Villa kom upp í tengingu við gagnagrunn! Ísafjarðarbær
Þingeyri
Bæjarstjórn
Bæjarstjóri
Nefndir
Stjórnsýslusvið
Fjármálasvið
Skóla- og fjölskylduskrifstofa
Umhverfissvið
Hafnarmálasvið
Netföng
Skjöl
Greinar
Eyðublöð
Almenningssamgöngur
Laus störf
Gjaldskrár
Myndir og kort
Vefir
Um Ísafjarðarbæ
Forsíða

Ísafjarðarbær
Stjórnsýsluhúsinu
Pósthólf 56
400 Ísafjörður
kt. 540596-2639
Sími: 450 8000
Fax: 450 8008
Banki: 156-26-60

Menningarmálanefnd Ísafjarðarbæjar
Fundargerðir


Inga Ólafsdóttir formaður B Hafnarstræti 7, Ísafirði 456 3512 Netfang
Sigurborg Þorkelsdóttir, varaf. D Fagraholti 7, Ísafirði 456 3932 Netfang
Hansína Einarsdóttir S Eyrargötu 3, Ísafirði 456 3558 Netfang
Varamenn:
Kristjana Sigurðardóttir B Engjavegi 31, Ísafirði 456 3795 Netfang
Guðjón Þorsteinsson D Engjavegi 12, Ísafirði 456 5141
Unnar Reynisson S Hjallavegi 17, Suðureyri 456 6240

Þorleifur Pálsson bæjarritari  thorleifur@isafjordur.is


Ákvæði bæjarmálasamþykktar um menningarmálanefnd:

Bæjarstjórn kýs þrjá fulltrúa og jafnmarga til vara í menningarmálanefnd. Bæjarstjórn kýs nefndinni formann og varaformann. Nefndin er kosin á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil hennar hið sama og bæjarstjórnar. Nefndin fer með málefni bókasafna samkvæmt ákvæðum laga um almenningsbókasöfn nr. 36/1997, einnig annarra safna, svo sem listasafna. Nefndin tilnefnir fulltrúa í stjórn Byggðasafns Vestfjarða. Tilnefningar nefndarinnar eru háðar samþykki bæjarstjórnar. Nefndin er bæjarstjórn til ráðuneytis um verndun gamalla húsa og fornra minja samkvæmt þjóðminjalögum. Nefndin fer jafnframt með vinabæjarsamskipti, hátíðahöld og málefni félagsheimila. Auk verkefna sem menningarmálanefnd hefur með höndum samkvæmt lögum getur bæjarstjórn falið henni ýmis verkefni með erindisbréfum. (Samþykkt um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar 5. mars 2001,  62. grein, stafliður a, töluliður 3.)


Útdráttur úr erindisbréfi menningarmálanefndar:

Nefndin heyrir beint undir bæjarstjórn. Bæjarritari starfar með nefndinni

Nefndin starfar á stjórnsýslusviði, sem er undir stjórn bæjarritara.  Eftirfarandi stofnanir og deildir starfa á verksviði nefndarinnar: bókasafn, skjalasafn, listasafn, ljósmyndasafn og byggðasafn.

Hlutverk nefndarinnar er: að vera bæjarstjórn til ráðgjafar í lista-, menningar og safnamálum, ferðamálum, vinabæjarsamskiptum og húsafriðunarmálum bæjarfélagsins ; að annast undirbúning hátíðahalda á vegum bæjarins ; að gera tillögur til bæjarstjórnar um markmið í lista- menningar- og safnamálum, ferðamálum, vinabæjarsamskiptum og í húsafriðunarmálum bæjarfélagsins ; að hafa eftirlit með því að samþykkt markmið bæjarstjórnar í þessum málaflokki nái fram að ganga ;  að starfa með bæjarritara að ofangreindum málum ;  gera tillögur um úrbætur í þeirri starfsemi sem undir hana heyrir.

Menningarnefnd gerir tillögur til bæjarstjórnar um fjárhagsáætlun vegna þeirra stofnana, sem tilheyra verksviði nefndarinnar og í ofangreindum málaflokkum almennt.  Nefndin skal hafa faglega umsjón með rekstri þeirra stofnana sem áverksviði hennar eru og hafa eftirlit með því að þær starfi innan ramma samþykktrar fjárhagsáætlunar á hverjum tíma. 

Í störfum sínum skal nefndin taka mið af þeim lögum og reglugerðum, sem undir starfsvið hennar heyrir, sérstaklega þó lög sem um almenningsbókasöfn, byggða- og skjalasöfn gilda hverju sinni. (Erindisbréf nefnda, menningarnefnd.  22. júlí 1996, með síðari breytingum)


Ritstjóri - Umsjón Snerpa ehf.