Samþykkt um kattahald í
Ísafjarðarbæ.
1. gr.
Kattahald er bannað í lögsagnarumdæmi
Ísafjarðarbæjar, að undanteknum köttum á lögbýlum.
2. gr.
Bæjarstjórn er heimilt að veita lögráða einstaklingum, sem
búa í þéttbýli í sveitarfélaginu undanþágu (leyfi) til kattahalds með ákveðnum
skilyrðum. Leyfið er bundið við nafn og heimilisfang viðkomandi og er ekki
framseljanlegt. Leyfið er einnig bundið við þann kött sem það er gefið út fyrir.
Kattahald í dreifbýli sætir að öllu jöfnu ekki takmörkunum.
Eftirfarandi skilyrði gilda á þéttbýlisstöðunum á Ísafirði, Hnífsdal,
Suðureyri, Flateyri og Þingeyri og skipulögðum sumarhúsahverfum:
a) Ef sótt er um leyfi til að halda kött í fjölbýlishúsi, skal
umsókninni fylgja skriflegt samþykki allra eigenda íbúða í stigaganginum, svo og
leigutaka, ef um leiguíbúðir er að ræða. Leigjandi þarf jafnan að framvísa
samþykki leigusala síns.
b) Leyfisgjald vegna undanþágu skal greiða árlega til bæjarsjóðs, eftir gjaldskrá
sem bæjarstjórn setur, samkvæmt ákvæðum 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og
mengunarvarnir, með síðari breytingum. Gjaldið skal greitt í fyrsta sinn við
skráningu kattarins og síðan árlega fyrirfram 1. janúar ár hvert. Hafi gjaldið ekki
verið greitt innan tveggja mánaða frá gjalddaga fellur leyfið sjálfkrafa úr gildi.
c) Við greiðslu gjalds skv. b-lið ber leyfishafa að framvísa vottorði dýralæknis
um að kötturinn hafi verið hreinsaður af spóluormum.
d) Hver köttur sem veitt er leyfi fyrir skal ábyrgðartryggður og skal kattaeftirlit
annast þá tryggingu. Tryggingin skal ná til alls tjóns sem dýrið kann að valda
mönnum, dýrum og munum. Vottorð um ábyrgðartryggingu skal liggja fyrir við útgáfu
leyfis. Gjald fyrir ábyrgðartryggingu innheimtist með leyfisgjaldi.
e) Kötturinn skal ávallt bera hálsól. Á ólinni skal vera bjalla, auk plötu sem
skráningarnúmer og símanúmer eiganda er letrað á. Skoða skal hvort örflögur gætu
hentað til merkinga á köttum.
f) Leyfishafa ber að sjá svo um að köttur hans valdi ekki hættu, óþægindum eða
óþrifnaði, né raski ró manna.
g) Óheimilt er að láta kött dvelja lengur en þrjá mánuði á heimili án þess að
sótt sé um leyfi fyrir honum.
h) Ekki er leyfilegt að hafa fleiri en tvo ketti eldri en þriggja mánaða á sama
heimilinu.
i) Leyfishafa ber að taka tillit til fuglalífs á varptíma.
j) Köttum má ekki hleypa inn í fyrirtæki og stofnanir, sbr. fylgiskjal 3 með
reglugerð um hollustuhætti, þar sem matvæli eru meðhöndluð, sbr. reglugerð um
matvæli, né inn í húsnæði vatnsveitna, sbr. reglugerð um neysluvatn og
ölkelduvatn.
3. gr.
Umsóknir um leyfi til kattahalds skal leggja fram á
skrifstofu Ísafjarðarbæjar á þar til gerðum eyðublöðum. Leyfishafi fær afhenta
merkiplötu, sbr. ákvæði 2. gr.
4. gr.
Ísafjarðarbær getur ráðið sérstakan
dýraeftirlitsmann. Dýraeftirlitsmaður starfar í umboði heilbrigðisnefndar. Hann
tekur óskilaketti og flækingsketti í vörslu.
Halda skal skrá yfir ketti sem veitt er leyfi fyrir, þar sem fram koma upplýsingar um
köttinn og eiganda hans. Skráin skal vera aðgengileg heilbrigðiseftirliti og
dýraeftirlitsmanni, sé hann starfandi.
5. gr.
Berist staðfest kvörtun undan ágangi og ónæði af
köttum í íbúðahverfum er heimilt að láta veiða þá í búr og fanga ómerkta og
leyfislausa ketti. Slíkar aðgerðir skal auglýsa með áberandi hætti með a.m.k.
einnar viku fyrirvara. Sé fangaðra katta ekki vitjað innan einnar viku, er heimilt að
láta aflífa þá.
6. gr.
Með brot á samþykkt þessari skal fara samkvæmt
ákvæðum laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir með síðari breytingum.
Við minniháttar brot á samþykkt þessari skal eigandi kattarins sæta skriflegri
áminningu. Endurtekin eða alvarleg brot geta leitt til leyfissviptingar.
Leyfishafa er skylt að greiða kostnað sem leiðir af brotum á samþykkt þessari.
7. gr.
Ketti sem leyfi er fyrir og teknir eru í vörslu er heimilt
að afhenda leyfishafa, gangi hann eftir því innan einnar viku, og þá gegn
yfirlýsingu þess efnis að hann viðurkenni að skulda áfallinn kostnað af
vörsluninni.
Sé ómerktur eða leyfislaus köttur tekinn í vörslu, skal auglýsa eftir eigandanum
a.m.k. tvisvar með áberandi hætti. Gefi enginn umráðamaður eða eigandi sig fram
innan einnar viku, er heimilt að færa köttinn til aflífunar. Bæjarsjóður ber
kostnað af vörslu og aflífun katta, en á endurkröfu á eigendur þeirra.
8. gr.
Framangreind samþykkt bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar
staðfestist hér með samkvæmt 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og
mengunarvarnir, með síðari breytingum, til þess að öðlast gildi þegar í stað.
Ákvæði til bráðabirgða.
Þeir sem halda ketti við gildistöku samþykktarinnar, en
hafa ekki leyfi fyrir þeim, skulu sækja um leyfi samkvæmt samþykkt þessari fyrir 15.
janúar 2004.
Umhverfisráðuneytið 8. desember 2003.
F.h.r.
Ingimar Sigurðsson.
Staðfest í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar
þann 23. október 2003.
|