Villa kom upp í tengingu við gagnagrunn! Ísafjarðarbær
Þingeyri
Bæjarstjórn
Bæjarstjóri
Nefndir
Stjórnsýslusvið
Fjármálasvið
Skóla- og fjölskylduskrifstofa
Umhverfissvið
Hafnarmálasvið
Netföng
Skjöl
Greinar
Eyðublöð
Almenningssamgöngur
Laus störf
Gjaldskrár
Myndir og kort
Vefir
Um Ísafjarðarbæ
Forsíða

Ísafjarðarbær
Stjórnsýsluhúsinu
Pósthólf 56
400 Ísafjörður
kt. 540596-2639
Sími: 450 8000
Fax: 450 8008
Banki: 156-26-60

Íþrótta- og tómstundanefnd Ísafjarðarbæjar
Fundargerðir


Bryndís Birgisdóttir, formaður D Hjallabyggð 7, Suðureyri 456 6165
Torfi Jóhannsson D Urðarvegi 68, Ísafirði 456 8475
Guðríður Sigurðardóttir, varaf. B Brautarholti 11, Ísafirði 456 3035
Sturla Páll Sturluson S Urðarvegi 53, Ísafirði 456 4216
Jóna Benediktsdóttir S Fjarðarstræti 39, Ísafirði 456 3052
Varamenn:
Hildur Halldórsdóttir D Brimnesvegi 10, Flateyri 456 7836
Jón Hálfdán Pétursson D
Sigríður Magnúsdóttir B Kirkjubóli, Önundarfirði 456 7655
Sigmundur Þórðarson S Aðalstræti 53, Þingeyri 456 8280
Þorsteinn Þráinsson S  

Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi er Björn Helgason. Netfang: bjorn@isafjordur.is


ERINDISBRÉF NEFNDA

Íþrótta- og tómstundanefnd

Stjórnskipuleg staða

Nefndin heyrir beint undir bæjarstjórn. Íþrótta-og æskulýðsfulltrúi starfar með nefndinni.
Nefndin starfar á skóla- og fjölskyldusviði, sem er undir stjórn forstöðumanns Skóla- og fjölskylduskrifstofu.
Eftirfarandi stofnanir og deildir starfa á verksviði nefndarinnar: Íþróttamiðstöðvar, íþróttavellir, skíðasvæði, vinnuskóli og félagsmiðstöðvar.

Skipan nefndarinnar

Bæjarstjórn kýs fimm fulltrúa og jafnmarga til vara í íþrótta- og tómstundanefnd. Nefndin er kosin á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil hennar hið sama og bæjarstjórnar skv. ákvæðum sveitarstjórnarlaga og samþykktar um stjórn og fundarsköp Ísafjarðarbæjar.
Auk kjörinna fulltrúa eiga bæjarstjóri, yfirmaður Skóla- og fjölskylduskrifstofu, fulltrúi HSV, félagsmiðstöðva og íþrótta- og æskulýðsfulltrúi rétt á að sitja fundi nefndarinnar, með málfrelsi og tillögurétti. Þá er heimilt að kalla til á fundi nefndarinnar sérhvern þann er tengist málum sem fjallað er um hverju sinni. Starfsmönnum stofnana bæjarins er skylt að sitja fundi íþrótta- og tómstundanefndar sé þess óskað.
Bæjarstjórn kýs nefndinni formann og varaformann, en nefndin kýs sér ritara á fyrsta fundi sínum.

Hlutverk

Hlutverk nefndarinnar er:

  • að vera bæjarstjórn til ráðgjafar í íþrótta- og æskulýðsmálum;
  • að gera tillögur til bæjarstjórnar um stefnu og markmið í íþrótta-og æskulýðsstarfi á vegum sveitarfélagsins;
  • að hafa eftirlit með því að samþykkt markmið bæjarstjórnar í íþrótta- og æskulýðsmálum nái fram að ganga;
  • að vera samráðsaðili sviðsstjóra Skóla- og fjölskyldusviðs um ráðningu starfsmanna;
  • að starfa með íþrótta-og æskulýðsfulltrúa og gera tillögur um úrbætur í íþrótta- og æskulýðsstarfi og aðbúnaði íþrótta- og æskulýðsstarfs eftir atvikum.
  • að samþætta og skipuleggja þá starfsemi sem fellur undir íþrótta-, og tómstundamál barna, ungmenna og almennings.

Íþrótta- og tómstundanefnd hefur daglega umsjón með þeim stofnunum sem undir nefndina heyra og gerir tillögur til bæjarstjórnar um fjárhagsáætlun vegna þessara stofnana og í íþrótta- og æskulýðsmálum almennt. Nefndin skal hafa eftirlit með því að stofnanir og deildir starfi innan ramma laga og samþykktar fjárhagsáætlunar á hverjum tíma.
Meginhlutverk íþrótta- og tómstundanefndar er stefnumótun, en í minna mæli afgreiðsla einstakra mála. Nefndin setur forstöðumönnum og starfsmönnum þeirra stofnana sem undir nefndina heyra, starfsreglur um afgreiðslu samsvarandi mála.

Starfshættir

Um starfshætti nefnda er sérstaklega getið í III. og V. kafla samþykktar um stjórn og fundarsköp Ísafjarðarbæjar og skal þeim fylgt eftir því sem við á.
Íþrótta- og tómstundanefnd kemur saman fyrir luktum dyrum á fastákveðnum fundartíma að minnsta kosti tvisvar í mánuði. Skal nefndin gera samþykkt um þennan fundartíma á sínum fyrsta fundi að höfðu samráði við bæjarstjóra.
Nefndin skal halda gerðabók. Kjörinn eða ráðinn ritari færir fundargerð. Í fundargerð skal getið hvar og hvenær fundur er haldinn, töluröð fundar og hverjir sitji hann. Skrá skal einstök mál sem tekin eru fyrir, dagsetningu þeirra, aðila máls og meginefni og hvernig mál er afgreitt. Sé mál ekki afgreitt samhljóða skal greina í fundargerð hvernig atkvæði hafa skipst. Í lok fundar skal fundargerð lesin upp og undirrituð af fundarmönnum. Einnig skal formaður nefndar og einn nefndarmanna setja upphafsstafi sína undir hverja blaðsíðu fundargerða, sem blaðsíðusettar skulu í áframhaldandi töluröð.
Heimilt er að skrá fundargerðir í tölvu. Sé það gert skal bóka í gerðabók íþrótta- og tómstundanefndar númer fundar, hvar og hvenær fundurinn er haldinn og að fundargerð sé færð í tölvu. Þá skal færa í gerðabók fundarslit og greina blaðsíðutal fundargerða. Nefndarmenn skulu rita nöfn sín við slit fundar í gerðabók. Fundarmenn fá afrit af fundargerð nefndarinnar í lok fundar.
Formaður sér um boðun funda í samráði við bæjarritara. Fundarboðun skal vera skrifleg og tilgreina fundarstað, tíma og dagskrá. Fundarboð skal sent fulltrúum og öðrum sem seturétt hafa á fundum eigi síðar en einum sólarhring fyrir fund.
Formaður stýrir fundum nefndarinnar skv. ákvæðum III. og V. kafla samþykkta um stjórn og fundarsköp Ísafjarðarbæjar.
Fundur telst ályktunarhæfur ef meirihluti nefndarinnar er mættur á fundi. Í atkvæðagreiðslu ræður afl atkvæða. Mál telst fallið í atkvæðagreiðslu ef atkvæði falla að jöfnu.

Eftirfylgni

Íþrótta- og tómstundanefnd og íþrótta- og æskulýðsfulltrúi hafa með höndum framkvæmd þeirrar stefnu sem mótuð hefur verið á hverjum tíma varðandi verkefni nefndarinnar.
Formaður og aðrir fulltrúar í íþrótta- og tómstundanefnd skulu snúa sér til bæjarstjóra til að fylgja eftir þeim ákvörðunum og samþykktum nefndarinnar.

Réttindi og skyldur fulltrúa

Um réttindi og skyldur fulltrúa í íþrótta- og tómstundanefnd gilda ákvæði sveitarstjórnarlaga og samþykktar um stjórn og fundarsköp Ísafjarðarbæjar, eftir atvikum.
Fulltrúa er skylt að sækja fundi nema lögmæt forföll hamli. Skal hann boða staðgengil sinn og láta formann nefndarinnar vita um forföll með góðum fyrirvara.
Hver fulltrúi á rétt á að koma máli á dagskrá fundar, enda skilar hann efni þess til formanns a.m.k. tveimur sólarhringum fyrir fund.
Fundarmenn skulu hafa hag bæjarins að leiðarljósi við störf sín í nefndinni en eru ekki bundnir af öðru en sannfæringu sinni, lögum og samþykktum um stjórn og fundarsköp Ísafjarðarbæjar í atkvæðagreiðslu um málefni á vegum nefndarinnar.
Fundarmenn eru bundnir þagnarskyldu vegna mála, sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu fyrir nefndina og ætla má að leynt eigi að fara skv. eðli máls, lögum eða samþykkt 2/3 fulltrúa, hvort sem þau varða einka- eða almannahagsmuni.
Fulltrúi skal víkja af fundi við umræður og afgreiðslu mála sem varða hann sjálfan, skyldmenni hans eða nánustu venslamenn svo mjög að ætla má að það móti viljaafstöðu hans að einhverju leyti. Honum er þó heimilt að gera stuttlega grein fyrir afstöðu sinni áður en hann víkur af fundi.

Starfsmannamál

Nefndin skal fjalla um umsóknir og gefa rökstudda umsögn til bæjarstjórnar vegna ráðningar starfsmanna í samræmi við ákvæði 66. gr. bæjarmálasamþykktar.

Lög og reglugerðir

Í störfum sínum skal íþrótta- og tómstundanefnd taka mið af þeim lögum og reglugerðum sem snerta starfssvið hennar.
Þá skal nefndin fylgja samþykkt um stjórn og fundarsköp Ísafjarðarbæjar eins og hún er hverju sinni og kynna sér ákvæði sveitarstjórnarlaga.

Samþykkt í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar5. september 2002.



Ritstjóri - Umsjón Snerpa ehf.