|
Staðardagskrá 21
Fundargerðir
| Ragnar Kristinsson, formaður |
D |
Góuholti 14, Ísafirði |
456 4340 |
|
| Jóhanna Kristjánsdóttir |
D |
Eyrarvegi 6, Flateyri |
456 7626 |
|
| Ásvaldur Magnússon, varaf. |
B |
Tröð, Önundarfirði |
456 7783 |
|
| Ásthildur Cesil Þórðardóttir |
F |
Seljalandsvegi 100, Ísafirði |
456 3351 |
|
| Guðrún A. Finnbogadóttir |
S |
Hlíðarvegi 26a, Ísafirði |
456 3905 |
|
| Varamenn: |
|
|
|
|
| Sighvatur Þórarinsson |
D |
Höfða, Dýrafirði |
456 8277 |
|
| Ingólfur H. Þorleifsson |
D |
Túngötu 10, Suðureyri |
899 0709 |
|
| Geir Sigurðsson |
B |
Móholti 11, Ísafirði |
456 4754 |
|
| Þröstur Ólafsson |
F |
Strandgötu 7a, Hnífsdal |
456 4469 |
|
| Smári Haraldsson |
S |
Miðtúni 33, Ísafirði |
456 4017 |
|

ERINDISBRÉF NEFNDA
Staðardagskrárnefnd
Stjórnskipuleg staða
Nefndin heyrir beint undir bæjarstjórn. Atvinnu- og
staðardagskrárfulltrúi starfar með nefndinni.
Nefndin starfar á stjórnsýslusviði, sem er undir stjórn
bæjarritara.
Skipan nefndarinnar
Bæjarstjórn kýs fimm fulltrúa og jafnmarga til vara í
staðardagskrárnefnd. Nefndin er kosin á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar
bæjarstjórnar og er kjörtímabil hennar hið sama og bæjarstjórnar skv. ákvæðum
sveitarstjórnarlaga og samþykktar um stjórn og fundarsköp Ísafjarðarbæjar.
Auk kjörinna fulltrúa eiga bæjarstjóri, bæjarritari og atvinnu-
og staðardagskrárfulltrúi rétt á að sitja fundi nefndarinnar með málfrelsi og
tillögurétti. Þá er heimilt að kalla til á fundi nefndarinnar sérhvern þann er
tengist málum sem fjallað er um hverju sinni. Starfsmönnum stofnana bæjarins er skylt
að sitja fundi staðardagskrárnefndar sé þess óskað.
Bæjarstjórn kýs nefndinni formann og varaformann, en nefndin kýs
sér ritara á fyrsta fundi sínum.
Hlutverk
Meginhlutverk staðardagskrárnefndar er stefnumótun í anda sjálfbærrar
þróunar, en í minna mæli afgreiðsla einstakra mála. Nefndin setur starfsmönnum
sem með nefndinni starfa, starfsreglur um afgreiðslu mála.
Hlutverk nefndarinnar er:
- að vinna Staðardagskrá 21 fyrir sveitarfélagið og koma hugmyndafræði hennar í
framkvæmd innan bæjarkerfisins og meðal íbúa þess;
- að hvetja almenning, fyrirtæki og stofnanir til þátttöku í umhverfisverkefnum og
að vinna að umhverfismálum;
- að vera bæjarstjórn og almenningi til ráðgjafar í umhverfismálum;
- að vera tengiliður bæjarstjórnar og verkefna á sviði umhverfismála;
- að stuðla að því að staða umhverfismála í Ísafjarðarbæ sé eins og best
gerist á landinu;
- að fylgjast með framkvæmd laga og reglugerða er snerta starfssvið nefndarinnar;
- að starfa í samvinnu við SD21 á Íslandi;
- að gera tillögur til bæjarstjórnar um útgjaldaliði á sviði Staðardagskrár 21
fyrir sveitarfélagið;
- að afla tiltækra upplýsinga, m.a. í samstarfi við aðrar nefndir, um þau atriði
sem mestu máli skipta varðandi Staðardagskrá 21 í Ísafjarðarbæ;
- að eiga náið samstarf við umhverfisnefnd Ísafjarðarbæjar;
- að standa fyrir almennum fundum og annarri kynningu um Staðardagskrá 21;
- að fjalla um önnur þau mál sem bæjarstjórn felur henni.
Starfshættir
Um starfshætti nefnda er sérstaklega getið í III. og V. kafla
samþykktar um stjórn og fundarsköp Ísafjarðarbæjar og skal þeim fylgt eftir
því sem við á.
Staðardagskrárnefnd kemur saman fyrir luktum dyrum á
fastákveðnum fundartíma að minnsta kosti einu sinni í mánuði. Skal nefndin gera
samþykkt um þennan fundartíma á sínum fyrsta fundi að höfðu samráði við
bæjarstjóra.
Nefndin skal halda gerðabók. Kjörinn eða ráðinn ritari
færir fundargerð. Í fundargerð skal getið hvar og hvenær fundur er haldinn,
töluröð fundar og hverjir sitji hann. Skrá skal einstök mál sem tekin eru
fyrir, dagsetningu þeirra, aðila máls og meginefni og hvernig mál er afgreitt. Sé
mál ekki afgreitt samhljóða skal greina í fundargerð hvernig atkvæði hafa skipst.
Í lok fundar skal fundargerð lesin upp og undirrituð af fundarmönnum. Einnig
skal formaður nefndar og einn nefndarmanna setja upphafsstafi sína undir hverja
blaðsíðu fundargerða, sem blaðsíðusettar skulu í áframhaldandi töluröð.
Heimilt er að skrá fundargerðir í tölvu. Sé það gert
skal bóka í gerðabók staðardagskrárnefndar númer fundar, hvar og hvenær
fundurinn er haldinn og að fundargerð sé færð í tölvu. Þá skal færa í
gerðabók fundarslit og greina blaðsíðutal fundargerða. Nefndarmenn skulu rita
nöfn sín við slit fundar í gerðabók. Fundarmenn fá afrit af fundargerð
nefndarinnar í lok fundar.
Formaður og/eða atvinnu- og staðardagskrárfulltrúi sér um boðun
funda í samráði við bæjarritara. Fundarboðun skal vera skrifleg og tilgreina
fundarstað, tíma og dagskrá. Fundarboð skal sent fulltrúum og öðrum sem
seturétt hafa á fundum eigi síðar en einum sólarhring fyrir fund.
Formaður stýrir fundum nefndarinnar skv. ákvæðum III. og V. kafla
samþykkta um stjórn og fundarsköp Ísafjarðarbæjar.
Fundur telst ályktunarhæfur ef meirihluti nefndarinnar er mættur
á fundi. Í atkvæðagreiðslu ræður afl atkvæða. Mál telst fallið í
atkvæðagreiðslu ef atkvæði falla að jöfnu.
Eftirfylgni
Staðardagskrárnefnd og atvinnu- og staðardagskrárfulltrúi hafa með höndum
framkvæmd þeirrar stefnu sem mótuð hefur verið á hverjum tíma varðandi verkefni
nefndarinnar.
Formaður og aðrir fulltrúar í staðardagskrárnefnd skulu snúa sér til bæjarstjóra
til að fylgja eftir ákvörðunum og samþykktum nefndarinnar.
Réttindi og skyldur fulltrúa
Um réttindi og skyldur fulltrúa í staðardagskrárnefnd gilda
ákvæði sveitarstjórnarlaga og samþykktar um stjórn og fundarsköp
Ísafjarðarbæjar, eftir atvikum.
Fulltrúa er skylt að sækja fundi nema lögmæt forföll
hamli. Skal hann boða staðgengil sinn og láta formann nefndarinnar vita um forföll
með góðum fyrirvara.
Hver fulltrúi á rétt á að koma máli á dagskrá fundar,
enda skilar hann efni þess til formanns eða starfsmanns nefndarinnar a.m.k. tveimur
sólarhringum fyrir fund.
Fundarmenn skulu hafa hag bæjarins og hugmyndafræði sjálfbærrar
þróunar að leiðarljósi við störf sín í nefndinni en eru ekki bundnir af
öðru en sannfæringu sinni, lögum og samþykktum um stjórn og fundarsköp
Ísafjarðarbæjar í atkvæðagreiðslu um málefni á vegum nefndarinnar.
Fundarmenn eru bundnir þagnarskyldu vegna mála, sem þeir fá
vitneskju um í starfi sínu fyrir nefndina og ætla má að leynt eigi að fara skv.
eðli máls, lögum eða samþykkt 2/3 fulltrúa, hvort sem þau varða einka- eða
almannahagsmuni.
Fulltrúi skal víkja af fundi við umræður og afgreiðslu mála
sem varða hann sjálfan, skyldmenni hans eða nánustu venslamenn svo mjög að ætla
má að það móti viljaafstöðu hans að einhverju leyti. Honum er þó heimilt að
gera stuttlega grein fyrir afstöðu sinni áður en hann víkur af fundi.
Lög og reglugerðir
Í störfum sínum skal staðardagskrárnefnd taka mið af þeim lögum og reglugerðum
sem snerta starfssvið hennar.
Þá skal nefndin fylgja samþykkt um stjórn og fundarsköp Ísafjarðarbæjar
eins og hún er hverju sinni og kynna sér ákvæði sveitarstjórnarlaga.
Samþykkt í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar 23/01/2003
|