Reglur um liðveislu í Ísafjarðarbæ

I. Kafli

Markmið, hlutverk og skipulag liðveislu

1. gr.

Með félagslegri liðveislu er átt við liðveislu skv. 24. gr. laga um málefni fatlaðra nr. 59/1992 og reglur um félagslega heimaþjónustu í Ísafjarðarbæ, samþykktar af bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar þann 19. desember 2000. Um stjórn, daglegan rekstur og umsjón fer samkvæmt 4. og 5. gr. reglna um félagslega heimaþjónustu í Ísafjarðarbæ.

2. gr.

Markmið liðveislu er að efla viðkomandi til sjálfshjálpar, veita honum persónulegan stuðning og aðstoð, sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun t.d. aðstoð til að njóta menningar og félagslífs.

3. gr.

Rétt til liðveislu eiga þeir fatlaðir sbr. 2. gr. laga um málefni fatlaðra nr. 59/1992, sem búa utan stofnana eða sambýla og eru eldri en 6 ára, eru andlega eða líkamlega fatlaðir og þarfnast sérstakrar þjónustu og stuðnings af þeim sökum. Hér er átt við þroskahömlun, geðfötlun, hreyfihömlun, sjónskerðingu og heyrnarskerðingu.
Lögheimili og búseta í Ísafjarðarbæ er skilyrði.

II. Kafli

Ákvarðanataka

4. gr.

Starfsmenn Skóla- og fjölskylduskrifstofu hafa í umboði félagsmálanefndar heimild til að taka ákvörðun um liðveislu skv. reglum þessum, enda liggi fyrir útgjaldaheimild í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.

5. gr.

Félagsmálanefnd skal með jöfnu millibili fá upplýsingar um fjölda notenda og annað er máli kann að skipta við framkvæmd liðveislunnar. Umsjónamaður málaflokksins skal halda skrá yfir þá sem fá liðveislu, liðveitendur og þá sem veita ráðgjöf.

III. Kafli

Framkvæmd þjónustunnar

6. gr.

Sækja skal um liðveislu á þar til gerðu eyðublaði sem er undirritað af umsækjenda sjálfum, forsjáraðila hans eða talsmanni. Með umsókn um liðveislu skal fylgja læknisvottorð þar sem fram kemur tegund fötlunar sbr. 3. gr. þessara reglna. Einnig skal fylgja greinargerð frá Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra og/eða Greiningarstöð ríkisins.

7. gr.

Starfsmenn Skóla- og fjölskylduskrifstofu og fulltrúi frá Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra meta þörf á liðveislu á grundvelli umsóknar. Liðveisla skv. reglum þessum er tvenns konar:
1. Liðveisla allt að 20 tímum á mánuði, veitt einstaklingum með mikla fötlun þannig að hann er alfarið háður hjálp annarra.
2. Liðveisla allt að 10 tímum á mánuði veitt einstaklingum með minni fötlun.
Við sérstakar aðstæður og að fengnu samþykki félagsmálanefndar er heimilt að veita liðveislu umfram það sem hér segir.

8. gr.

Ef umsækjandi uppfyllir þau skilyrði sem sett eru samkvæmt 3. gr. þessara reglna og samkvæmt mati starfsmanns er sent skriflegt svar þar sem fram kemur að umsækjandi eigi rétt á liðveislu og unnið sé að því að útvega liðveitanda.

9. gr.

Samþykktir um liðveislu skulu tímabundnar og færðar til bókar. Fyrsta samþykkt skal að jafnaði vera til 3 mánaða. Þá skal umsókn metin að nýju og framlengd, ef ástæða þykir til. Endurnýjaðar samþykktir skulu að hámarki vera til 6 mánaða. Þó skal heimilt að ákveða liðveislu til 9 mánaða, ef liðveislan er tengd annarri tímabundinni þjónustu t.d. skólavist.

10. gr.

Gerður skal skriflegur samningur við liðveitanda um hvern einstakling, þar sem kveðið er á um samningstímabil, mánaðarlega vinnuskyldu og skipulag starfs.
Liðveitendur taka laun sín frá Ísafjarðarbæ samkvæmt launataxta starfsmannafélags Ísafjarðarbæjar og launanefndar sveitafélaga. Liðveitendum er óheimilt að taka við greiðslum eða gjöfum frá þeim sem njóta liðveislu.

11. gr.

Liðveitendur skulu gæta þagmælsku um það, er þeir fá vitneskju um í starfi sínu og helst þagnarskyldan þótt viðkomandi láti af störfum.

12. gr.

Liðveitandi skal skila inn greinargerð um starf sitt ásamt tímafjölda fyrir 15. hvers mánaðar. Tímaskýrslur skulu staðfestar af þeim sem nýtur liðveislunnar, forráðamönnum eða talsmönnum, nema annað sé ákveðið.
Liðveitandi fær endurgreiddan útlagðan kostnað frá Ísafjarðarbæ enda hafi þau útgjöld verið samþykkt fyrirfram af starfsmönnum Skóla- og fjölskylduskrifstofu. Þjónustuþegi greiðir sjálfur eigin útlagðan kostnað. Liðveitendur skulu skila inn reikningsyfirliti, akstursskýrslum ásamt fylgiskjölum og kvittunum vegna útgjalda. Til útgjalda telst útlagður kostnaður liðveitenda við liðveislu, s.s. vegna bíó- og leikhúsferða.

IV. Kafli

Málsmeðferð, málsskot og gildistími reglna

13. gr.

Um málsmeðferð skv. reglum þessum fer að ákvæðum 16. kafla laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga.

14. gr.

Um málsskot skv. reglum þessum fer að ákvæðum 17. kafla laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Sé niðurstaða óhagstæð umsækjanda skal hún skýrð og rökstudd skriflega og umsækjandi upplýstur um rétt til málskots og málsskotsfrest.
Ákvörðun um synjun á umsókn má skjóta til félagsmálanefndar Ísafjarðarbæjar, Stjórnsýsluhúsinu, Hafnarstræti 1, 400 Ísafirði. Skal það gert skriflega og eigi síðar en 4 vikum eftir að viðkomandi barst vitneskja um ákvörðun.

 

Reglur þessar voru samþykktar í félagsmálanefnd Ísafjarðarbæjar 2. október 2001, í bæjarráði Ísafjarðarbæjar þann 8. október 2001 og í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar þann 18. október 2001.