Starfsmannastefna Ísafjarðarbæjar.
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hefur á fundi sínum þann 16. maí 2002 samþykkt eftirfarandi starfsmannastefnu sem nær til allra þeirra sem ráðnir eru til starfa hjá Ísafjarðarbæ. Um almenn réttindi og skyldur starfsmanna bæjarfélagsins fer eftir ákvæðum laga, samþykkta, kjarasamningum svo og ráðningarsamningum. A. Markmið. Ísafjarðarbær mun með starfsmannastefnu leitast við að tryggja að vinnustaðir bæjarfélagsins séu góðir og þar þróist fagþekking, verkkunnátta og þjónustulund í samræmi við markmið bæjarstjórnar og þarfir bæjarfélagsins. Starfsmannastefnunni er ætlað að ná fram eftirtöldum markmiðum: a) að ráða hæft, áhugasamt og traust starfsfólk og efla það í starfi. B. Vinnustaðir Ísafjarðarbær. Ísafjarðarbær hefur þá stefnu: 1. Að starfsfólk sé ánægt með vinnustað sinn, bæði starfsumhverfi og starfsanda og að samhugur, samstarf og gagnkvæm virðing ríki milli einstakra starfsmanna og milli starfsmanna og kjörinna fulltrúa og íbúa bæjarins. 2. Að aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum bæjarstarfsmanna séu í sem bestu horfi enda eru það gagnkvæmir hagsmunir að vellíðan og heilbrigði starfsmanna sé haft að leiðarljósi. Starfsmönnum er skylt og þeim gert kleift, að fylgja þeim kröfum sem gerðar eru til þeirra um öryggi og gætni í starfi. Yfirvinnu skal haldið innan hóflegra marka af vinnuverndarástæðum. Æskilegt er að starfsmenn viðhaldi eigin heilsu með heilbrigðum lifnaðarháttum. 3. Að hagræða vinnuaðstæðum fyrir starfsfólk, sem er ekki fullfært um að mæta þeim skilyrðum sem almennt eru sett á vinnustöðum. 4. Að starfsfólk finni til öryggis vegna þess að það hefur innsýn í og áhrif á þróun vinnustaðarins og eigin starfsskilyrði. 5. Að starfsmenn bæjarins fylgi þeim reglum sem í gildi eru á hverjum vinnustað um vinnutíma, árangur og hátterni svo og lögum og sérstökum reglum deilda og stofnana bæjarins eins og þær eru hverju sinni. Starfsmönnum ber að hlíta lögmætum fyrirmælum yfirmanna sinna, sýna heiðarleika, trúmennsku og vandvirkni og gæta þagmælsku um atriði sem þeir verða áskynja í starfi. Starfsmönnum ber að gæta þess að framkoma og athafnir þeirra samrýmist starfinu sem þeir gegna. 6. Að skapa starfsmönnum sínum aðstæður til að samræma kröfur starfs- og fjölskylduábyrgðar eins og kostur er. Starfsmönnum skal gert kleift að minnka starfshlutfall tímabundið vegna fjölskylduábyrgðar, t.d. umönnunar barna og sjúkra á heimili. Starfsmenn skulu eiga kost á hlutastörfum og sveigjanlegum vinnutíma eftir því sem aðstæður leyfa. 7. Að vinnustaðir bæjarfélagsins verði reyklausir og starfsmenn hafi ekki
um hönd vímuefni af neinu tagi á vinnutíma. Starfsmönnum sem vilja vinna úr
vandamálum sem tengjast misnotkun vímuefna, skal veita leiðbeiningar og aðstoð til
þess. C. Stjórnkerfi og upplýsingar. 1. Það er stefna Ísafjarðarbæjar að dreifa valdi, ábyrgð og ákvarðanatöku í stjórnkerfinu, þannig að sjálfstæði og frumkvæði starfsmanna sé sem mest, en háð góðu samræmingar- og eftirlitskerfi, einkum í fjármálum og starfsmannamálum. 2. Að umboð og ábyrgðarsvið starfsmanna, forstöðumanna og bæjarfulltrúa sé skýrt. Skýrar og einfaldar reglur eiga að gilda um samskipti, boðleiðir og upplýsingastreymi milli starfsmanna, bæjarfulltrúa og bæjarbúa. Lög og reglugerðir, sem varða starfsmenn, skulu vera öllum aðgengilegar s.s. sveitarstjórnarlög, bæjarmálasamþykkt og gildandi kjarasamningar. 3. Yfirmönnum deilda og stofnana er ætlað að skapa samkennd meðal starfsmanna sinna og gera þeim grein fyrir markmiðum með starfseminni, en einnig að sjá til þess að samstarf við aðrar deildir og stofnanir sé í eðlilegu horfi. 4. Ætlast er til að stjórnendur tileinki sér góða og árangursríka stjórnunarhætti, hafi góða yfirsýn yfir verksvið sitt og samhæfi störf undirmanna sinna svo að markmiðum vinnustaðarins verði náð með sem hagkvæmustum hætti. Stjórnendur eiga að leitast við að hafa samráð við starfsmenn um málefni vinnustaðarins og beita sér fyrir sem víðtækastri sátt um stefnu og starfshætti. Æskilegt er að starfsmannasamtöl fari fram reglubundið þar sem yfirmaður ræðir við hvern starfsmann um vinnuframlag hans og möguleika á þróun í starfi. 5. Ísafjarðarbær vill á grundvelli upplýsingastefnu bæjarins, halda uppi góðu upplýsingastarfi meðal starfsmanna svo að þeir geti leyst verkefni sín af hendi á árangursríkan hátt og bærinn þannig náð fram markmiðum sínum. 6. Upplýsingum skal komið á framfæri þannig að þær séu hvetjandi fyrir starfsmenn, en jafnframt skal tekið tillit til þess trúnaðar sem nauðsynlegur getur verið. Upplýsingar skulu settar fram á skýran og greinargóðan hátt. Deildarstjórar og forstöðumenn stofnana bera ábyrgð á að upplýsingamiðlun til starfsmanna sinna sé virk. Allir sem búa yfir upplýsingum, sem nauðsynlegar eru öðrum, bera ábyrgð á að þær berist réttum aðilum. Telji starfsmenn sig skorta upplýsingar er varða störf sín skulu þeir sjálfir afla þeirra hjá réttum aðilum. D. Málefni starfsmanna. 1. Bæjarstjórn að tillögu bæjarráðs skal ákveða fjölda heimilaðra stöðugilda hverju sinni. Í hvert skipti sem starf er laust skal fara fram mat á þörf fyrir starfið, þ.e. hvort ástæða sé til að breyta starfslýsingu, kröfum til umsækjanda, leggja starfið niður, sameina það öðru starfi o.fl. Þá skal kannað hvort tilefni sé til tilfærslu starfsmanns bæjarins í starfið og tillaga um slíkt lögð fyrir bæjarráð, en sé svo ekki skal starfið auglýst. 2. Bæjarstjórn ræður starfsfólk í eftirtaldar stjórnunarstöður og
veitir þeim lausn frá störfum, sbr. 72. grein sveitarstjórnarlaga nr. 8/1986: 3. Starfsfólk skal almennt fastráðið ótímabundinni ráðningu og er gagnkvæmur uppsagnarfrestur 3 mánuðir, nema um annað sé samið sérstaklega eða tilgreint í kjarasamningum. Tilvísun til 67. gr. VI. kafla bæjarmálasamþykktar Ísafjarðarbæjar 5. mars 2001. Um ráðningu lausráðinna starfsmanna fer eftir reglum sem bæjarstjórn setur. Tilvísun til 68. gr. VI. kafla bæjarmálasamþykktar Ísafjrðargæjar 5. mars 2001. 4. Forstöðumönnum stofnana er heimilt, sé fjárveiting fyrir hendi í fjárhagsáætlun, að ráða fólk til tímabundinna starfa. 5. Við ráðningar í laus störf skal það haft að leiðarljósi að viðkomandi uppfylli sem best þær kröfur sem gerðar eru til starfsins. Við ákvarðanir um ráðningu, stöðuhækkanir eða kaup og kjör skal starfsfólki ekki mismunað vegna kynferðis, trúarskoðana eða stjórnmálaskoðana. Fatlaðir njóta forgangs til starfa skv. 24. gr. laga nr. 41/1983. 6. Við ráðningu skal gera skriflegan ráðningarsamning við starfsmann og skulu fylgja samningnum helstu gögn sem nauðsynlegt er að starfsmaðurinn þekki s.s. starfslýsing, starfsmannastefna bæjarins, upplýsingastefna o.fl. 7. Starfsmanni er óheimilt að stofna til atvinnurekstrar, þ.m.t. hvers kyns umboðsverslunar og hönnunarþjónustu, taka við starfi í þjónustu annarra samhliða starfi sínu hjá Ísafjarðarbæ eða ganga í stjórn atvinnufyrirtækis, nema með leyfi bæjarráðs eða bæjarstjóra. Rétt er að banna starfsmanni slík störf ef það er síðar leitt í ljós að þau fari ekki saman við starf hans hjá Ísafjarðarbæ. 8. Bæjarstjórn setur fram eftirtaldar siðareglur til leiðbeiningar fyrir starfsfólk um hvað sé við hæfi í starfi:
E. Starfsþróun og launastefna. Ísafjarðarbær hefur þá stefnu: 1. Að starfsfólk og vinnustaðir geti þróast í sameiningu til hagsbóta fyrir bæjarfélagið. Unnið verði markvisst að þróun verkfærni og verkefna hvers starfsmanns um leið og unnið er að því að auka hæfni vinnustaðarins til að takast á við síbreytileg viðfangsefni. 2. Að á vinnustöðum Ísafjarðarbæjar eigi starfsfólk möguleika á starfsframa í samræmi við metnað og kunnáttu. Þannig á starfsfólk að geta þróast í starfi til að geta tekið við nýjum hlutverkum á vinnustað sínum eða öðrum vinnustöðum. Starfsmenn skulu hvattir til að efla fagþekkingu sína í samræmi við síbreytilegar kröfur sem gerðar eru til vinnustaða bæjarins. 3. Að laun taki mið af kröfum til starfsins, hæfni starfsmannsins og frammistöðu í starfi og að unnt verði að umbuna einstökum starfsmönnum með öðrum hætti fyrir hæfni og vinnuframlag. 4. Að launakjör laði að hæft starfsfólk og haldi því í starfi. Laun hjá Ísafjarðarbæ skulu taka mið af launum á vinnumarkaði þannig að starfsmenn njóti hliðstæðra kjara og bjóðast í sambærilegum störfum annars staðar. 5. Það er stefna Ísafjarðarbæjar að skapa starfsfólki sínu möguleika á samfelldum starfsferli þannig að eftir föngum verði tekið tillit til breytinga á aldri eða persónulegum högum, aukinnar reynslu, meiri menntunar, skertrar starfsgetu o.fl. þátta sem leiða til þarfar einstaklingsins fyrir umskipti í störfum. Tilfærslur milli starfa geta einnig verið ákjósanlegar í þeim tilgangi að ná fram öðrum markmiðum í starfsmannamálum, m.a. með því að skapa starfsmönnum reynslu á nýju sviði eða undirbúa þá undir ábyrgðarmikil stjórnunarstörf. Einnig geta tilfærslur milli starfa verið nauðsynlegar vegna breyttra áherslna í starfsemi deilda og stofnana, hagræðingar í rekstri eða breytinga á stjórnkerfi. 6. Að almennir starfsmenn Ísafjarðarbæjar láti af störfum næstu mánaðamót eftir að þeir hafa náð 70 ára aldri. 7. Að það sé meginstefna að forstöðumenn stofnana, deildarstjórar og sviðsstjórar skulu láta af þeim störfum þegar þeir verða 65 ára nema bæjarstjórn samþykki annað en eiga þess jafnframt kost að fá önnur minna krefjandi störf án þess að grunnlaun þeirra lækki og lífeyrisréttindi skerðist. 8. Óski starfsmaður eftir tilfærslu skal hann leita til viðkomandi yfirmanns. Reynt skal að verða við slíkum óskum ef mögulegt er, einkum hjá þeim sem hafa starfað lengi hjá Ísafjarðarbæ. Ef nauðsyn krefur áskilur Ísafjarðarbær sér einnig rétt til að færa starfsfólk milli starfa og skal þá viðkomandi halda þeim föstu launum er fyrra starfinu fylgdu í næstu 12 mánuði á eftir ef um lægra launað starf er að ræða. 9. Það er stefna Ísafjarðarbæjar að færa yfirmenn til í störfum með reglulegu millibili sé því við komið. 10. Starfsagi. Ef starfsmaður hefur sýnt í starfi sínu óstundvísi eða
vanrækslu, óvandvirkni, óhlýðni við löglegt boð eða bann yfirmanns síns, verið
undir áhrifum áfengis eða fíkniefna í starfi, brotið trúnað eða þagmælsku, eða
framkoma hans og athafnir að öðru leyti verið ósæmileg eða ósamrýmanleg starfinu,
er rétt að veita honum skriflega áminningu og gefa honum kost á að bæta ráð sitt. 11. Fjarvistir. Yfirmenn skulu skrá allar fjarvistir og skýringar á fjarvistum á vinnuskýrslur. Ef starfsmaður veikist og getur af þeim sökum eigi sótt vinnu, skal hann tilkynna það yfirmanni sínum og skila vottorði læknis þar um enda hafi læknir skoðað viðkomandi meðan á veikindum stendur. 12. Starfslýsingar. Gera skal starfslýsingar fyrir öll störf sem starfsmenn
eru ráðnir til ótímabundið. Þær skulu gerðar í samráði við þá sem störfunum
gegna. Sé um hópa að ræða geta þeir tilnefnt fulltrúa, einn eða fleiri, til að
veita nauðsynlegar upplýsingar. Í starfslýsingu skal m.a. koma fram ábyrgðarsvið og
helstu verkefni viðkomandi starfsmanns, en einnig stjórnunarsvið ef við á. Þannig samþykkt á fundi bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar, 16. maí 2002. |