Villa kom upp í tengingu við gagnagrunn! Ísafjarðarbær
Ísafjörður
Bæjarstjórn
Bæjarstjóri
Nefndir
Stjórnsýslusvið
Fjármálasvið
Skóla- og fjölskylduskrifstofa
Umhverfissvið
Hafnarmálasvið
Netföng
Skjöl
Greinar
Eyðublöð
Almenningssamgöngur
Laus störf
Gjaldskrár
Myndir og kort
Vefir
Um Ísafjarðarbæ
Forsíða

Ísafjarðarbær
Stjórnsýsluhúsinu
Pósthólf 56
400 Ísafjörður
kt. 540596-2639
Sími: 450 8000
Fax: 450 8008
Banki: 156-26-60

Umhverfisnefnd Ísafjarðarbæjar
Fundargerðir


Jón Svanberg Hjartarson D Hafnarstræti 14 Flateyri 456 7636
Kristján Kristjánsson, formaður D Skipagötu 14, Ísafirði 456 3521 Netfang
Björgmundur Örn Guðmundsson, varaf. B Hafraholti 24 Ísafirði 8976187 Netfang
Magdalena Sigurðardóttir B Seljalandsvegi 38, Ísafirði 456 3398
Sæmundur K. Þorvaldsson S Lyngholti, Dýrafirði 456 8208
Varamenn:
Jónas Þ. Birgisson D Bakkavegi 39, Hnífsdal 456 3449
Hafdís S. Hermannsdóttir D Urðarvegi 19, Ísafirði
Jón Reynir Sigurðsson B Fjarðargötu 60, Þingeyri 456 8355
Sigurður Jón Hreinsson B Hlíðarvegi 29 Ísafirði 456 3683
Jóna Símonía Bjarnadóttir S Neðstakaupstað Ísafirði 456 5140 Netfang

Forstöðumaður tæknideildar er Jóhann Birkir Helgason.  Netfang:  johannb@isafjordur.is


Ákvæði bæjarmálasamþykktar um umhverfisnefnd:

Bæjarstjórn kýs fimm fulltrúa og jafnmarga til vara í umhverfisnefnd. Bæjarstjórn kýs nefndinni formann og varaformann. Umhverfisnefnd er kosin á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil hennar hið sama og bæjarstjórnar. Nefndin fer með byggingar- og skipulagsmál samkvæmt skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997. Umhverfisnefnd sinnir lögbundnum verkefnum gróðurverndarnefndar samkvæmt lögum um landgræðslu nr. 17/1965, náttúruverndarnefndar samkvæmt náttúruverndarlögum nr. 93/1996 og umferðarnefndar samkvæmt umferðarlögum nr. 50/1987. Nefndin skal í störfum sínum huga að ferlimálum fatlaðra samkvæmt lögum þar um. Auk verkefna sem umhverfisnefnd hefur með höndum samkvæmt lögum getur bæjarstjórn falið henni ýmis verkefni með erindisbréfum. (Samþykkt um stjórn Ísafjarðarbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar 5. mars 2001,  62. grein, stafliður a, töluliður 6.)


Útdráttur úr erindisbréfi umhverfisnefndar:

Nefndin heyrir undir bæjarstjórn. Bæjarverkfræðingur starfar með nefndinni

Nefndin starfar á umhverfissviði, sem er undir stjórn bæjarverkfræðings.  Eftirfarandi stofnanir og deildir starfa á verksviði nefdarinnar: tæknideild, embætti byggingafulltrúa, veitur, áhaldahús, sorpförgun, garðyrkju, almenningsgarða, opin svæði og slökkvistöð.

Hlutverk nefndarinnar er: að fara með byggingamál skv. byggingarlögum ; að vera bæjarstjórn til ráðgjafar í skipulags- og umhverfismálum, gatna- og holræsagerð, umferðamálum, ferlimálum fatlaðra, hreinlætismálum, sorphirðu og - eyðingu og vegna skipulagningar almenningsgarða og útivistarsvæða sveitarfélagisins ; að vera bæjarstjórn til ráðgjafar um rekstur fasteigna í eigu sveitarfélagsins ; að vera bæjarstjórn til ráðgjafar varðandi brunavarnir og rekstur slökkviliðs ; gera tillögur til bæjarstjórnar um markmið í þessum málaflokkum ; hafa eftirlit með því að samþykkt markmið bæjarstjórnar í þessum málaflokkum nái fram að ganga ; að starfa með bæjarverkfræðingi ; að gera tillögurm um úrbætur í þeirri starfsemi sem undir hana heyrir.

Umhverfisnefnd hefur yfirumsjón með þeim stofnunum sem undir nefndina heyra, gerir tillögur til bæjarstjórnar um fjárhagsáætlun vegna þeirrar starfsemi, sem undir það heyrir. Nefndin skal hafa eftirlitt með því að stofnanir og deildir starfi innan ramma laga og samþykktrar fjárhagsáætlunar á hverjum tíma.  

Meginhlutverk umhverfisnefndar er stefnumótun, en í minna mæli afgreiðsla einstakra mála. Nefndin setur forstöðumönnum og starfsmönnum þeirra stofnana sem undir nefndina heyra starfsreglur um afgreiðslu samsvarandi mála. (Erindisbréf nefnda, umhverfisnefnd.  22. júlí 1996)


Ritstjóri - Umsjón Snerpa ehf.