REGLUR ÍSAFJARÐARBÆJAR UM ÚTHLUTUN
BYGGÐAKVÓTA 2005.
Afla sem úthlutað er á grundvelli byggðakvóta úthlutunar
Ísafjarðarbæjar er skylt að vinna í viðkomandi byggðarlagi. Það telst vinna
þegar afli er fullunnin í fiskvinnslu með starfsstöð í Ísafjarðarbæ. Þeir sem
koma til greina við úthlutun eru krókaaflamarksbátar og aflamarksskip, sem skráð eru
í Ísafjarðarbæ 1. janúar 2005.
- Umsókn um byggðakvóta skal skilað á skrifstofur Ísafjarðarbæjar fyrir 15. mars
2005. Einnig má skila umsókn á netfangið thorleifur@isafjordur.is
[Eyðublað]
- Byggðakvóta þeim er úthlutaður var til Hnífsdals samtals 30 þorskígildis-lestum
og til Þingeyrar 60 þorskígildislestum, skal úthlutað samkvæmt 5. gr. reglugerðar
nr. 960/2004 um úthlutun á 3.200 þorskígildislestum til stuðnings byggðarlögum.
- Úthlutuðum aflaheimildum til Flateyrar 60 þorskígildislestum og til Suðureyrar 60
þorskígildislestum, samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar á 173. fundi
þann 30.desember 2004, verður eingöngu skipt á milli þeirra skipa/báta, sem voru
með heimahöfn á Flateyri eða Suðureyri þann 1. janúar 2005. Ef umsóknir um
veiðiheimildir verða umfram úthlutað aflamark á hvorum stað skal 50% aflaheimilda
skipt að jöfnu milli umsækjenda og 50% hlutfallslega miðað við það aflamagn er
viðkomandi skip/bátur landaði til vinnslu í viðkomandi byggðarlagi fiskveiðiárið
2003-2004.
- Með umsókn um byggðakvóta skal fylgja staðfesting fiskvinnslu í viðkomandi
byggðarlagi, um að afli verði unninn þar. Gerð skal grein fyrir á hvaða tímabili
umsækjandi hyggst veiða/landa úthlutuðum byggðakvóta. Öllum afla samkvæmt þessari
grein skal landað fyrir lok þessa fiskveiðiárs.
- Bátum sem úthlutað er byggðakvóta er skylt að leggja til aflaheimildir að
lágmarki til jafns við úthlutaðan byggðakvóta, sem einnig verði unninn í
viðkomandi fiskvinnslu og skoðast móttekin umsókn sem staðfesting viðkomandi á
því að það verði gert.
- Við verðlagningu afla skal að lágmarki greiða viðmiðunarverð Verðlagsstofu
skiptaverðs fyrir þorsk, ýsu og karfa, en fyrir aðrar tegundir sambærilegt verð og
algengast er á viðkomandi landssvæði að teknu tilliti til stærðar og gæða.
- Úthlutaður byggðakvóti er ekki framseljanlegur, en heimilt er að skipta á jöfnu
á markaðsvirði á öðrum tegundum en þorski, án þess að það teljist framsal á
úthlutuðum aflaheimildum.
- Í síðasta lagi þann 10. ágúst 2005 skulu útgerðir þeirra skipa, sem úthlutað
fá byggðakvóta samkvæmt þessum reglum, skila inn skýrslu til Ísafjarðarbæjar, um
nýtingu hans. Verði skýrslu ekki skilað eða ákvæðum þessara reglna um löndun
afla ekki fylgt geta viðkomandi bátar átt á hættu að fá ekki úthlutaðan
byggðakvóta komi til slíkrar úthlutunar síðar.
Ísafirði, 24. febrúar 2005.
Halldór Halldórsson, bæjarstjóri. |