dyrum á fastákveðnum
fundartíma að minnsta kosti tvisvar í mánuði. Skal nefndin gera samþykkt um þennan
fundartíma á sínum fyrsta fundi að höfðu samráði við bæjarstjóra.
Nefndin skal halda gerðabók. Kjörinn eða ráðinn ritari færir
fundargerð í gerðabókina. Í gerðabók skal skrá hvar og hvenær fundur er haldinn,
hverjir sitja hann og hvenær honum lýkur. Skrá skal einstök mál, sem tekin eru fyrir
á fundinum, hvenær þau komu til, nöfn hlutaðeigandi, meginefni og afgreiðslur
nefndarinnar. Í lok fundar skal ritari lesa fundargerðina upp og allir viðstaddir
undirrita hana. Fundargerðum kemur ritari nefndarinnar til bæjarritara, sem hefur
umsjón með ritvinnslu hennar og leggur hana fram með dagskrá næsta
bæjarstjórnarfundar.
Formaður og/eða starfsmaður sér um boðun funda. Fundarboðun skal
vera skrifleg og tilgreina fundarstað, tíma og dagskrá. Fundarboð skal sent fulltrúum
og öðrum sem seturétt hafa á fundum eigi síðar en einum sólarhring fyrir fund.
Formaður stýrir fundum nefndarinnar samkvæmt ákvæðum III. og IV.
kafla samþykktar um stjórn og fundarsköp Ísafjarðarbæjar.
Fundur telst ályktunarhæfur ef meirihluti nefndarinnar er mættur á
fundi. Í atkvæðagreiðslu ræður afl atkvæða. Mál telst fallið í
atkvæðagreiðslu ef atkvæði falla að jöfnu.
Eftirfylgni
Formaður og aðrir fulltrúar fræðslunefndar skulu snúa sér til
bæjarstjóra með eftirfylgni staðfestra samþykkta nefndarinnar.
Réttindi og skyldur fulltrúa
Um réttindi og skyldur fulltrúa í fræðslunefnd gilda ákvæði
sveitarstjórnarlaga og samþykktar um stjórn og fundarsköp Ísafjarðarbæjar, eftir
atvikum.
Fulltrúa er skylt að sækja fundi nema lögmæt forföll hamli. Skal
hann þá boða staðgengil sinn og láta formann nefndarinnar vita um forföll með
góðum fyrirvara.
Hver fulltrúi á rétt á að koma máli á dagskrá fundar, enda
skilar hann efni þess til formanns a.m.k. tveimur sólarhringum fyrir fund.
Fundarmenn skulu hafa hag bæjarins að leiðarljósi við störf sín
í nefndinni, en eru ekki bundnir af öðru en sannfæringu sinni, lögum og samþykktum
um stjórn og fundarsköp Ísafjarðarbæjar í atkvæðagreiðslu um málefni á vegum
nefndarinnar.
Fundarmenn eru bundnir þagnarskyldu vegna mála, sem þeir fá
vitneskju um í starfi sínu fyrir nefndina og ætla má að leynt eigi að fara samkvæmt
eðli máls eða lögum, hvort heldur þau varða einka- eða almannahagsmuni.
Fulltrúi skal víkja af fundi við umræður og afgreiðslu mála, sem
varða hann sjálfan, skyldmenni hans eða nánustu venslamenn svo mjög að ætla má að
það móti viljaafstöðu hans að einhverju leyti. Honum er þó heimilt að gera
stuttlega grein fyrir afstöðu sinni áður en hann víkur af fundi.
Starfsmannamál
Nefndin skal fjalla um umsóknir og gefa rökstudda umsögn til
bæjarstjórnar vegna ráðningar skólastjóra grunn- og leikskóla, og
aðstoðarskólastjóra grunnskóla. Ákvörðun um ráðningar kennara og annarra
starfsmanna grunn- og leikskóla er á valdi skólastjóra, að höfðu samráði við
fræðslunefnd. Fræðslunefnd gerir tillögur um ráðningu yfirmanna stofnana.
Lög og reglugerðir
Í störfum sínum skal nefndin taka mið af þeim lögum og
reglugerðum, sem um fræðslumál gilda, sérstaklega lög um leikskóla, grunnskóla,
tónlistarskóla og framhaldsskóla. Þá skal nefndin fylgja samþykkt um stjórn
Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar eins og þau eru hverju sinni og kynna
sér ákvæði sveitarstjórnarlaga.
Þannig samþykkt af bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar þann 18. desember 2003.
Halldór Halldórsson, bæjarstjóri.
|