Nýtt söfnunarsvæði fyrir brotajárn tekið í notkun á morgun


Á morgun, föstudag 1. nóvember kl. 14, verður nýtt söfnunarsvæði fyrir brotajárn formlega tekið í notkun innan við Funa í Engidal í Skutulsfirði. Hér er um að ræða endapunktinn á lönguferli sem komst verulega á skrið þegar deiliskipulag Engidals var samþykkt og með gerð snjóflóðavarnargarðs við Funa, þar sem efnistökusvæðið nýtist til frambúðar til vistvænnar starfsemi s.s. móttöku, flokkunar og böggunar brotajárns, söfnunar lífræns garðaúrgangs og jarðgerðar. Næsta verk verður síðan uppgræðsla jarðvegsmana og snyrting svæðisins sem áður var nýtt undir brotajárn.

Það verður bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, Halldór Halldórsson, sem mun vígja hið nýja söfnunarsvæði með því að koma akandi með fyrsta brotajárnsfarminn á svæðið. Ekki er ólíklegt að sá farmur komi af Suðurtanganum á Ísafirði þar sem mikil hreinsun brotajárns hefur farið fram að undanförnu. Að aflokinni stuttri opnunarathöfn verður boðið upp á veitingar í húsnæði Gámaþjónustu Vestfjarða, rétt framar í dalnum.