Hugmyndasamkeppni um Grunnskólann á Ísafirði   Niðurstaða dómnefndar      Umsögn um tillögurnar

Aðdragandi og tilhögun samkeppninnar

Haustið 2000 skipaði bæjarráð Ísafjarðarbæjar starfshóp til að vinna tillögur um framtíðarhúsnæði Grunnskólans á Ísafirði. Starfshópinn skipuðu Elías Oddsson, Halldór Halldórsson og Kristinn Breiðfjörð Guðmundsson.

Starfshópurinn skilgreindi markmið sitt á eftirfarandi hátt:

,,Heildarlausn í húsnæðis- og lóðamálum Grunnskólans á Ísafirði skal byggð á stefnu og framtíðarsýn bæjaryfirvalda í skólamálum. Húsnæði, lóð og aðbúnaður skal fullnægja lögum og reglugerðum um skólamannvirki enda er gert ráð fyrir aðlögun eldri mannvirkja að skólastarfi í þeim lögum og reglugerðum. Húsnæði, lóð og annar aðbúnaður skal henta og stuðla að metnaðarfullu skólastarfi á 21. öld. Áhersla skal á það lögð að allur búnaður, rými og aðkoma að skólanum fullnægi kröfum um öryggi og hollt og gott vinnuumhverfi."

Skýrsla starfshópsins var lögð fram 24. janúar 2001. Starfshópurinn vann húsrýmisáætlun og lagði til að efnt yrði til hugmyndasamkeppni um framtíðarlausn í húsnæðis- og skipulagsmálum Grunnskólans á Ísafirði.

Bæjarstjórn Ísafjarðar féllst á tillögur starfshópsins á fundi sínum 1. mars 2001.

Bæjarráð Ísafjarðarbæjar tilnefndi á fundi 9. júlí 2001 eftirtalda í dómnefnd:

Kristján Kristjánsson, verkfræðing, formaður dómnefndar
Kistinn Breiðfjörð Guðmundsson, skólastjóra
Árna Traustason, tæknifræðing

Jafnframt tilnefndi Bæjarráð þá Sigurð Mar Óskarsson, tæknifræðing, sem ritara dómnefndar og Önund Jónsson, yfirlögregluþjón á Ísafirði, sem trúnaðarmann samkeppninnar.

Arkitektafélag Íslands tilnefndi í dómnefnd:

Elísabetu Gunnarsdóttur, arkitekt
Sigríði Sigþórsdóttur, arkitekt

Dómnefnd ákvað að keppnisfyrirkomulag yrði opin hugmyndasamkeppni í samstarfi við Arkitektafélag Íslands.
Dómnefnd lauk gerð keppnislýsingar 8. febrúar 2002 og voru keppnisgögn til afhendingar frá og með 13. febrúar 2002. Skiladagur var ákveðinn 2. maí 2002. Áætlað var að dómnefnd lyki störfum fyrir 3. júní 2002, en það tókst því miður ekki og ullu því margar samverkandi ástæður.

Ákveðið var að veita verðlaun að heildarfjárhæð allt að kr. 5.000.000,- og að stefnt yrði að veitingu 1., 2. og 3. verðlauna og að 1. verðlaun yrðu eigi lægri en kr. 2.500.000,-. Auk þess væri dómnefnd heimilt að kaupa tillögur fyrir allt að kr. 500.000,-

Almennt um mat dómnefndar

Dómnefnd hafði skilgreint meginmarkmið keppninnar:

Fyrsti fundur dómnefndar við dómstörf var haldinn 10. maí 2002.

Sjö tillögur bárust.

Dómnefnd var sammála um að tvær tillögur þættu vænlegastar til frekari útfærslu, þó engin tillaga skilaði afdráttarlaust fullnægjandi heildarlausn.

Dómnefndin horfði aðallega til eftirtalinna þátta við mat á tillögunum:

Kostnaðarmat:

Dómnefnd mat bygginga- eða framkvæmdakostnað við innsendar tillögur. Matið er gróft og byggt á áætluðu verði per fermetra húsnæðis. Gerður var greinarmunur á nýju húsnæði, mikið, meðal eða lítt breyttu húsnæði, húsnæði til niðurrifs og friðuðu húsnæði.

Niðurstöður matsins eru þær að tillögurnar séu áþekkar hvað varðar framkvæmdakostnað, þó kunni verðmunur að vera allt að 20 % á milli tillagna, en hvergi sé um meira en 10 % frávik að ræða frá meðalverði, sem er innan vikmarka fyrir tillögur á þessu stigi.

Þessi niðurstaða þýddi að kostnaður hafði lítil, ef ekki hverfandi, áhrif á niðurstöður dómnefndar.

Við mat á tillögum var dómnefnd sammála um að verðlauna tvær tillögur og kaupa inn þrjár, heildarverðlaun eru að upphæð kr. 4.750.000,-


Niðurstaða dómnefndar

1. verðlaun kr. 2.000.000,- tillaga nr. 6 auðkennd 01786  [Mynd 1: lítil / stór]  [Mynd 2:  lítil / stór]  [Mynd 3: lítil / stór]
2. verðlaun kr. 1.500.000,- tillaga nr. 4 auðkennd 26251 
[Mynd 1: lítil / stór]  [Mynd 2:  lítil / stór]  [Mynd 3: lítil / stór]

1.-2. innkaup kr. 500.000,- tillaga nr. 7 auðkennd 30077  [Mynd 1: lítil / stór]  [Mynd 2:  lítil / stór]  [Mynd 3:  lítil / stór]
1.-2. innkaup kr. 500.000,- tillaga nr. 2 auðkennd 21101 
[Mynd 1: lítil / stór]  [Mynd 2:  lítil / stór]  [Mynd 3:  lítil / stór]
3. innkaup kr. 250.000,- tillaga nr. 5 auðkennd 20502     
[Mynd 1: lítil / stór]  [Mynd 2:  lítil / stór]  [Mynd 3:  lítil / stór]

Ísafirði, 27. júní 2002

Kristján Kristjánsson, formaður dómnefndar
Kristinn Breiðfjörð Guðmundsson
Árni Traustason
Sigríður Sigþórsdóttir
Elísabet Gunnarsdóttir


Höfundar

Þegar nafnleynd var rofin kom í ljós að höfundar voru eftirtaldir:

Tillaga nr. 1 – auðkennd "12201"

Höfundar:
Batteríið – arkitektar ehf
Jón Ólafur Ólafsson, arkitekt FAÍ
Sigurður Einarsson, arkitekt FAÍ
Sigurður Harðarson, arkitekt FAÍ
Samstarf:
Arnór Skúlason, arkitekt FAÍ
Einar Sigurðsson, iðnhönnuður
Tryggvi Tryggvason, arkitekt FAÍ
[Mynd 1: lítil / stór]  [Mynd 2:  lítil / stór]  [Mynd 3:   lítil / stór]

Tillaga nr. 2 – auðkennd "21101"

Höfundar:
Zeppelin arkitektar:
Orri Árnason, arkitekt
Samstarf:
Alexander Efanov, arkitekt
Björn E. Sigurbjörnsson, tækniteiknari
Páll R. Valdemarsson, byggingatæknifræðingur
[Mynd 1: lítil / stór]  [Mynd 2:  lítil / stór]  [Mynd 3:   lítil / stór]

Tillaga nr. 3 – auðkennd "57932"

Höfundur:
Vilhjálmur Hjálmarsson, arkitekt
Samstarf:
Samstarfsmenn á Teiknistofunni Óðinstorgi s/f
Grafískur hönnuður:
Björg Vilhjálmsdóttir
[Mynd 1: lítil / stór]  [Mynd 2:  lítil / stór]  [Mynd 3:   lítil / stór]

Tillaga nr. 4 – auðkennd "26251"

Höfundur:
Albína Thordarson, arkitekt FAÍ
Samstarf:
Steffan Iwersen, arkitekt FAÍ/MAA
Aðstoð:
Kjartan Mogensen, landslagsarkitekt FÍLA
[Mynd 1: lítil / stór]  [Mynd 2:  lítil / stór]  [Mynd 3:   lítil / stór]

Tillaga nr. 5 – auðkennd "20502"

Höfundar:
Ásmundur Hrafn Sturluson, arkitekt FAÍ
Steinþór Kári Kárason, arkitekt EPFL-FAÍ
Myndvinnsla:
Guðjón Þór Erlendsson, arkitekt
[Mynd 1: lítil / stór]  [Mynd 2:  lítil / stór]  [Mynd 3:   lítil / stór]

Tillaga nr. 6 – auðkennd "01786"

Höfundar:
Einar Ólafsson, arkitekt FAÍ
Örn Þór Halldórsson, arkitekt
Aðstoð:
Hreiðar Sigtryggsson, skólastjóri
Skafti Þ. Halldórsson, bókmenntafræðingur
Guðrún Helga Jónasdóttir, listfræðingur
Sigríður Ragna Sverrisdóttir
[Mynd 1: lítil / stór]  [Mynd 2:  lítil / stór]  [Mynd 3: lítil / stór]

Tillaga nr. 7 – auðkennd "30077"

Höfundar:
AT4 arkitektar ehf
Gísli Sæmundsson, arkitekt FAÍ
Ragnar Ólafsson, arkitekt FAÍ
Samstarf:
Sóley Jónsdóttir, arkitekt FAÍ
[Mynd 1: lítil / stór]  [Mynd 2:  lítil / stór]  [Mynd 3:   lítil / stór]


Umsögn um tillögurnar

 

Tillaga nr. 6 – auðkennd "01786"  

[Mynd 1: lítil / stór]  [Mynd 2:  lítil / stór]  [Mynd 3: lítil / stór]

Tillagan er skýr og góð, bæði hvað varðar innra skipulag, form og áfangaskiptingu. Aðkoma og tenging við Silfurtorg, Aðalstræti og Hæstakaupstað er vel leyst og fellur vel að skipulagi bæjarins. Afmörkun útisvæða, annars vegar Austurvöllur og hins vegar aðalskólalóð, styrkir tillöguna. Höfundar leysa byggingarnar á einfaldan og hagkvæman hátt, um leið og þeir skapa eina sannfærandi heild. Þó mætti styrkja enn frekar götumyndir við Silfurgötu og Brunngötu með t.d. auknum byggingum.

Það er ókostur að salur og félagsaðstaða skuli vera staðsett í öðru húsi og slæmt fyrir skólastarfið að sundlaugin hverfi. Tenging við gamla skólahúsið er vel leyst en útlit nýbygginga samræmist ekki nógu vel nánasta umhverfi.

Tillagan er auðveld í framkvæmd og vænleg til þróunar. Tillagan er mjög skýrt og vel fram sett.

Dómnefnd hefur valið tillöguna í 1. verðlaunasæti.

Höfundar reyndust vera: 

Einar Ólafsson, arkitekt FAÍ
Örn Þór Halldórsson, arkitekt
Aðstoð:
Hreiðar Sigtryggsson, skólastjóri
Skafti Þ. Halldórsson, bókmenntafræðingur
Guðrún Helga Jónasdóttir, listfræðingur
Sigríður Ragna Sverrisdóttir

 

Tillaga nr. 4 – auðkennd "26251"

[Mynd 1: lítil / stór]  [Mynd 2:  lítil / stór]  [Mynd 3:   lítil / stór]

Tillagan byggir á áhugaverðri tilraun til að tengja saman hina ýmsu byggingarhluta um nýjan sal miðsvæðis á lóð og gamla skólahúsinu er gert sérlega hátt undir höfði. Götumyndir Brunngötu og Silfurgötu eru styrktar til muna með nýbyggingum. Tenging við Austurvöll er meðhöndluð á skemmtilegan hátt, en mikil áhersla á aðkomuna frá Aðalstræti og Silfurgötu er á kostnað leiksvæðisins.

Staðsetning stjórnunar í byggingu ofan á núverandi skóla og staðsetning félagsaðstöðu/bókasafns í sundlaugarhúsi er ekki í góðum tengslum við annað skólastarf. Heildarskipulag skiptir byggingum á lóðinni í einingar með tengigöngum sem eru bindandi fyrir innra skipulag. Fjórskipt leiksvæði sem við það skapast, getur verið heppileg lausn til að skipta upp nemendum í mismunandi aldurshópa, en gæti einnig verið erfitt hvað gæslu varðar. Sumir hlutar leiksvæðisins verða skuggsælir.

Leiksvæði á þaki nýbyggingar er áhugavert, en aðkoma að þakinu svo og tenging við Sundhallarbyggingu eru ekki leyst.

Nýbyggingar eru stílhreinar og í góðri sátt við umhverfið.  Tillagan er athyglisverð og vænleg til þróunar.

Dómnefnd hefur valið tillöguna í 2. verðlaunasæti.

Höfundur reyndist vera:

Albína Thordarson, arkitekt FAÍ
Samstarf:
Steffan Iwersen, arkitekt FAÍ/MAA
Aðstoð:
Kjartan Mogensen, landslagsarkitekt FÍLA

 

Tillaga nr. 7 – auðkennd "30077"

[Mynd 1: lítil / stór]  [Mynd 2:  lítil / stór]  [Mynd 3:   lítil / stór]

Samþjöppuð lausn á aðallóð skólans með opna og bjarta miðju er athyglisverð fyrir skólastarfið. Sú staðreynd að Kaupfélagshúsið er notað áfram dregur verulega úr kostum tillögunnar og tengibygging við Kaupfélagshúsið er ekki sannfærandi. Aðkoma um lítið hringtorg á mótum Austurvegar og Norðurvegar er áhugaverð. Byggt er að gamla skólahúsinu að hluta á tvo vegu með léttum byggingarhlutum á varfærinn hátt og útlit nýbygginga er látlaust.

Breytingar í nýja barnaskólanum og í gagnfræðaskólanum eru vafasamar.

Dómnefnd hefur valið tillöguna til 1.-2. innkaupa.

Höfundar reyndust vera:

AT4 arkitektar ehf
Gísli Sæmundsson, arkitekt FAÍ
Ragnar Ólafsson, arkitekt FAÍ
Samstarf:
Sóley Jónsdóttir, arkitekt FAÍ

 

Tillaga nr. 2 – auðkennd "21101"

[Mynd 1: lítil / stór]  [Mynd 2:  lítil / stór]  [Mynd 3:   lítil / stór]

Nýbyggingin vefur gamla skólahúsið örmum á fremur grófan hátt og rýfur götumynd Aðalstrætis.

Djörf lausn sem virkar fremur yfirþyrmandi á umhverfið.  Tengingar við eldra húsnæði eru vafasamar. Breytingar á núverandi sal og þeirri miðju eru leystar á trúverðugan hátt.

Heildarskipulag og sérstæð lögun bygginga leiðir af sér langar gönguleiðir innanhúss og dregur úr möguleikum til þróunar.

Dómnefnd hefur valið tillöguna til 1.-2. innkaupa.

Höfundar reyndust vera:

Zeppelin arkitektar:
Orri Árnason, arkitekt
Samstarf:
Alexander Efanov, arkitekt
Björn E. Sigurbjörnsson, tækniteiknari
Páll R. Valdemarsson, byggingatæknifræðingur

 

Tillaga nr. 5 – auðkennd "20502"

[Mynd 1: lítil / stór]  [Mynd 2:  lítil / stór]  [Mynd 3:   lítil / stór]

Húsið fær allt meira og minna nýtt og fremur látlaust yfirbragð með efnisvali sem er í nokkurri sátt við umhverfið. Leitast er við að skapa mælikvarða í takt við byggðarmynstrið. Byggt er framan á við húsið við Austurveg sem styttir vegalengdir til muna og gerir innri tengsl í skólastarfi góð.

Viðbyggingin þrengir að götunni og veldur skugga inn á lóðir handan götunnar sem rýrir notagildi hennar sem leiksvæðis.

Miklar breytingar á núverandi skólahúsnæði eru vafasamar.

Dómnefnd hefur valið tillöguna til 3. innkaupa.

Höfundar reyndust vera:

Ásmundur Hrafn Sturluson, arkitekt FAÍ
Steinþór Kári Kárason, arkitekt EPFL-FAÍ
Myndvinnsla:
Guðjón Þór Erlendsson, arkitekt

 

Tillaga nr. 1 – auðkennd "12201"

[Mynd 1: lítil / stór]  [Mynd 2:  lítil / stór]  [Mynd 3:   lítil / stór]

Byggt er við skólahúsið við Austurveg og þrátt fyrir að horn og miðja séu lítillega inndregin þrengir þetta mikið að götunni.

Skali nýbygginar við Austurveg og efnisnotkun fellur illa að byggðarmynstrinu.

Götumynd að Aðalstræti er nokkuð samstæð.

Einfalt flæði og ágætt innra skipulag, en lítið um spennandi rými.

Höfundar reyndust vera:

Batteríið – arkitektar ehf
Jón Ólafur Ólafsson, arkitekt FAÍ
Sigurður Einarsson, arkitekt FAÍ
Sigurður Harðarson, arkitekt FAÍ
Samstarf:
Arnór Skúlason, arkitekt FAÍ
Einar Sigurðsson, iðnhönnuður
Tryggvi Tryggvason, arkitekt FAÍ

 

Tillaga nr. 3 – auðkennd "57932"

[Mynd 1: lítil / stór]  [Mynd 2:  lítil / stór]  [Mynd 3:   lítil / stór]

Nýbygging á Kaupfélagslóð ekki trúverðug og nýbygging við Austurveg óspennandi.

Það er jákvætt að flytja stjórnun og félagsrými miðsvæðis innan skólans.

Vegalengdir eru mjög miklar og of mikið af glergöngum, þar á meðal tveir yfir götu.

Höfundur reyndust vera:

Vilhjálmur Hjálmarsson, arkitekt
Samstarf:
Samstarfsmenn á Teiknistofunni Óðinstorgi s/f
Grafískur hönnuður:
Björg Vilhjálmsdóttir