Reglur um ferðaþjónustu fatlaðra í Ísafjarðarbæ Markmið ferðaþjónustu 1. gr. Markmið ferðaþjónustu fatlaðra er að gera þeim sem eru andlega eða líkamlega fatlaðir og ekki geta nýtt sér almenningsfarartæki vegna fötlunar sinnar, kleyft að stunda atvinnu og nám og njóta tómstunda sbr. 35. gr. laga um málefni fatlaðra. Einnig er henni ætlað að sjá fötluðum fyrir akstri á sérhæfðar þjónustustofnanir skv. 1.-4. tölul. 9. gr. laga nr. 59/1992 sem eru hæfingar- og endurhæfingarstöðvar, dagvistunarstofnanir fatlaðra, verndaðir vinnustaðir og leikfangasafn. Þetta á einnig við um aðrar þjónustustofnanir sem eru fötluðum nauðsynlegar en ekki eru sérstaklega tilgreindar í lögunum. Notendur 2. gr.
Ferðaþjónusta fatlaðra er ætluð til afnota fyrir þá íbúa sveitarfélagsins sem eru: 3. gr. Aðrir (sjúkir, aldraðir) sem nauðsynlega þurfa á
akstursþjónustu að halda geta sótt um hana til Skóla- og fjölskylduskrifstofu og
greiða fyrir sama gjald og aðrir. Forgangur, ferðafjöldi og þjónustutími 4. gr. Ferðir til vinnu, skóla, lækninga og endurhæfingar ganga fyrir
öðrum ferðum. Fjöldi ferða til annarra einkaerinda er háður takmörkunum, en við
það skal miða að þær verði ekki fleiri en 12 á mánuði og heildarfjöldi ferða
eigi meira en 60 á mánuði. Ferð er skilgreind í reglum þessum sem akstur milli
tveggja staða, en ekki akstur fram og til baka. Umsóknir og afgreiðsla 5. gr. Sækja þarf um ferðaþjónustu til starfsmanna Skóla- og
fjölskylduskrifstofu á sérstökum umsóknareyðublöðum. Starfsmenn skrifstofunnar
afgreiða umsóknir skv. þessum reglum. Skal umsókn metin á grundvelli möguleika
umsækjanda til að nýta sér þjónustu almenningsvagna og eða aðra ferðamöguleika.
Meta skal aðstæður hverju sinni og er heimilt að óska viðeigandi vottorða og
upplýsinga er veitt geta upplýsingar um ástand og þörf hins fatlaða fyrir
þjónustu. Samningur um þjónustu 6. gr. Gera skal sérstakt samkomulag um akstur hvers umsækjenda og
sérstaklega fastar ferðir vegna atvinnu og náms. Panta þarf með dags fyrirvara ef
breytinga er óskað á áður gerðu samkomulagi eða ef um óreglulegar ferðir er að
ræða. Afpöntun skal gera með minnst 3 klst. fyrirvara, annars telst ferðin með í
uppgjöri við notanda. Gjaldskrá 7. gr. Gjald fyrir hverja ferð skal fylgja gjaldskrá almenningsvagna á svæðinu þar með talin viðurkennd afsláttargjöld. Heimilt er að innheimta hærra gjald ef ekið er út fyrir sveitarfélagið. Gjaldskrárbreytingar eru samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar hverju sinni. Þjónustusvæði 8. gr. Þjónustusvæðið miðast við mörk sveitarfélagsins. Aksturinn miðast við að og frá anddyri. Aðstoð skal vera fyrir hendi gerist þess þörf. Akstur 9. gr. Farþegar skulu tilbúnir til brottfarar í anddyri brottfarastaðar á umsömdum
tíma. Ekki er tryggt að bíll bíði sé farþegi ekki tilbúinn. Ekki er beðið á
meðan farþegi sinnir erindi sínu. Bílstjórar sinna ekki sendiferðum fyrir farþega.
Farþega sem ekið er til læknis er heimilt að hringja eftir akstri til baka að
viðtali loknu, enda var það ekki vitað fyrirfram hve viðtalið tæki langan tíma. Aðstoðarmenn 10. gr. Farþegum er heimilt að hafa með sér aðstoðarmann, sem fer með án
endurgjalds, enda greiði hinn fatlaði gjald skv. gjaldskrá. 11. gr. Reglur þessar eru settar skv. 35. gr. og 9. gr. laga um málefni fatlaðra nr. 59/1992.
Samþykkt á fundi félagsmálanefndar 3. desember 2002. |