Villa kom upp í tengingu við gagnagrunn! Ísafjarðarbær
Hnífsdalur
Bæjarstjórn
Bæjarstjóri
Nefndir
Stjórnsýslusvið
Fjármálasvið
Skóla- og fjölskylduskrifstofa
Umhverfissvið
Hafnarmálasvið
Netföng
Skjöl
Greinar
Eyðublöð
Almenningssamgöngur
Laus störf
Gjaldskrár
Myndir og kort
Vefir
Um Ísafjarðarbæ
Forsíða

Ísafjarðarbær
Stjórnsýsluhúsinu
Pósthólf 56
400 Ísafjörður
kt. 540596-2639
Sími: 450 8000
Fax: 450 8008
Banki: 156-26-60

Landbúnaðarnefnd Ísafjarðarbæjar
Fundargerðir


Guðmundur Steinþórsson form. B Lambadal, Dýrafirði 456 8258
Jón J. Kristjánsson varaf. D Ytri-Hjarðardal, Önundarfirði 456 7737
Ari Sigurjónsson S Smiðjugötu 10, Ísafirði 456 4782
Varamenn:
Helgi Árnason D Alviðru, Dýrafirði 456 8229
Steinþór A. Ólafsson B Fremri-Hjarðardal, Dýrafirði 456 8214
Karl A. Bjarnason S Neðri-Hjarðardal, Dýrafirði 456 8137

Reglur um greiðslur til refa- og minkaveiðimanna í Ísafjarðarbæ


Ákvæði bæjarmálasamþykktar um landbúnaðarnefnd:

Bæjarstjórn kýs þrjá fulltrúa og þrjá til vara í landbúnaðarnefnd. Bæjarstjórn kýs nefndinni formann og varaformann. Nefndin er kosin á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil hennar hið sama og bæjarstjórnar. Nefndin er bæjarstjórn til ráðuneytis um búfjárhald, dýraeftirlit, refa- og minkaeyðingu, meindýraeyðingu, fjallskil og fjárgirðingar, sbr. ákvæði gildandi laga þar um. Auk verkefna sem landbúnaðarnefnd hefur með höndum samkvæmt lögum getur bæjarstjórn falið henni ýmis verkefni með erindisbréfum. (Samþykkt um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar 5. mars 2001,  62. grein, stafliður a, töluliður 7.)


Forstöðumaður tæknideildar er Sigurður Mar Óskarsson.  Netfang:  sigurdur@isafjordur.is


Útdráttur úr erindisbréfi landbúnaðarnefndar:

Nefndin heyrir beint undir bæjarstjórn. Bæjarverkfræðingur starfar með nefndinni

Nefndin starfar á umhverfissviði, sem er undir stjórn bæjarverkfræðings. 

Hlutverk nefndarinnar er:  að vera bæjarstjórn til ráðgjafar um refa- og minkaeyðingu, búfjáreftirlit, fjallskil, fjárgirðingar og dýraeftirlit ; að gera tillögur til bæjarstjórnar um markmið í þessum málaflokkum ;  að hafa eftirlit með að samþykkt markmið bæjarstjórnar í þessum málaflokkum nái fram að ganga ;  að gera tillögur um úrbætur í þeirri starfsemi sem undir hana heyrir.

Landbúnaðarnefnd gerir tillögur til bæjarstjórnar um fjárhagsáætlun vegna þeirra stofnana, sem tilheyra verksviði nefndarinnar.  Nefndin skal hafa faglega umsjón þessum stofnunum sem á verksviði hennar eru og hafa eftirlit með því að stofnanirnar starfi innan ramma samþykktrar fjárhagsáætlunar á hverjum tíma.

Meginhlutverk landbúnaðarnefndar er stefnumótun, en í minna mæli afgreiðsla einstakra mála.Nefndin setur forstöðumönnum og starfsmönnum þeirra stofnana sem undir nefndina heyra starfsreglur um afgreiðslu samsvarandi mála. (Erindisbréf nefnda, umhverfisnefnd.  22. júlí 1996)


Ritstjóri - Umsjón Snerpa ehf.